Morgunblaðið - 18.12.2004, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 18.12.2004, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 51 UMRÆÐAN Ný kennslumynd í hestamennsku Nýja kennslumyndin „Á hestbaki“ eftir Eyjólf Ísólfsson tamningameistara er komin. Markviss kennsla um tamningu og þjálfun sem nýtist öllu hestafólki Eyjólfur kynnir myndina í Ástund laugardag og sunnudag milli kl 15:00 og 17:00 Allir velkomnir Háaleitisbraut 68 s 568 4240 astund@astund.is www.astund.is Jólagjöf hestamannsins Síðumúla 11 108 Reykjavík Sími 568 6899 Woodmaster Kit „Limited edition“ Allt í einum kassa Juðari, rafhlöðuborvél 14, 4V, stingsög, vinnuborð ásamt fylgihlutum. Jólatilboðsverð 9.900 TÍMASETNING atburða getur ráðið hvort einstökum atvikum sögunnar er lýst sem byltingu eða eðlilegri þróun. Nú er að baki áfangi í uppbyggingu íþróttamannvirkja, sem sagan mun vís- ast vitna til sem tímamóta, þar sem framsýni og stað- festa mörkuðu nýja stefnu í byggingu knattspyrnumann- virkja á Íslandi. Á árinu 2002 var stofnaður starfs- hópur um framtíð- arskipulag á Ás- garðssvæðinu. Í vinnu starfshópsins var m.a. fjallað um aðstöðu Stjörnunnar, staðsetningu knatthúss, stúkubyggingu, að- komu að svæðinu, lýsingu, bætta aðstöðu núverandi íþrótta- miðstöðvar, skólalóðir og skipulag almennt. Fram komu þau sjón- armið Stjörnunnar að höf- uðstöðvar félagsins ættu að vera við Ásgarð til framtíðar og því eðlilegt að leita leiða til að bæta aðstöðu félagsins þar eins og kost- ur væri. Lenging keppnistímabils og aukið álag á knattspyrnuvelli kall- ar á nýjar lausnir. Þegar hug- myndir um að leggja keppnisvöll Stjörnunnar gervigrasi litu dags- ins ljós haustið 2003 heyrðust raddir sem líktu þessum hug- myndum við byltingu í besta falli ef ekki hreinum svikum við knatt- spyrnuíþróttina. Eftir ítarlega um- fjöllun var tekin ákvörðun um að völlurinn skyldi lagður gervigrasi af fullkomnustu gerð og til við- bótar skyldi byggður æfingavöllur auk tveggja sparkvalla. Þá þegar var hafin bygging vallarhús og stúku, löngu tímabær framkvæmd sem fullbúin mun bæta úr brýnni þörf fyrir aukna búningsaðstöðu auk aðstöðu fyrir áhorfendur eins og hún gerist best. Fyrri áfangi hinna glæsilegu knattspyrnumannvirkja var vígður við hátíðlega athöfn 26. ágúst sl. Viðbrögð þeirra sem notað hafa völlinn til æfinga og keppni nú seinni part sumars og í haust gefa tilefni til bjartsýni og allar raddir um byltingu eða svik löngu hljóðn- aðar. Aðstaða knattspyrnudeildar Stjörnunnar gjörbreytist nú til hins betra, þar sem stærstur hluti æfinga deildarinnar mun nú fara fram á einum stað yfir vetrartím- ann. Þá munu grunnskólar bæj- arins njóta góðs af þessu framtaki. Skammt stórra högga á milli Enn var blásið til hátíðar í Garða- bæ hinn 10. okt., þegar Mýrin, glæsileg íþróttamiðstöð við Skóla- braut var vígð. Þar er stórt íþróttahús sem rúmar tvo hand- boltavelli auk aðstöðu til iðkunar margra annarra íþróttagreina. Salnum er mögulegt að skipta í tvennt. Þá er í húsinu lítil kennslusundlaug. Árið 1998 var skipaður sameig- inlegur