Morgunblaðið - 15.12.2004, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vinkona lumar á góðu ráði í dag. Hlust-
aðu á það sem hún hefur fram að færa,
jafnvel þó að það kunni að vera eilítið yf-
irdrifið, óhefðbundið eða of nútímalegt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er ekki laust við að þú náir að draga
að þér athyglina í dag. Vertu á varðbergi
gagnvart því og reyndu að vera í þínu
besta pússi!
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú finnur fyrir ævintýraþrá og ættir að
reyna að finna upp á einhverju óvenju-
legu í dag. Keyrðu eitthvað út í buskann,
farðu á veitingastað sem þú þekkir ekki.
Opnaðu upp á gátt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú gætir þurft að ræða málefni tengd
sameiginlegum eignum eða mismunandi
gildismati við einhvern í dag, líkega
konu. Kannski þarftu að læra að vera
ósammála án þess að reiðast.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tunglið er beint á móti þínu merki í dag
og þér finnst einhver vera á móti hug-
myndum þínum fyrir vikið. Reyndu að
vera samvinnufús og mætast á miðri
leið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú gleðst yfir viðleitni þinni til þess að
vera skipulagðari en ella í dag. Þér líður
betur ef þér tekst að minnka ringulreið-
ina í kringum þig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Dagurinn í dag er kjörinn fyrir leiki, af-
þreyingu, samveru með börnum, daður
við elskhuga og listræna útrás. Þig lang-
ar til þess að sleppa fram af þér beislinu
og ráða þér sjálf, vog.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Beindu sjónum þínum að heimilinu og
málefnum fjölskyldunnar í dag og ræddu
málin við foreldri. Einhver heima fyrir
þarf á athygli þinni að halda, gefðu þér
tíma til þess að hlusta.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Búðu þig undir annríki í dag. Stuttar
ferðir, verslun og viðskipti og samræður
við systkini og vini taka allan þinn tíma.
Reyndu að koma miklu í verk núna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú nýtur þess að versla núna, ekki síst
þess að kaupa eitthvað handa sjálfri þér,
steingeit, eða nákomnum frænkum.
Smásölumeðferð er gott ráð þegar
harðnar á dalnum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Tunglið er í merki vatnsberans í dag.
Það færir þér aukinn kraft og gerir þig
þar að auki tilfinningasamari en ella. Við
því er ekkert að gera.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert kraftmikill í samskiptum við vini,
fiskur. Fólki finnst þú sýna því skilning
núna og bregst því við þér á jákvæðan
hátt.
Stjörnuspá
Bogmaður
Afmælisbarn dagsins:
Fólk laðast að þér. Þú ert glaðvær og
hressandi og bjartsýnin er lykilatriði í vel-
gengni þinni. Þú býst við hinu besta og
færð það jafnan. Ein ástæða þess að fólki
líkar við þig er sú að þú lætur því líða
vel, sem er sjaldgæfur eiginleiki. Búðu
þig undir aukna einveru á næsta ári.
Frances Drake
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. O-O b5 6. Bb3 Bb7 7. c3 Rxe4 8.
d4 Ra5 9. Bc2 exd4 10. Rxd4 c5 11.
Rf5 d5 12. a4 Dd7 13. f3 Rd6 14. He1+
Kd8 15. Re3 Rdc4 16. axb5 axb5 17.
Bf5 Rxe3 18. Bxd7 Rxd1 19. Bxb5 Bd6
20. Hxd1 Kc7 21. Rd2 Bc6 22. Bd3
Hhe8 23. c4 dxc4 24. Rxc4 Rxc4 25.
Hxa8 Hxa8 26. Bxc4 f6 27. Be3 Hb8
Staðan kom upp á bandaríska
meistaramótinu sem lauk fyrir
skömmu í San Diego. Hikaru Nikam-
ura (2620) hafði hvítt gegn Stephen
Mohammad (2387) en sá síðarnefndi
lék hræðilega af sér í síðasta leik í
stöðu sem var steindautt jafntefli. 28.
