Morgunblaðið - 18.12.2004, Blaðsíða 88
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
Opi› í dag laugardag
frá kl. 11-16
SKIPULAGI sölu- og
markaðsmála Árvak-
urs hf., útgáfufélags
Morgunblaðsins, hefur
verið breytt og hefur
Margrét Kr. Sigurðar-
dóttir viðskiptafræð-
ingur verið ráðin for-
stöðumaður nýs sölu-
og markaðssviðs. Aug-
lýsingadeild, áskriftar-
deild og markaðsdeild
heyra nú undir eitt og
sama sviðið, sölu- og
markaðssvið. Mark-
miðið meðal annars
með þessum breyting-
um er að samræma allt
sölu- og markaðsstarf
fyrirtækisins og auka áherslu á þjón-
ustu við viðskiptavini.
Margrét hefur að undanförnu
starfað á ritstjórn Morgunblaðsins og
haft umsjón með Tímariti Morgun-
blaðsins, ásamt Valgerði Jónsdóttur,
auk þess að sinna starfi rekstrar-
stjóra ritstjórnar. Mar-
grét bar ábyrgð á mark-
aðsmálum Morgun-
blaðsins 1992 til miðs
árs 2003. Þá var hún
ábyrgðarmaður tímarit-
anna Lifunar og M.
Margrét lauk cand.oe-
con.-prófi frá Háskóla
Íslands vorið 1992 og
stundaði MS-nám í HÍ
veturinn 1999–2000.
Hún var formaður Fé-
lags viðskiptafræðinga
og hagfræðinga 2000–
2004, sat í verkefna-
stjórn Auður í krafti
kvenna 1999–2003, í
verkefnastjórn Nýsköp-
unar – samkeppni um viðskiptaáætl-
anir frá 1998, er í háskólaráði
Tækniháskóla Íslands og situr í
stjórn Frumkvöðlafræðslunnar.
Margrét er gift Jóni Þórissyni, að-
stoðarforstjóra Íslandsbanka, og eiga
þau eina dóttur, Helenu Margréti.
Ráðin forstöðu-
maður sölu- og
markaðssviðs
Margrét Kr.
Sigurðardóttir
ENGIN viðbrögð höfðu borist síð-
degis í gær frá Bandaríkjunum við
ákvörðun íslenskra stjórnvalda um
að veita Bobby
Fischer dvalar-
leyfi, svo Davíð
Oddssyni utan-
ríkisráðherra
væri kunnugt um.
„Út af fyrir sig
var það okkar
ákvörðun að
bregðast við
beiðni þessa
manns. Ég tel að
þetta sé íslensk ákvörðun, fyrst og
fremst,“ sagði Davíð.
Sérstök lög voru sett hér á landi á
sínum tíma vegna alþjóðlegs við-
skiptabanns Sameinuðu þjóðanna á
Júgóslavíu. Þar varðaði það allt að
tveggja ára fangelsi að eiga viðskipti
við Júgóslavíu á þessum tíma og
brjóta þannig viðskiptabann SÞ.
Bandaríkjamenn töldu Fischer hafa
brotið gegn banninu þegar hann fór
til Júgóslavíu 1992 og tók þátt í al-
þjóðlegu skákmóti. „Þetta brot hans
myndi vera talið fyrnt að íslenskum
lögum,“ sagði Davíð. „Ef menn velta
fyrir sér framsali og skyldu til að
framselja menn, þá er sá fyrirvari í
því að við erum ekki skyldugir að
framselja menn nema brotið sem
framsalskrafan beinist að sé jafn-
framt brot gegn íslenskum lögum.“
Davíð sagði því ekki rétt, sem
haldið hefði verið fram, að kæmi
krafa um framsal ætti sjálfkrafa að
verða við henni. „Íslensk yfirvöld
hefðu leyfi til að leggja á það mat
hvort þessi athöfn hans væri brotleg
samkvæmt íslenskum lögum. Hún
myndi ekki teljast það, að minnsta
kosti ekki lengur.“
Aðspurður sagði Davíð að það
væri málefni Útlendingastofnunar
að ákveða hvort unnusta Bobby
Fischers fengi einnig dvalarleyfi hér
á landi. „Ég ímynda mér að menn
myndu ekki hafa mikla fyrirstöðu í
því efni,“ sagði Davíð.
„Það er stórkostlegt“
„Bobby Fischer hefur tekið boði
Íslendinga,“ sagði John Bosnitch,
stuðningsmaður Fischers, á blaða-
mannafundi í Tókýó í Japan í gær
sem Guðmundur Hermannsson,
blaðamaður Morgunblaðsins, sat.
Þórður Ægir Óskarsson, sendi-
herra í Tókýó, afhenti lögmanni
Fischers formlega í gærmorgun bréf
Útlendingastofnunar þar sem fram
kemur að Fischer fái dvalarleyfi á
Íslandi.
