Morgunblaðið - 23.05.2004, Síða 60

Morgunblaðið - 23.05.2004, Síða 60
DAGBÓK 60 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein- takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sel- foss kemur í dag. Fréttir Fjölskylduhjálp Íslands Eskihlíð 2–4, í fjósinu við Miklatorg. Móttaka á vörum og fatnaði, mánudaga kl. 13–17. Úthlutun matvæla og fatnaðar, þriðjudaga kl. 14–17. Sími skrifstofu er 551 3360, netfang dalros@islandia.is, gsm hjá formanni 897 1016. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Handavinnusýning kl. 13–17. Félag eldri borgara í Kópavogi. Ferðin Akra- nes – Hítardalur – Mýr- ar – Álftanes fimmtudaginn 27. maí. Lagt af stað frá Gjá- bakka kl. 9 og Gull- smára kl. 9.15. Leið- sögumaður Jón Bjarnason. Heimkoma áætluð kl. 18–19. Skráning sem fyrst á þátttökulistana sem verða teknir niður kl. 15 miðvikudaginn 26. maí. Ferðanefndin. (Bogi s. 554 0233 eða Þráinn s. 554 0999.) Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Hand- verkssýning frá kl. 13– 17. Gerðuberg, félagsstarf. Á morgun kl. 9–16.30 vinnstofur opnar, frá hádegi spilasalur opinn, sund- og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug kl. 9.30. Gullsmári, Gullsmára 13. Sumarfagnaður verður í félagsheimilinu miðvikudaginn 26. maí og hefst með dagskrá kl. 14. Á dagskrá m.a. fjórar ungar stúlkur syngja nokkur lög, ung- ir dansarar frá Dans- íþróttafélagi Kópavogs sýna dansa, leik- fimiiðkendur bregða á leik undir stjórn Mar- grétar Bjarnadóttur, einsöngur, kaffihlað- borð. Hvassaleiti 56–58. Handverkssýning sunnudaginn 23. og mánudaginn 24. maí kl. 13–17. Kvenfélag Bústaða- sóknar. Sumarferðin verður laugardaginn 12. júní. Farið verður í Dalasýslu. Þátttaka til- kynnist fyrir 3. júní til eftirfarandi: Ingibjörg 553 4594, Stella 862 3675, Erla 897 5094. NA (Ónefndir fíklar). Neyðar- og upplýs- ingasími 661 2915. Opn- ir fundir kl. 21 á þriðju- dögum í Héðinshúsinu og á fimmtudögum í KFUM&K, Austur- stræti. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga á Suðurlandi: Skó- verslun Axels Ó. Lárussonar, Vest- mannabraut 23, Vest- mannaeyjum, s. 481 1826 Mosfell sf., Þrúðvangi 6, Hellu, s. 487 5828 Sólveig Ólafs- dóttir, Verslunin Grund, Flúðum, s. 486 6633, Sjúkrahús Suðurlands og Heilsu- gæslustöð, Árvegi, Sel- fossi, s. 482 1300, Versl- unin Íris, Austurvegi 4, Selfossi, s. 482 1468, Blómabúðin hjá Jó- hönnu, Unabakka 4, 815 Þorlákshöfn, s. 483 3794. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga, Reykjanesi: Bókabúð Grindavíkur, Víkurbraut 62, Grinda- vík, s. 426 8787, Penn- inn – Bókabúð Kefla- víkur, Sólvallagötu 2, Keflavík, s. 421 1102, Íslandspóstur hf., Hafnargötu 89, Kefla- vík, s. 421 5000, Ís- landspóstur hf., c/o Kristjana Vilhjálms- dóttir, Garðbraut 69, Garður, s. 422 7000, Dagmar Árnadóttir, Skiphóli, Skagabraut 64, Garður, s. 422 7059. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga í Reykjavík, Hafn- arfirði og Seltjarnar- nesi: Skrifstofa LHS Síðumúla 6, Rvík, s. 552 5744, fax 562 5744, Hjá Hirti, Bónushús- inu, Suðurströnd 2, Sel- tjarnarnesi, s. 561 4256, Bókabúð Böðvars, Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, s. 565 1630. