Morgunblaðið - 15.12.2004, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Björn Andersenfæddist í Reykja-
vík 15. febrúar 1921
en ólst upp í Skerja-
firðinum. Hann and-
aðist 6. desember síð-
astliðinn. Björn var
sonur hjónanna Árnu
M. Þorvaldsdóttur
Andersen, f. á Skála-
nesi á Mýrum 18.
september 1897, d.
10. desember 1991,
og Mogens Løve
Andersen, f. 2. mars
1895 í Árósum Dan-
mörku, d. 26. desem-
ber 1976. Björn átti fimm systkini.
Þau eru: Ásta, Ragnar (látinn),
Bryndís (látin), Mary og Martín
(látinn).
Hinn 18. desember 1943 kvænt-
ist Björn Önnu Ólafsdóttur, f. 10.2.
1916, og eignuðust þau fjögur
börn. Þau eru: 1) Hrefna, f. 29.6.
1944, gift Ólafi Brynjólfssyni, f.
18.6. 1942, börn: A) Svanhvít
Stella, f. 5.12. 1962, maki Þorkell
Máni Jónsson, f. 11. 9. 1960, börn:
a) Hrefna Anna, f. 9.4. 1985; b)
Gunnvör, f. 13.5. 1990; c) Ásdís
26.10. 1996; b) Tara Sól, f. 17.5.
2000. D) Þyri Huld, f. 1.6. 1987. 3)
Sigríður Ólöf, f. 12.9. 1952, maki
Guðlaugur Ragnar Magnússon, f.
20.12. 1952, börn: A) Magnús Fil-
ippus, f. 12.6. 1973, maki Ellen
Svava Guðlaugsdóttir, f. 9.7. 1973,
börn: a) Íris Eva, f. 9.7. 2000; b)
Karen Ósk, f. 10.4. 2002. B) Árni
Martin, f. 7.10. 1976, sambýliskona
Jóhanna S. Viggósdóttir, f. 27.7.
1975, börn hennar: a) Guðfinna
Gróa, f. 20.6. 1994; b) Viggó Smári,
f. 15.6. 1998, sonur þeirra: c) Guð-
laugur Ragnar, f. 5.8. 2004. C) Sig-
urður Ragnar, f. 10.1. 1985. D)
Hannes Björn, f. 15.1. 1990. 4)
Birna, f. 6.8. 1954, börn: A) Ingi
Þór, f. 24.3. 1972, sambýliskona
Hildur Þórarinsdóttir, f. 29.4.
1977, sonur hans: a) Elvar Örn, f.
17.4. 1995, sonur þeirra; b) Þórar-
inn Ólafur, f. 31.1. 2002. B) Ásbjörn
Stefán, f. 5.8. 1977, d. 18.10. 2002.
Björn starfaði sem leigubílstjóri
á eigin bíl hjá Hreyfli. Síðan gerði
hann út sendibíl hjá Sendibílastöð-
inni hf., lengst af vann hann hjá
Björgun hf. Oft var hann lengi að
störfum við björgun skipa sem
strönduðu við Íslandsstrendur.
Einnig vann hann við hina frægu
leit að Gullskipinu á Meðallands-
fjöru.
Útför Björns verður gerð frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Stella, f. 5.10. 1995. B)
Björn Arnar, f. 10.1.
1969, maki Helga
Björnsdóttir, f. 11.4.
1969, börn: a) Arnar
Óli, f. 22.10. 1993; b)
Unnur Karen, f. 5.8.
1999. C) Óli Hrafn, f.
13.6. 1976, sambýlis-
kona Þórhildur
Þrándardóttir, f. 28.5.
1978, barn: Þrándur
Orri, f. 11.1. 2001. 2)
Árni Mogens, f. 30.8.
1946, maki Sigþrúður
Þórhildur Guðnadótt-
ir, f. 10.4. 1950, börn:
A) Björn Styrmir, f. 8.11. 1967,
sambýliskona Jakobína B. Sig-
valdadóttir, f. 11.11. 1967, dóttir
hans: a) Sarah. Dröfn, f. 26.12.
1990; sonur þeirra: b) Guðbjartur
Árni, f. 19.7. 2003. B) Guðni Jón, f.
29.3. 1973, sambýliskona Hrönn
Ámundadóttir, f. 5.11. 1973, sonur
hennar: a) Kristófer Máni, f. 18.12.
1997, synir þeirra: b) Anton Orri, f.
29.3. 1999; c) Daníel Styrmir, f.
29.3. 1999. C) Árni Þór, f. 11.4.
1975, maki Soffía Lára Hafstein, f.
23.1. 1976, börn: a) Eva Örk, f.
Elsku pabbi, mig langar að kveðja
þig með nokkrum orðum. Þegar ég
minnist bernskuáranna, varst þú allt-
af ljúfur og góður. Vildir alltaf allt
fyrir okkur systkinin gera, skamm-
aðir okkur aldrei og varst ætíð hvers
manns hugljúfi. Þegar barnabörnin
ykkar mömmu komu í heiminn hvert
af öðru hafðir þú yndi af því að leika
við þau.