Miyako Watai, heitkona Fischers,
sagði að þegar hún hefði tilkynnt
honum um ákvörðun íslenskra
stjórnvalda hefði hann sagt: „Er það
virkilega? Það er stórkostlegt.“
Davíð Oddsson utanríkisráðherra
Brot Fischers fyrnt að
íslenskum lögum
Davíð Oddsson
Fischer þiggur/10
Fischer hefur tekið
boði Íslendinga, að
sögn stuðningsmanns
BJARNI Ármannsson, forstjóri
Íslandsbanka, segir að íslensku
fjármálakerfi hafi miðað aftur á
bak á þessu ári. „Vaxtartækifærin
[Íslandsbanka hér á landi] liggja
einkum í íbúðalánum og samþætt-
ingu banka og tryggingaafurða. Þá
liggja tækifæri í frekari hagræð-
ingu fjármálakerfisins, en það er
ómögulegt að segja til um hvað
framtíðin kann að bera í skauti
sér. Í sjálfu sér hefur okkur verið
að miða frekar aftur á bak en
áfram á þessu ári með frekari ein-
angrun sparisjóðakerfisins og
framsókn Íbúðalánasjóðs.“
Bjarni segir í samtali við blaðið
í tilefni af kaupum Íslandsbanka á
BNbank í Noregi að kaupin hafi
ekki verið gerleg nema með stuðn-
ingi hluthafa Íslandsbanka. „Við
fórum í hlutafjárútboð í lok nóv-
ember þar sem við sóttum ríflega
10,5 milljarða út á markaðinn og
það er ljóst að dýpt íslenska hluta-
bréfamarkaðarins hefur vakið
mikla athygli í Noregi.“
Fjármálakerf-
inu hefur mið-
að aftur á bak
Dýpt markaðarins/20
ÞAÐ ER ekki bara mannfólkið sem þarf að vera hreint
og strokið fyrir jólin heldur líka þarfasti þjónn nútíma-
mannsins. Mikil örtröð er víða við bílaþvottastöðv-
arnar þessa dagana og á þvottastöðinni í Sóltúni hefur
mikið verið að gera og hafa farið þar í gegn 550 bílar á
dag þegar mest er en um tíu mínútur tekur að þvo
hvern bíl. Í gær voru miklar annir í Sóltúninu og náði
þá biðröðin eftir jólaþvottinum alla leið út að Nóatúni.
Morgunblaðið/Kristinn
Allir hreinir og stroknir fyrir jólin
TVÖ myndverk eftir Sölva Helgason (1820–1895),
sem þjóðþekktur varð undir nafninu Sólon Ís-
landus, eru nú til sölu í Galleríi Fold við Rauð-
arárstíg. Talið er að verkin séu frá því um 1860.
Þetta eru blómamyndir, þar sem vangi lista-
mannsins er teiknaður í mikið blómamynstur,
með blandaðri tækni, eins og það er kallað í dag.
Tryggvi P. Friðriksson í Fold segir verkin
koma úr einkaeigu, en afar sjaldgæft sé að verk
eftir Sölva komi á markað. „Þetta eru dæmigerðar
myndir fyrir Sölva og ákaflega vel gerðar. Hann
hefur verið hreinn snillingur í teikningu og gerði
þetta allt fríhendis. Þetta eru sérkennilegar
myndir, og Sölvi telst til einfaranna, eða næfist-
anna í myndlistinni. Hann hefur áreiðanlega aldr-
ei fengið neina leiðsögn.“
Sölvi Helgason fæddist á Fjalli í Sléttuhlíð í
Skagafirði árið 1820. Foreldrar hans voru fátækir;
föður sinni missti hann fjögurra ára og móður sína
fjórtán ára. Sex ára var honum komið í fóstur, og
tíu ára var hann orðinn niðursetningur sem flutt-
ist bæ af bæ eftir því sem ytri aðstæður kröfðust.
Upp úr tvítugu hóf Sölvi ævilanga gönguferð sína
um Ísland; hann ferðaðist milli bæja, sagði sögur
og fréttir og sinnti list sinni. Sölvi var sakaður um
ýmiss konar pretti, eins og þjófnað og fölsun á
vegabréfi, og árið 1854 var hann sendur í betr-
unarhús í Kaupmannahöfn til að afplána fjögurra
ára dóm fyrir stuld á buxum prests nokkurs og
tveimur bókum. Hann lést árið 1895.
Að sögn Tryggva eru það einkum Þjóðminja-
safn og Þjóðskjalasafn sem eiga myndverk eftir
Sölva Helgason. „Þetta eru myndir sem ættu
kannski best heima á safni, því þær eru mikið fá-
gæti.“ Hann segir myndirnar metnar á um 6–700
þúsund krónur hvora.
Myndirnar sem hér um ræðir voru meðal ann-
ars sýndar á sýningu í Hafnarborg á níunda ára-
tug síðustu aldar. Fjölmargir síðari tíma lista-
menn hafa vottað Sölva Helgasyni virðingu sína í
ljóðum, sögum, leikritum, myndlist og tónlist.
Sjaldséður Sólon Íslandus í sölu
Morgunblaðið/Golli
MIKLIR kuldar voru víða á
landinu í gær. Fór frostið tals-
vert yfir 20 gráður á hálendinu
og 18 stiga frost mældist við
Mývatn.
Starfsmenn við Kárahnjúka-
virkjun reyndu að láta kuldann
ekki á sig fá í gær. Oddur
Friðriksson yfirtrúnaðarmað-
ur sagði þegar rætt var við
hann í gærkvöldi að komið
væri 22 til 23 gráða frost niðri
í gili.
„Sem betur fer er lygnt og
gott veður, en það má ekki
hreyfa mikið vind, þá fer þetta
að bíta. Mönnum er auðvitað
kalt en það er stillt og fallegt
veður. Fegurra verður það
ekki á fjöllum,“ sagði hann.
Veðurstofan spáir að nokkuð
muni draga úr frostinu í dag.
Frost-
harka við
Kára-
hnjúka