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga á Vesturlandi: Penninn, Bókabúð Andrésar, Kirkjubraut 54 Akranesi, s. 431 - 1855, Dalbrún ehf., Brákarbraut 3, Borg- arnesi, s. 437 1421, Hrannarbúðin, Hrann- arstíg 5, Grundarfirði, s. 438 6725, Verslunin Heimahornið, Borg- arbraut 1, Stykkis- hólmur, s. 438 1110. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga,Vestfjörðum: Jón Jóhann Jónsson, Hlíf II, Ísafirði, s. 456 3380, Jónína Högnadóttir, Esso-verslunin, Ísa- firði, s. 456 3990 Jóhann Kárason, Engjavegi 8, Ísafirði, s. 456 3538, Kristín Karvelsdóttir, Miðstræti 14, Bolung- arvík, s. 456 7358. Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæj- arskrifstofu Seltjarn- arness hjá Ingibjörgu. Í dag er sunnudagur 23. maí, 145. dagur ársins 2004. Orð dagsins: Sjálfur hefur hann þjáðst og hans verið freistað. Þess vegna er hann fær um að hjálpa þeim, er verða fyrir freistingu. (Hebr. 2, 18.)     Helgi Guðmundssonskrifar um forsetann og fjölmiðlafrumvarpið á vef Ögmundar Jón- assonar. „Ég tók að mér að ritstýra Þjóðviljanum á síðustu misserum hans, en Ólafur Ragnar var for- maður Alþýðubandalags- ins þegar ég hóf störf,“ skrifar Helgi. „Enda þótt við hefðum það fyr- irkomulag á útgáfunni að sjálfstæð félög gæfu blað- ið út fór ekkert á milli mála hver var hinn raun- verulegi eigandi. Þjóðvilj- inn var blað Alþýðu- bandalagsins og í mínum huga var aldrei neinn vafi á að blaðið væri í sama liði og flokkurinn.“     Síðar segir Helgi:„Morgun einn brá svo við að formaðurinn vakn- aði upp með kenningu um blaðið og sjálfan sig í koll- inum. Hann setti sig í samband við ritstjóra flokksblaðsins og las hon- um rækilega pistilinn fyr- ir meðhöndlun blaðsins á einhverju deilumáli sem þá var uppi í flokknum [...] Flokkurinn hafði að mig minnir haldið einn af sínum mörgu fundum. Á honum kom í ljós ágrein- ingur milli formanns flokksins, Ólafs Ragnars Grímssonar og formanns miðstjórnar, Steingríms J. Sigfússonar (kannski var hann bara varafor- maður AB). Á forsíðu Þjóðviljans var tekið svo til orða að formennirnir væru ósammála. Þessi framsetning passaði ekki við nýjustu morgunkenn- ingu formannsins. Hann tilkynnti ritstjóranum, og var mikið niðri fyrir, að í Alþýðubandalaginu væri bara einn formaður og fór ekki milli mála hvað hann héti. Ég maldaði eitthvað í móinn, það er jú ekkert grín að lenda í bálreiðum flokksformanni eins og allir geta skilið, og þá kom þessi eðlilega spurn- ing: Ætlar þú að reka sjálfstæða ritstjórn- arstefnu? hverju ég svar- aði víst játandi, en mun hafa látið þess getið að blaðið væri þó í sama liði og Alþýðubandalagið.     