Morgunblaðið - 18.12.2004, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 37
MENNING
GLÍMAN við Glám er nafnið á geisla-
diski með gítartónlist eftir Gunnar
Reyni Sveinsson. Þar er að finna Ís-
lenska rapsódíu, Hommega Django
Reinhardt, Ölerindi og fleira.
Fyrst á diskinum er einstaklega
skemmtilegur lagaflokkur, Undir
regnboganum, sem
áður heyrðist í
heimildarmynd
Ríkissjónvarpsins,
Svartur sjór af síld.
Svipuð lögmál
gilda um tónlist við
heimildarmynd og
kvikmyndatónlist;
hún verður að vera
þægileg áheyrnar
og skapa stemn-
ingu, og á það svo
sannarlega við um
tónsmíðar Gunnars
Reynis. Lög hans
eru fallega lagræn,
hlýleg og minna á
köflum á suðræna
gítartónlist. Þau
eru frjálsleg og
margbrotin og
stundum hefur maður á tilfinning-
unni að verið sé að leika af fingrum
fram.
Annað á geisladiskinum er kannski
ekki alveg eins aðgengilegt, Homm-
ega Django Reinhardt er talsvert
innhverfara, draumkenndara, jafnvel
súrrealískt og maður veit aldrei hvað
kemur næst. Innra samræmi tónlist-
arinnar er þó sterkt og það sem ger-
ist er alltaf rökrétt eftir á. Blik norð-
urljósanna, sem er annað lagið í
þessum flokki, er sérlega magnað og
seiðandi ískaldir lokatónarnir á efsta
tónsviðinu koma verulega á óvart.
Svipaða sögu er að segja um hug-
vitssamleg tilbrigðin í Ölerindi, einnig
Íslenska rapsódíu og Dag skal að
kvöldi lofa. Það síðastnefnda gerir
mestu kröfurnar til hlustandans,
þetta er frumleg tónsmíð með óvænt-
um uppákomum og skreytt alls konar
blæbrigðum. Geisladiskurinn er af-
rakstur fjórtán ára samvinnu Gunn-
ars Reynis og Símonar H. Ívarssonar
gítarleikara, en Símon mun hafa að-
stoðað tónskáldið við að aðlaga verkin
eiginleikum gítarsins. Greinilegt er
að það hefur tekist framar vonum;
tónlistin er gítarvæn og möguleikar
hljóðfærisins eru nýttir ágætlega.
Símon spilar glæsilega, leikur hans er
nákvæmur og vel mótaður; túlkunin
er lifandi, tilfinningarík og þrungin
viðeigandi andstæðum. Innkoma
gestagítarleikarans Jörgens Brilling
er ennfremur prýðileg.
Þetta er frábær geisladiskur og án
efa kærkomin jólagjöf handa öllum
sem unna nútímatónlist.
Framar vonum
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Gítarverk eftir Gunnar Reyni Sveinsson.
Símon H. Ívarsson leikur á gítar; gesta-
hljóðfæraleikari er Jörgen Brilling gít-
arleikari. Smekkleysa 2004
Glíman við Glám
Símon H.
Ívarsson
Gunnar Reynir
Sveinsson
Jónas Sen
BESTA SPILIÐ
FYRIR ÞÁ SEM NENNA AÐ HUGSA
Carcassonne hefur broti› bla› í sögu bor›spila. Í sta› fless a›
spilinu sé ra›a› upp í byrjun, er a›eins lag›ur ni›ur einn lítill
reitur(ferningur). fiátttakendur ra›a sí›an sjálfir upp spilinu me›
flví a› draga ferninga, sem byggja upp spilabor›i› og spila jafn-
framt út sínum förunautum á bor›i›. Reglurnar eru einfaldar og
fljótlær›ar mi›a› vi› d‡pt spilsins. Í hverju spili er uppi n‡ sta›a
og möguleikarnir eru síst færri en í skák.
Ómissandi vi›bót fyrir alla a›dáendur
Carcassonne, me› fjölmargar spennandi
og áhættusamar n‡jungar. Kóngar, krár
og kirkjur er vi›auki vi› grunnspili›.
• Margver›launa› spil
• Eitt mest selda spili›
• Spil ársins í Evrópu
• Einfaldar reglur
Sigurvegari Íslandsmótsins
í Carcassonne 2004,
Georg Haraldsson (í mi›ju),
fór á heimsmeistaramóti› í
fi‡skalandi í október s.l. www.spil.is
Kóngar, krár og kirkjur