Hxd6! og svartur gafst upp þar sem
hann verður manni undir eftir 28...
Kxd6 29. Bf4.
Hvítur á leik.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 laskaðir,
8 málmur, 9 bakteríu,
10 húsdýr, 11 lóga,
13 smámynt, 15 kalt,
18 logið, 21 stormur,
22 úthluta, 23 gróða,
24 ofsalega.
Lóðrétt | 2 eyja, 3 tilbiðja,
4 áreita, 5 sér eftir,
6 flasa, 7 heitur, 12 gljúf-
ur, 14 þangað til, 15 nokk-
uð, 16 gera auðugan,
17 kögurs, 18 dapra,
19 skyldmennisins,
20 spilið.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 hagur, 4 þarfs, 7 fljóð, 8 næðis, 9 agg, 11 rits,
13 gróa, 14 ætlar, 15 slær, 17 áköf, 20 las, 22 koddi, 23 kafli,
24 súrna, 25 ranns.
Lóðrétt | 1 hafur, 2 grjót, 3 ræða, 4 þung, 5 riðar, 6 sessa,
10 gilda, 12 sær, 13 grá, 15 sekks, 16 ældir, 18 kæfan,
19 fliss, 20 lima, 21 skær.
Tónlist
Fella- og Hólakirkja | Jólatónleikar kirkju-
kórs Fella- og Hólakirkju kl. 20. Kór kirkj-
unnar syngur jólasálma undir stjórn söng-
stjóra og organista kirkjunnar, Lenku
Mátéovu. Aðgangur ókeypis og bjóða kór-
félagar tónleikagestum upp á piparkökur
og súkkulaði eftir tónleikana.
Grafarvogskirkja | Ellen Kristjánsdóttir
heldur tónleika í Grafarvogskirkju í kvöld í
tilefni af útkomu plötunnar Sálma. Sér til
fulltingis hefur hún alla þá tíu hljóðfæra-
leikara sem leika með henni á plötunni. Auk
þess munu dætur Ellenar þrjár syngja með
henni eitt lag. Forsala aðgöngumiða er í
Skífunni.
Grand Rokk | Stranger heldur tónleika á
Grand Rokk kl. 21 í kvöld ásamt Togga og
KGB.
Hellirinn í Tónlistarþróunarmiðstöðinni |
Raftónlistarkvöld/fusion kl. 20. Fram
koma: Frank Murder, Captein Wondership
og Anonymous vs. New Milk sem verður
með sjónarspil. 500 kr. inn, ekkert aldurs-
takmark.
Fríkirkjan í Reykjavík | Kór Kvennaskól-
ans í Reykjavík heldur aðventutónleika í
Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 20. Dagskráin er
aðallega helguð jólalögum úr ólíkum áttum.
Stjórnandi er Margrét Helga Hjartardóttir
og píanóleikari Tómas Guðni Eggertsson.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Víðistaðakirkja | Jólatónleikar Kórs Flens-
borgarskólans hefjast kl. 20.
Myndlist
Alliance Francaise | Marie-Sandrine Bej-
anninn – málverk.
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk.
Gallerí Banananas | Hrafnkell Sigurðsson –
Verkamaður / Workman.
Gallerí I8 | Kristján Guðmundsson – Arki-
tektúr.
Gallerí Tukt | Fjölbreytt skúlptúrverk átta
myndlistarnema.
Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir – Efn-
ið og andinn.
Hafnarborg | Jólagjafir hönnunarnema í
Iðnskólanum í Hafnarfirði til þjóðþekktra
Íslendinga.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist: um
veruleikann, manninn og ímyndina.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Ný ís-
lensk gullsmíði í austursal, Salóme eftir
Richard Strauss í vestursal og úrval verka
úr einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar
og Ingibjargar Guðmundsdóttur á neðri
hæð safnsins.