starfshópur Stjörnunnar og Garðabæjar um könnun á grundvelli byggingar nýs íþrótta- húss í Hofsstaðamýri. Meginnið- urstaða starfshópsins var að brýn þörf væri á nýju íþróttahúsi í Garðabæ. Starfshópurinn taldi nauðsynlegt að í húsinu væri mögulegt að leika samtímis á tveimur löglegum handknatt- leiksvöllum. Undirbúningsnefnd um byggingu hússins var skipuð árið 2000. Um tíma var töluverð umræða um hvort byggja ætti lítið íþróttahús. UMF Stjarnan lagði mikla áherslu á að byggt yrði stórt íþróttahús og varð það nið- urstaðan. Mýrin þjónar Hofsstaðaskóla og Fjölbrautaskólanum í Garðabæ auk þess að vera kærkomin viðbót við æfingaaðstöðu UMF Stjörn- unnar, en æfingatímum félagsins fjölgar verulega með tilkomu hússins. Um leið rýmkast um starfsemi Flataskóla og Garða- skóla í Ásgarði og um leið um þann hluta starfsemi Stjörnunnar sem þar er. Ein Stjarna einn Garðabær Ungmennafélagið Stjarnan hefur frá stofnun árið 1960 notið þess að vera eina fjölgreinaíþróttafélagið í Garðabæ sem rekur innan sinna vébanda fjöbreytt starf í mörgum deildum. Félagið hefur með dygg- um stuðningi bæjaryfirvalda aukið framboð sitt jafnt og þétt og rek- ur nú þróttmikið íþróttastarf í átta deildum. Þegar litið er til þeirra skipu- lagshugmynda sem að líkindum munu ráða uppbygginu í Garðabæ næstu tvo áratugi er ljóst að íbú- um bæjarins mun fjölga í u.þ.b. 20.000 á örfáum árum. Nærri læt- ur að bærinn tvöfaldist að flat- armáli á þessu tímabili og vega- lengdir milli bæjarhluta verða meiri en við þekkjum í dag. Það kemur í hlut aðalstjórnar UMF Stjörnunnar að styrkja inn- viði félagsins og skapa þá liðsheild sem stórt íþróttafélag eins og Stjarnan þarf á að halda. Eftir því sem bærinn stækkar og starfsemi félagsins dreifist á fleiri staði er mikilvægara en nokkru nauðsyn- legt að efla innra starf og tengsl milli deilda félagsins. Við blasir að þarfir UMF Stjörnunnar fyrir aðstöðu til íþróttaiðkunar í nútíð og framtíð verða ekki leystar á einum stað. Sú stefna bæjaryfirvalda í Garða- bæ að byggja íþróttahús við hvern grunnskóla í bænum gefur félag- inu tækifæri til að veita íbúunum þjónustu í tengslum við skólastarf og líklegt er að samþætting skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs aukist mjög á komandi árum. Um leið er nauðsynlegt að greiðar al- menningssamgöngur milli bæj- arkjarna og íþróttamiðstöðvanna í bænum verði tryggðar. UMF Stjarnan fagnar þeirri miklu uppbygginu íþróttamann- virkja sem orðið hefur í Garðabæ á undanförnum misserum og þeim hugmyndum sem uppi eru um að byggja sérhannað fimleikahús við nýjan Sjálandsskóla en í því húsi horfir félagið til fullkominnar að- stöðu til iðkunar allra greina fim- leika. Snorri Olsen og Páll Grétarsson fjalla um íþróttamannvirki í Garðabæ ’UMF Stjarnan fagnarþeirri miklu uppbygg- ingu íþróttamannvirkja sem orðið hefur í Garða- bæ á undanförnum misserum …‘ Snorri er formaður UMF Stjörn- unnar í Garðabæ og Páll er varaform. og framkvæmdastjóri félagsins. Páll Grétarsson Bylting í Garðabæ Snorri Olsen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.