Morgunblaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2004 41
DAGBÓK
Er lífsviðhorfið stjórnandinn?“ er yfir-skrift erindis sem Árelía Eydís Guð-mundsdóttir, lektor við viðskipta- oghagfræðideild HÍ, heldur í dag kl.
12.15 í Odda, stofu 101. Fyrirlestur Árelíu er í röð
vikulegra fyrirlestra á vegum hagfræði- og við-
skiptastofnana HÍ, þar sem kennarar og sérfræð-
ingar kynna niðurstöður rannsókna sinna.
Í þessum fyrirlestri verður fjallað um mikilvægi
lífsviðhorfa fólks en sérstaklega er fjallað um mik-
ilvægi lífsviðhorfa stjórnenda. „Flestir stjórn-
endur geta vitnað um það hversu auðvelt er að
taka ákvörðun um breytingar og hve erfitt það er
að koma þeim í framkvæmd,“ segir Árelía. „Í
breytingaferli verður hlutverk millistjórnenda
enn mikilvægara því þeir eru drifkraftur fram-
kvæmda eða breytinga gagnvart starfsfólki sínu. Í
fyrirlestrinum fjalla ég um hlutverk millistjórn-
enda og áhrif lífsviðhorfa þeirra á árangur í breyt-
ingaferlinu. Farið verður í hvaða þættir það eru
sem geta útskýrt árangursríkari stjórnunarhætti,
sérstaklega í breytingaferli. Hingað til hefur sjón-
um ekki verið nægilega vel beint að því hvernig
lífsviðhorf hefur áhrif á stjórnun en frekar verið
horft til annarra þátta.
Þeir þættir sem eru mikilvægir eru hversu von-
góðir, útsjónarsamir, viljasterkir og bjartsýnir
stjórnendur eru.“
Hversu mikilvæg eru lífsviðhorf stjórnenda og
hvaða áhrif hafa þau á samstarfsmenn?
„Lífsviðhorf, þ.e. hversu vongóð við erum um
framtíðina og hversu raunhæfar lausnir við sjáum
fyrir okkur, eru grundvallaratriði breytinga-
stjórnunar. Í hverju verkefni og sérstaklega í
breytingaferli skipulagsheilda má sjá fyrir
ákveðnar hindranir. Sérstaklega á þetta við þegar
verkefnið er farið af stað eða breytingaferli er
hafið og ekki er séð fyrir endann á því. Þá reynir á
að gera sér grein fyrir því að starfsmenn þurfa
mjög á skýrri framtíðarsýn að halda. Þeir sem eru
vongóðir og útsjónarsamir eru mun líklegri til að
leiða starfsmenn með betri árangri en aðrir.“
Hvernig er hægt að breyta og virkja lífs-
viðhorfin?
„Það er hægt að læra þau lífsviðhorf sem eru
mikilvægust ef við gerum okkur grein fyrir því að
við trúum einhverju og það hefur áhrif á hegðun
okkar og frammistöðu. Ef það sem við trúum um
okkur sjálf og aðra skaðar okkur og árangur okk-
ar í starfi þá er fyrsta skrefið að gera sér grein
fyrir því, síðan hefst vinnan við að endurskapa
lífsviðhorf sín, en það er gert með ýmsum hætti.
Ég hef m.a. sinnt ráðgjöf og kennslu á því sviði
meðfram rannsóknum og eftir áramót kemur út
bók eftir mig um þetta efni.“
Stjórnun | Fyrirlestur um tengsl lífsviðhorfa og árangurs stjórnenda
Viðhorf hafa áhrif á frammistöðu
Árelía Eydís Guð-
mundsdóttir fæddist í
Reykjavík árið 1966.
Hún lauk BA-prófi í
stjórnmálafræði frá HÍ
og MSC í Industrial
relations frá London
School of Economics
and Political Science.
Þá lauk hún dokt-
orsprófi frá félags-
vísindadeild HÍ og
stundaði hluta þess í University of Essex.
Árelía starfaði við stundakennslu við Univers-
ity of Essex og HÍ samhliða námi og einnig við
Viðskiptaháskólann á Bifröst. Þá hefur hún
kennt stjórnun við HR og HÍ auk ýmissa ráð-
gjafarstarfa. Árelía er gift Sigurði Ás Grét-
arssyni og eiga þau tvær dætur.
Dásamleg uppákoma
MIG langar að sýna þakklæti mitt í
orðum fyrir að fá að vera vitni að
dásamlegri uppákomu í gærkvöldi.