Listasafn Reykjanesbæjar | Sýning á olíu-
verkum úr safneigninni þar sem náttúra Ís-
lands er viðfangsefnið. Má þar m.a. sjá verk
eftir gömlu meistarana Kjarval, Jón Stef-
ánsson og Þórarin B. Þorláksson. Sýningin
er opin alla daga frá 13–17.30 og stendur til
jóla.
Listasafn Rvk. Ásmundarsafn | Maðurinn
og efnið. Yfirlitssýning á verkum Ásmund-
ar Sveinssonar.
Listasafn Rvk. Hafnarhús | Grafísk hönn-
un á Íslandi. Erró – Víðáttur.
Listasafn Rvk. Kjarvalsstaðir | Textillist
2004 – alþjóðleg textílsýning. Myndir úr
Kjarvalssafni.
Listmunahúsið Síðumúla 34 | Verk Valtýs
Péturssonar.
Lóuhreiður | Sigrún Sigurðardóttir – Gróð-
ur og grjót.
Norræna húsið | Vetrarmessa.
Nýlistasafnið | Ráðhildur Ingadóttir – Inni í
kuðungi, einn díll. Björk Guðnadóttir – Ei-
lífðin er líklega núna.
SÍM-salurinn | Sigurborg Jóhannsdóttir
sýnir myndir unnar í ull.
Skólavörðustígur 20 | Gunnella sýnir ný
málverk.
Suzuki-bílar | Björn E. Westergren –
myndir málaðar í akrýl og raf.
Thorvaldsen | Linda Dögg Ólafsdóttir –
–sKæti–
Tjarnarsalur Ráðhúss | Ketill Larsen – Sól-
stafir frá öðrum heimi.
Listasýning
Handverk og hönnun | Jólasýningin „Allir
fá þá eitthvað fallegt …“
Bækur
Grafarholtssókn | Fyrsta menningarvaka
sóknarinnar verður haldin í þjón-
ustusalnum, Þórðarsveigi 3, Grafarholti kl.
20. Þórarinn Eldjárn, Einar Már Guðmunds-
son og Sigmundur Ernir Rúnarsson lesa úr
verkum sínum. Aðgangur ókeypis, boðið
upp á kaffi og piparkökur.
Söfn
www.skjaladagur.is | Þjóðskjalasafn Ís-
lands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og
héraðsskjalasöfn um land allt hafa samein-
ast um vefinn www.skjaladagur.is þar sem
er að finna fróðleik og sýningu um árið
1974 í skjölum.
Þjóðminjasafn Íslands | Þvörusleikir kem-
ur í heimsókn kl. 13. Þá eru íslensku jóla-
sveinarnir komnir á jólasveinadagatal sem
fæst í safninu. Jólasveinakvæði Jóhann-
esar úr Kötlum er einnig í dagatalinu. Veit-
ingastofa safnsins býður fjölþjóðlegar jóla-
kræsingar. Kynntir eru japanskir og pólskir
jóla- og nýárssiðir auk íslenskra.
Mannfagnaður
Reykjavíkurdeild SÍBS | Reykjavíkurdeild
SÍBS verður með árlega aðventuhátíð sína
fimmtudaginn 16. desember kl. 17 í SÍBS-
húsinu, Síðumúla 6.
Fréttir
Bókatíðindi 2004 | Númer mið. 15. des-
ember er 94147.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Jólaút-
hlutun verður dagana 14., 15., 16., 20. og 21.
des. kl. 14–17 á Sólvallagötu 48. Svarað er í
síma 551-4349 sömu daga kl. 11–16 og tek-
ið á móti varningi og gjöfum. Netfang:
mnefnd@mi.is.
Málstofur
Kennaraháskóli Íslands | Opin málstofa
verður í KHÍ kl. 16.15. Umfjöllun um áhuga-
verðar bækur sem koma út fyrir þessi jól
ásamt kynningu á vefjunum Bókaormar
(bokaormar.khi.is) og BarnUng (barn-
ung.khi.is) sem Kennaraháskóli Íslands
heldur úti til þjónustu við kennara.