Ég minnist tjaldferðanna innan-
lands og skíðaferðanna, bæði hér
heima og í austurrísku og frönsku
Ölpunum. Þið mamma voruð alltaf
tilbúin til að slást í för með okkur,
hvort heldur farið var til sólarlanda,
eða í ökuferðir um Evrópu. Ég á góð-
ar minningar frá þessum tíma.
Þegar kom að því að þú fórst veru-
lega að finna fyrir sjúkdómnum
(Parkinsonveikinni) sem þú fékkst
fyrir sextán árum, varst þú svo hepp-
inn að komast inn á Hjúkrunarheim-
ilið Sóltún, þar sem þú dvaldir sein-
ustu tvö árin. Þar naust þú
yndislegrar umönnunar frábærs
starfsfólks og er það þakkað hér.
Elsku pabbi, ég kveð þig með sökn-
uði og góðum minningum.
Hvíl í friði.
Hrefna Björnsdóttir.
Með mikilli virðingu og þökk kveð
ég tengdaföður minn Björn Ander-
sen. Frá fyrsta degi tók hann mér vel
og aðstoðaði mig og mína fjölskyldu á
allan þann hátt sem hann gat. Björn
var þeirrar kynslóðar sem vildi allt
fyrir aðra gera, en hugsaði síður um
eigin hag. Hans mesta ánægja var að
sjá til þess að börnunum hans vegn-
aði vel og fylgjast með sístækkandi
hópi barnabarna og barnabarna-
barna.
Bjössi afi eins og börnin okkar og
barnabörnin kölluðu hann var þessi
draumaafi sem öll börn eflaust
dreymir um að eiga. Ætíð tilbúinn á
sinn ljúfa hátt að taka þátt í leikjum
þeirra og fylgjast með því hvernig
þeim vegnaði í lífinu. Mörg þeirra
fengu í fyrsta sinn að setjast undir
stýri á alvöru bíl hjá afa sínum, og
keyra í huganum eins og börnum er
einum lagið.
Björn hafði alla tíð mikið yndi af
íþróttum, hafði sjálfur æft og keppt í
fimleikum hjá KR á sínum yngri ár-
um, fylgdist vel með knattspyrnu,
stundaði stangveiði og á miðjum aldri
fór hann að stunda skíðaiðkun með
góðum árangri og á ég og fjölskylda
mína margar skemmtilegar minning-
ar frá skíðaferðum okkar bæði hér
heima og erlendis með honum og
Önnu tengdamóður minni. Auk
skíðaferðanna koma í hugann ýmis
ferðalög hér heima og erlendis sem
stórfjölskyldan fór saman í og eiga
eftir að lifa í minningunni.
Síðustu æviár Björns voru honum
erfið vegna veikinda hans. Þessi mað-
ur sem mestan hluta ævi sinnar hafði
verið síkvikur mátti þola það að vera
nær rúmfastur síðustu árin. En aldr-
ei heyrði ég hann kvarta, þó hann
gæti sig vart hreyft, heldur tók hann
á móti manni með sömu hlýjunni og
brosinu sem einkenndi hann alla tíð.
Ég kveð þennan mikla ljúfling með
söknuði um leið og ég sendi tengda-
móður minni mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Ólafur Brynjólfsson.
Mig langar að skrifa nokkur
kveðjuorð um tengdaföður minn
Björn Andersen sem lést hinn 6. des-
ember síðastliðinn.
Ég var mjög ung þegar ég kom inn
í fjölskylduna í Efstasundi 41. Frá
fyrstu stundu tók Björn mér mjög vel
og þegar fram liðu stundir reyndist
þessi hægláti ljúfi maður fjölskyldu
okkar ávallt mikil hjálparhella, alltaf
tilbúinn að aðstoða okkur við allt sem
við tókum okkur fyrir hendur.
Það var sama hvort við vorum að
innrétta íbúðarhúsnæði okkar eða
þegar þurfti að dytta að bílnum okk-
ar. Það virtist allt leika í höndum
hans, hann var sannkallaður ,,þús-
undþjalasmiður“.
Björn var áhugasamur og mjög
góður veiðimaður og fóru þau hjón
margar ferðirnar til silungs- og lax-
veiða. Björn og Anna voru dugleg að
ferðast, fóru bæði í skíðaferðir og sól-
arlandaferðir, sem þau höfðu mikla
ánægju af.
Björn og Anna bjuggu alla sinn bú-
skap í Efstasundi 41, í nábýli við for-
eldra hans en þau bjuggu í Efsta-
sundi 25. Það var alltaf mikill
samgangur milli heimilanna og oft
var glatt á hjalla þegar stórfjölskyld-
an kom saman á afmælum eða
stórhátíðum.
Alla tíð var það þannig að börn
hændust mjög að Birni, hann hafði
ávallt tíma fyrir þau.
Síðustu árin voru honum mjög erf-
ið þar sem hann barðist við illvígan
sjúkdóm. Hann dvaldist tvö síðustu
árin á hjúkrunarheimilinu Sóltúni og
naut þar góðrar aðhlynningar. Eft-
irlifandi eiginkona hans dvelur á
sjúkrahúsi og berst við erfið veikindi.
Megi góður Guð blessa minningu
Björns Andersen og votta ég að-
standendum hans mína dýpstu sam-
úð.
Fer að haust og fölnar um í byggðum
frændlið og vinir hjúpast dauðans nótt.
Þeir sem að sveit og búi bundust tryggðum
blunda að verkalokum stillt og rótt.
Harma skal ei þótt hetjur sjónum hverfi
sem heilar gengu að starfi um tún og garð
og hljóðlátt að oss söknuðurinn sverfi.
Sérhver má hlíta því sem koma varð.
(Indriði G. Þorst.)
Sigþrúður Þórhildur
Guðnadóttir.
Elsku Bjössi afi, mig langar að
þakka þér fyrir samfylgdina síðast-
liðin 42 ár, með nokkrum af þeim
minningabrotum sem ég á um þig.
Það er laugardagur fyrir 38 árum,
þú, elsku Bjössi afi, og Anna amma
að passa mig eftir að hafa sótt mig á
gæsluvöllinn sem var þá á Kambs-
vegi. Þá voru gæsluvellir opnir til há-
degis á laugardögum og ég man
ennþá sælutilfinninguna þegar ég
kom inn með ykkur í húsið ykkar í
Efstasundi þennan laugardag og
fékk heitt kakó og settist niður að
horfa á köttinn Felix í Kanasjónvarp-
inu.
Önnur sterk minning frá því ég var
barn, þú, elsku Bjössi afi, með Önnu
ömmu úti í garði að vinna og galdrað-
ir smápening úr eyranu á mér og þú
hlóst mikið að undrunarsvipnum á
stelpunni.
Þegar þú, elsku Bjössi afi, keyrðir
út brauð á sendibílnum fyrir Árbæj-
arbakarí, sem blasti við mér út um
stofugluggann á íbúðinni sem
mamma og pabbi voru nýflutt í, ætli
ég hafi ekki verið sjö ára, þá hljóp ég
út í bakarí eins og fætur toguðu af því
ég vissi alltaf að ég átti von á glaðn-
ingi frá þér. Það voru „endabrauðin“
sem þú gafst mér og hugsa ég oft um
„endabrauðin“ því enn í dag finnast
mér endarnir á normalbrauði og
maltbrauði besti bitinn af brauðinu.
Kannski eru það góðu minningarnar
sem endarnir vekja hjá mér.
Þú gast endalaust fundið eitthvað
BJÖRN
ANDERSEN
www.mosaik.is
LEGSTEINAR
sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR SIGURDÓRSSON,
Akurgerði,
Hrunamannahreppi,
verður jarðsunginn frá Hrunakirkju fimmtu-
daginn 16. desember kl. 14.00.
Tryggvi Guðmundsson, Anna Brynjólfsdóttir,
Ármann Guðmundsson, Hrefna Hannesdóttir,
Hlynur Tryggvason,
Hannes Ármannsson
og Bergný Ármannsdóttir.
Yndislegur eiginmaður minn, sonur, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
RAGNAR BJÖRNSSON,
Efri-Reykjum,
Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík fimmtudaginn 16. desember kl. 13.00.
Ásta Jónsdóttir,
Björn R. Einarsson,
Jón Davíð Ragnarsson,
Björn Ingi Ragnarsson, Lovísa Rut Jónsdóttir,
Jóhann Óskar Ragnarsson,
Ásta Margrét Jónsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
GÍSLI MAGNÚSSON
bóndi,
Vöglum, Skagafirði,
sem lést laugardaginn 4. desember, verður
jarðsunginn frá Miklabæjarkirkju laugardaginn
18. desember kl. 14.00.
Kristín H. Sigurmonsdóttir,
Ingibjörg Gísladóttir, Gunnar Guðmundsson,
Sigurlína Gísladóttir,
Magnús H. Gíslason, Salvör K. Gissurardóttir,
Þorkell Gíslason, Linda C. Vadström,
Þrúður Gísladóttir, Hallgrímur Júlíusson,
Gísli Björn Gíslason,
Sindri Gíslason, Anna B. Garðarsdóttir,
Óðinn Gíslason
og barnabörn.
Þökkum innilega samúð og vinarhug vegna
andláts
GUÐRÚNAR RAGNARS,
Ljósheimum 2.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A-6,
lungnadeild Landspítala Fossvogi.
Kjartan Borg Arnheiður Borg
Stefanía S. Borg Davíð Sch. Thorsteinsson
Sunna Borg Þengill Valdimarsson
Áslaug Borg
Ragna Grönvold
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
föður okkar, afa og langafa,
SIGURÐAR MAGNÚSSONAR
frá Þórarinsstöðum, Seyðisfirði,
áður til heimilis á Kirkjuvegi 57,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrun-
arfólki og öðru starfsfólki Sjúkrahúss Seyðisfjarðar fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Þórunn Sigurðardóttir, Finnur Jónsson,
Magnús Helgi Sigurðsson, Inger Helgadóttir,
Ásdís Sigurðardóttir, Sveinn Valgeirsson,
Ólafur Már Sigurðsson, Sigrún K. Ægisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.