Tónleikar til styrktar Eiríki
Vernharðssyni sem voru haldnir í
Háteigskirkju 12. desember voru í
alla staði alveg framúrskarandi góð-
ir. Listamennirnir sem fram komu
voru hver öðrum betri og sýndu við-
brögð áhorfenda það vel. Tekið var
fram að ekkert var æft og engin
generalprufa var höfð, en ekki var
annað að sjá og heyra en að lista-
mennirnir hefðu æft vel og lengi
fyrir tónleikana. Stemningin var
þannig að hægt var að þreifa á
ástúðinni og kærleikanum gagnvart
Eiríki og sonum hans tveimur, sem
og allri hans fjölskyldu, bæði frá
þeim sem komu fram og einnig
þeim sem á horfðu. Ekki er hægt að
ímynda sér betri leið til að undirbúa
sig fyrir jólin heldur en einmitt
svona.
Mínar bestu þakkir fyrir frábæra
stund og óskir um að Eiríkur og
synir hans megi njóta vel og lengi.
Linda.
Stjörnuleit fyrir 29 og eldri
STJÖRNULEIT stendur nú yfir á
Stöð 2. Þar keppir ungt fólk um það
hver verður Idolstjarna ársins 2005.
Sá hængur er þó á að þátttaka í
stjörnuleitinni er bundin við tiltek-
inn aldurshóp (16–28 ára), en mér
er kunnugt um nokkra eldri menn
sem gætu hugsað sér þátttöku í
stjörnuleit sem þessari.
Því tel ég tímabært að koma á fót
annarri stjörnuleit auk þeirrar sem
fyrir er, fyrir þá sem eru 29 ára og
eldri. Ég hef heyrt í sumum þessara
söngvara og eru þeir yfirleitt vel
frambærilegir.
Sjónvarpsstöðvarnar mættu al-
veg taka þessa hugmynd til greina.
Sigurður A. Sigurðsson.
Reiðhjól í óskilum
REIÐHJÓL (demparahjól) fannst
fimmtudaginn 9. desember á hita-
veitustokknum á Bústaðavegi. Upp-
lýsingar í síma 864 2090.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hverafold 1-3 • Foldatorg Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Langar þig í fallegan
bol, topp eða pils?
Komdu þá til okkar
Mikið úrval af
fallegum jólavörum
Hlutavelta | Þessir duglegu krakkar
söfnuðu kr. 2.895 í söfnunina „Göngum
til góðs“ í nafni Rauða krossins. Þau
eru: Hafdís Pálsdóttir, Herjólfsgötu
24, Hafnarfirði, Una Katrín Ellerts-
dóttir, Herjólfsgötu 24, Hafnarfirði, og
Elmar Örn Eiríksson, Strandgötu 7,
Hvammstanga.
85 ÁRA afmæli. Í dag, 15. desem-ber, verður áttatíu og fimm ára
Jónas Magnússon, húsasmíðameistari,
Rauðalæk 32, Reykjavík. Jónas vann
við húsasmíði til ársins 1973, en þá fór
hann að vinna hjá Trésmíðastofu
Reykjavíkurborgar og síðan hjá Mód-
elverkstæði Reykjavíkurborgar. Eig-
inkona hans er Sigríður Þorkelsdóttir.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
ELLEN Kristjánsdóttir og Ey-
þór Gunnarsson halda tónleika í
Grafarvogskirkju kl. 20 í kvöld í
tilefni af útkomu plötunnar Sálm-
ar.
Á efnisskrá tónleikanna eru ís-
lenskir sálmar frá ýmsum tímum í
nýjum útsetningum Ellenar og
Eyþórs. Sér til fulltingis hafa þau
fengið alla þá hljóðfæraleikara
sem leika með henni á diskinum,
en þar má finna jafnt hefðbundin
popp- og djasshljóðfæri og klass-
ískari hljóðfæri eins og selló,
bassaklarinett og fleira. Þá munu
dætur Ellenar þrjár syngja með
henni eitt lag og Ragnheiður Ásta
Pétursdóttir flytja inngangsorð.
„Ég reyni að nálgast þessa tón-
list á lítinn og viðkvæman hátt, að
hafa hana alla minni í sniðum,“
segir Ellen. „Við Eyþór vildum
nálgast hana af virðingu og án til-
gerðar og leita að kjarnanum í
hverju lagi.“
Meðal þeirra sálma sem finna
má á plötu Ellenar er hið sígilda
Heyr himna smiður, sem Kol-
beinn Tumason samdi á 12. öld, en
Þorkell Sigurbjörnsson samdi lag-
ið. „Þetta er eitt viðkvæmasta lag-
ið á plötunni og við tókum það upp
mörgum sinnum hér og þar. Þetta
eru allt svo falleg og viðkvæm lög
sem við eigum saman þjóðin og við
erum heppin að hafa fengið að
gera þetta,“ segir Ellen. „Maður
er búinn að alast upp við þessa
tónlist og hefur kannski verið svo-
lítið feiminn við að nálgast hana,
þar sem hún þykir kannski til-
heyra vissum athöfnum.“
Ellen Kristjánsdóttir syngur sálma í Grafarvogskirkju
Viðkvæm og falleg lög
Morgunblaðið/Árni Sæberg
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111