Fundir
Krabbameinsfélagið | Stuðningshópur
kvenna með krabbamein í eggjastokkum
heldur aðventufund í húsi Krabbameins-
félagsins, Skógarhlíð 8 í Reykjavík kl. 17. Á
dagskrá er m.a. upplestur, tónlistaratriði
og kynning á nýjum bókum. Heitt súkkulaði
og smákökur á boðstólum. Aðstandendur
velkomnir á samkomuna.
Maður lifandi | Hláturkætiklúbburinn held-
ur hláturjógafund í heilsumiðstöðinni Mað-
ur lifandi, Borgartúni 24, kl. 17.30–18.30.
Kristján Helgason og Ásta Valdimarsdóttir
stjórna æfingunum og Ingi Vilhjálmsson
leikur jólalög á píanó. Aðgangseyrir er 500
kr. en frítt fyrir börn.
Kynning
Iða | Menn frá tæknideild Lögreglunnar í
Reykjavík kynna hvernig vettvangsrann-
sókn fer fram milli kl. 16.30 og 18 í IÐU,
Lækjargötu. Einnig verður bókin Norræn
sakamál 2004 kynnt.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Fréttir
í tölvupósti
FÁGAÐAR kvenraddir
munu hljóma af krafti í
Hallgrímskirkju í kvöld þeg-
ar Gospelsystur Reykjavík-
ur, Stúlknakór Reykjavíkur
og Vox feminae halda að-
ventutónleika undir stjórn
Margrétar J. Pálmadóttur.
Tónleikarnir hefjast kl.
20.30, en efnisskráin er
afar fjölbreytt. Þar er m.a.
að finna verk eftir Bach,
Brahms, Hugo Distler,
Haydn, Schubert, Will-
cocks, Perti, Felix Mendels-
sohn, Bartholdy, Pollock,
og Dubinsky.
Á tónleikunum mun Ást-
ríður Haraldsdóttir leika á
orgel, Hjörleifur Valsson
fiðluleikari leiðir strengja-
sveit sem auk hans er
skipuð þeim Stefaníu
Ólafsdóttur á víólu, Helgu
Steinunni Torfadóttur á
fiðlu og Örnólfi Kristjáns-
syni á selló. Hanna Björg
Sigurjónsdóttir syngur ein-
söng með kórunum.
Margrét J. Pálmadóttir, stofnandi
allra kóranna þriggja, hefur stjórnað
þeim frá upphafi, en þeir æfa allir í
Domus Vox. Margrét segir áhorfendur
mega eiga von á miklum hátíðleik og
stórkostlegum einsöng Hönnu Bjarkar
Guðjónsdóttur sópransöngkonu. „Á bak
við allan þennan söng slá 200 hjörtu.
Það finnst mér merkilegt,“ segir Mar-
grét. „Af minni hálfu eru þetta þakk-
lætistónleikar og við endum tónleikana
á því að syngja nýjan texta eftir sr. Ólaf
Jóhannsson í Grensáskirkju. Það eru
tíu ár liðin síðan ég hélt fyrstu tón-
leikana með kvennakór í Hallgrímskirkju
og að þessu sinni fagna með mér 80
stúlkur og 120 konur, alls tvö hundruð
konur á aldrinum sjö til sextíu ára.“
Margrét segir tónleikana vera sér af-
ar mikils virði og hátíðleikinn verði í
fyrirrúmi. „Mér finnst alltaf toppurinn
vera sex kvenradda flutningur á Heims
um ból með klukknaspili og strengja-
sveit. Þá eru jólin komin til mín.“
Hátíðlegar kvenraddir í Hallgrímskirkju
Miðar eru til sölu í Domus Vox,
Skúlagötu 30, sími 511 3737 milli
16 og 18 og hjá kórfélögum í síma
861 2668.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos