Morgunblaðið - 15.12.2004, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2004 17
ERLENT
Álnabær
Síðumúla 32
108 Reykjavík
S: 588 5900
Tjarnagötu 17
230 Keflavík
S: 421 2061
Glerárgötu 32
600 Akureyri
S: 462 5900
Jólagardínur
Ljósboginn - Hafnargötu 25 - S. 421-1535
Sjónvarp á tilboði
14" sjónvarp
kr 9.900
ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í Sant-
iago í Chile tók í gær fyrir ákæru á
hendur Augusto Pinochet, fyrrver-
andi einræðisherra landsins, fyrir
morð og mannrán á valdatíma hans.
Áður hafði dómstóllinn fallist á kröfu
verjenda Pinochets um að fresta gild-
istöku fyrirmæla um að hann yrði
settur í stofufangelsi.
Dómarinn Juan Guzman Tapia
birti í fyrradag ákæru á hendur Pin-
ochet og skipaði að honum yrði haldið
í stofufangelsi þar til réttarhöld hæf-
ust. Er Pinochet sakaður um að bera
ábyrgð á morði á Chilebúa og hvarfi
níu annarra á áttunda áratug aldar-
innar sem leið. Talið er að mennirnir
hafi verið myrtir í tengslum við svo-
kallaða Condor-áætlun herforingja-
stjórna í sex Suður-Ameríkuríkjum,
Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Chile,
Paragvæ og Úrúgvæ. Fólst hún m.a. í
því að myrða vinstrisinnaða andstæð-
inga þeirra og fela líkin annars staðar
en í heimalandinu.
Deilt um andlega
heilsu Pinochets
Ákæran gæti orðið til þess að Pin-
ochet yrði dreginn fyrir rétt í fyrsta
skipti fyrir mannréttindabrot á
sautján ára valdatíma sínum.
Formaður samtaka ættingja fanga,
sem hurfu sporlaust á valdatíma Pin-
ochets, lýsti ákærunni sem „sögulegri
ákvörðun sem allir lýðræðissinnar
hljóta að fagna“.
„Það var þess virði að bíða svona
lengi,“ sagði lögfræðingur samtak-
anna. „Núna væntum við þess að
ákærur fylgi í öðrum málum.“
Lögfræðingur Pinochets sagði að
einræðisherrann fyrrverandi, sem er
89 ára, væri of gamall til að koma fyr-
ir rétt og áfrýjaði strax þeirri ákvörð-
un dómarans að ákæra hann. „Þetta
er brot á mannréttindum manns sem
er dreginn fyrir rétt án þess að geta
varið sig.“
Pinochet var áður ákærður fyrir
morð á 75 pólitískum föngum eftir
valdarán hersins árið 1973 og sat í
stofufangelsi í sex vikur. Hæstiréttur
Chile vísaði ákærunni frá árið 2001
eftir að læknar komust að þeirri nið-
urstöðu að hann þjáðist af vitglöpum
og gæti því ekki varið sig fyrir rétti.
Guzman dómari kvaðst hins vegar
vera sannfærður um að Pinochet væri
nógu vel á sig kominn andlega og lík-
amlega til að geta komið fyrir rétt.
Hann kvaðst hafa ákveðið að ákæra
Pinochet eftir að hafa yfirheyrt hann
og lesið skýrslur lækna um heilsu
hans.
Dómarinn kvaðst einnig hafa tekið
tillit til viðtals við Pinochet sem sjón-
varpsstöð í Miami sýndi í nóvember í
fyrra. Pinochet lýsti þá sjálfum sér
sem „góðum engli“ og kenndi undir-
mönnum sínum um mannréttinda-
brotin. Guzman sagði að svör Pinoch-
ets í viðtalinu bentu til þess að hann
væri „andlega skarpur“.
Ásakanir um spillingu hafa einnig
orðið til þess að staða Pinochets hefur
versnað og jafnvel valdið honum álits-
hnekki meðal stuðningsmanna hans
sem litu á hann sem ósérplæginn bar-
áttumann gegn kommúnisma. Eftir
að sjónvarpsviðtalið var sýnt komst
rannsóknarnefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings að því að Pinochet
faldi átta milljónir dollara, rúmar 500
milljónir króna, á leynilegum banka-
reikningi í Washington.
Pinochet varð fyrir öðru áfalli á
mánudag þegar elsti sonur hans var
dæmdur í átján mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að þiggja stolinn
bíl og brjóta lög um vopnaeign.
Kvaðst ekki hafa vitað
af Condor-áætluninni
Talið er að um 3.000 pólitískir and-
stæðingar Pinochets hafi verið drepn-
ir á valdatíma hans.
Ríkisstjórn Ricardo Lagos, forseta
Chile, ákvað fyrr í mánuðinum að
greiða um 28.000 manns bætur vegna
pyntinga í stjórnartíð Pinochets eftir
ýtarlega rannsókn.
Guzman dómari hefur undirbúið
saksókn á hendur Pinochet í mörg ár
og notað vitnisburði fjölskyldna fórn-
arlambanna og fyrrverandi her-
manna til að leita að fjöldagröfum í
Chile.
Pinochet kom á fót illræmdri ör-
yggislögreglu, DINA, sem falið var
að leita uppi og uppræta andstæðinga
herforingjastjórnarinnar í Chile. Það
var síðan að frumkvæði yfirmanns
DINA sem Condor-áætluninni var
hrint af stokkunum. Hún kvað á um
samstarf herforingjastjórna í Róm-
önsku Ameríku í því skyni að sigrast á
andstæðingum sínum með kúgunum,
mannránum, pyntingum og morðum.
Pinochet sagði Guzman að hann
hefði ekki vitað af Condor-áætluninni
og ekki viljað ómaka sig á slíkum
„smáatriðum“.
Pinochet fer ekki
strax í stofufangelsi
Ákvörðun dómara um að ákæra Pinochet áfrýjað
Santiago. AFP, AP.
„CARNIVAL Valor“, nýtt skemmti-
ferðaskip, er hér fyrir utan mið-
borg Miami í Bandaríkjunum eftir
að hafa siglt yfir Atlantshafið frá
Ítalíu þar sem það var smíðað. Skip-
ið kostaði 500 milljónir dollara, sem
samsvarar 31,5 milljörðum króna,
og tekur um 3.000 farþega. Gert er
ráð fyrir því að það hefji siglingar
um Karíbahafið 20. þessa mánaðar.
Reuters
Nýtt skemmtiferðaskip