Ástæðan fyrir því að égrifja nú þetta upp er sú að Ólafur Ragnar hef- ur um stundarsakir stigið út úr forsetaembættinu og inn í pólitík, á þann hátt sem ekki verður mis- skilið. Hann taldi sig ekki geta heiðrað danskan prins í einn dag vegna „mikilvægra“ óaf- greiddra mála í þinginu – les: fjölmiðlafrumvarp Davíðs Oddssonar. Stjórnarandstöðunni fannst þetta gott hjá hon- um og að sjálfsögðu fjöl- miðlum í eigu Baugs, sem beinlínis báðu hann um að drífa sig heim. Ólafur Ragnar veit með öðrum orðum nákvæmlega hvaða valdi er verið að setja skorður með því að takmarka samþjöppun á fjölmiðlamarkaði – því valdi að einn eða alltof fá- ir geti í krafti eign- arréttar síns sagt við stjórnendur fjölmiðla: Ætlar þú að reka sjálf- stæða ritstjórnarstefnu? STAKSTEINAR Sjálfstæð ritstjórn- arstefna Víkverji skrifar... Viltu strimilinn?“ er orðinein algengasta spurning sem Víkverji fær í dagsins önn. Þeir sem spyrja eru af- greiðslufólk í verslunum. Víkverji vill aldrei strimilinn. Honum finnst algjörlega óþarft að fá afrit af miðanum sem hann skrifar undir þegar hann hefur greitt með debet- kortinu sínu. Hann er því ákaflega feginn að nú eru í sumar verslanir komnir pos- ar sem gefur afgreiðslufólk- inu kost á að hafna alfarið að prenta út strimlana. Þá fær Víkverji ekki samviskubit yfir þeirri ótrúlega eyðslu á pappír sem honum finnst út- prentun strimla og afrita vera, sem hann iðulega krumpar og hendir í ruslið. Víkverji vonar að fleiri versl- anir taki þessa posa í notkun. x x x Víkverji hefur hjólað í vinnuna ímörg ár en átak hefur nú verið í gangi til að hvetja Íslendinga til að nota þennan fararmáta í ríkari mæli. Margt ágætt hefur verið gert í stíga- málum og aðgengi hjólreiðafólks und- anfarin ár en betur má ef duga skal. Víkverji stingur upp á því að í kjölfar átaksins verði þeir sem hjólað hafa í vinnuna undanfarna daga hvattir til að senda inn á heimasíðu ÍSÍ eða ann- ars staðar hugmyndir að úrbótum hvað varðar þennan málaflokk í borg- inni. Víkverji skorar líka á ÍSÍ að fræða Íslendinga aðeins um hvernig beri að umgangast hjólafólk, hvar það eigi að hjóla og þar fram eftir göt- unum (eða gangstéttunum). x x x Víkverji heimsótti Sólheima íGrímsnesi nýverið og heillaðist algjörlega af staðnum. Víkverji hefur reyndar komið nokkrum sinnum áður í Sólheima og alltaf í mjög góðu veðri. Reyndar veltir Víkverji því fyrir sér hvort stemmningin á staðnum, allur gróðurinn og yndislega fólkið, hafi þau áhrif að í minningunni hafi veðrið alltaf verið gott? Víkverji stefnir á að fara að sjá leikritið Latabæ núna um helgina sem þar er sýnt. Síðan ætlar hann á kaffihúsið og smakka lífrænan safa og gómsætar kökur. Að því loknu ætlar hann að fylla skottið á bílnum af lífrænt ræktuðu grænmeti, trjáplöntum og hinum landsþekktu kertum sem framleidd eru á staðnum og kannski kaupir hann nokkra hand- ofna dúka líka. Víkverji heyrði hjá kunnugum að sumarbústaðafólk í Grímsnesi væri tíðir gestir á Sól- heimum og keyptu trjáplöntur, enda væru þær víst sérsniðnar fyrir jarð- veginn á staðnum, enda ættaðar frá Gímsnesi. Menningarlífið blómstrar á Sólheimum og Víkverji getur varla beðið eftir því að sjá sumarkabarett- sýningu Sólheima á kaffihúsinu Grænu könnunni í sumar. Listalífið blómstrar á Sólheimum í Grímsnesi. Morgunblaðið/RAX Opið bréf til mennta- málaráðherra ÉG VIL fyrst nefna það að mér fannst frábært bréfið frá ungu stúlkunum úr Kvennaskólanum í sam- bandi við samræmd stúd- entspróf, því miður sá ég það aðeins of seint og þess vegna mótmælti ég ekki með þeim, ekki er spurning að ég hefði viljað það. Ég er 26 ára 2 barna móðir sem ákvað að drífa sig aftur í skóla, Fjöl- brautaskólann í Breiðholti, eftir 6 ára bið og uppfylla drauminn um að verða stúdent og sjúkraliði en nú er draumurinn í hættu, því ég er með hrikalegan próf- kvíða og bið um lengri próf- tíma í öll próf. En nú eru að koma lög um samræmd stúdentspróf þar sem tekið er námsefni frá fyrstu önn, ég var á fyrstu önn fyrir u.þ.b. 10 árum og á ekki námsefni síðan þá, því er ég hrædd um að hræðslan verði yfirsterkari löngun- inni að verða stúdent, þó að sú löngun sé sterk. Því bið ég þig, menntamálaráð- herra, að endurskoða lögin um samræmd stúdentspróf og leyfa mér að uppfylla drauminn, sama draum og margir eiga. Thelma Dögg Valdimarsdóttir, nemi og móðir. Ásatrú/nýnasismi ÉG SKRIFA þessa grein sökum þess að það hefur borið á því að nokkrir hóp- ar innan nýnasistahreyf- ingarinnar og þá er ég að- allega að tala um rasisma, hafa verið að bera Þórs- hamar um háls sér til að undirstrika það að þeir til- heyri þessum tilteknu hóp- um. Þetta á sem betur fer aðallega við um hópa sem erlendis eru. Ég er í Ásatrúarfélaginu og vil ekki að það verði litið á mig sem rasista því að ég ber Þórshamarinn mér til verndar, því að Þór er jú verndari mannkyns og finnst mér því skrýtið að hamar hans sé notaður fyr- ir tákn um rasisma. Árni Einarsson. Dýrahald Flumbru vantar heimili FLUMBRA er 11 vikna læða, svört og hvít að lit. Hún er kassavön, gæf og gullfalleg. Hún óskar nú eftir framtíðarheimili. Upplýsingar í síma 868 0915. Hvít læða fæst gefins ÞRIGGJA mánaða læða, svört og hvít að lit, fæst gefins á gott heimili. Upp- lýsingar gefur Ásta í síma 587 8119 eða 847 9557. Kettlingar leita heimilis 6 kettlingar, vel upp aldir, kassavanir og fallegir eru að leita sér að nýju heimili. Upplýsingar í síma 581 4025 eða 860 2270. Tapað/fundið Slæða fannst í Samkaupum LAUGARDAGINN 15. maí sl. fannst ekta silki- slæða, gul, brún og rauð að lit. Slæðan var merkt nafn- inu Picasso. Upplýsingar hjá Ingibjörgu í síma 555 2124. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 salerni, 4 ný, 7 föl, 8 lystarleysi, 9 spott, 11 tölustafur, 13 spil, 14 mjög gott, 15 naut, 17 hey, 20 á húsi, 22 aka, 23 hljóðfæri, 24 talaði um, 25 gálur. LÓÐRÉTT 1 smábýlin, 2 stór, 3 jað- ar, 4 í fjósi, 5 prófað, 6 lít- ið herbergi, 10 þor, 12 rimlakassi, 13 stefna,15 hnikar til, 16 afkáraleg vera, 18 hryggð, 19 með tölu, 20 heimskingi, 21 harmur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 kostnaður, 8 gátur, 9 aumur, 10 fæð, 11 syrgi, 13 iglan, 15 gráta, 18 sarga, 21 not, 22 spaug, 23 akkur, 24 hlunnfara. Lóðrétt: 2 ostur, 3 tarfi, 4 ataði, 5 urmul, 6 Ægis, 7 hrun, 12 get, 14 góa, 15 gust, 16 áfall, 17 angan, 18 starf, 19 ríkur, 20 aurs. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.