Morgunblaðið - 09.12.2005, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ER FÆDDUR!
ÍSLENSKU SAKAMÁLASÖGUNNAR
KRÓNPRINS
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
4
9
1
5
KROSSTRÉEFTIR JÓN HALL STEFÁNSSON
Páll Baldvin Baldvinsson, DV
„HÖRKUSPENNANDI...
GLÆSILEG SAKAMÁLASAGA“
Kolbrún Bergþórsdóttir, Blaðið
„KROSSTRÉ ER SÉRLEGA VEL SKRIFUÐ BÓK“
Silja Aðalsteinsdóttir, TMM
„SAGAN ER ALGER NAUTN OG MAÐUR
ÖFUNDAR BARA ÞÁ SPENNUFÍKLA
SEM EIGA EFTIR AÐ LESA HANA“
7. SÆT
I
EYMUN
DSSON
SKÁLD
VERK
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær ís-
lenska ríkið til að greiða Valgerði H.
Bjarnadóttur, fyrrum framkvæmda-
stjóra Jafnréttisstofu, 6 milljónir
króna í bætur vegna starfsloka
hennar. Segir Hæstiréttur, að Árni
Magnússon, félagsmálaráðherra,
hafi bakað ríkinu skaðabótaábyrgð
með því að hafa með eindregnum yf-
irlýsingum á fundi með Valgerði í
raun knúið hana til að fallast á að
láta af starfinu og þannig stytt sér
leið að settu marki. Með dómi sínum
hnekkti Hæstiréttur dómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur sem sýknaði ríkið
af bótakröfu Valgerðar.
Valgerður var árið 2000 skipuð í
embætti framkvæmdastjóra Jafn-
réttisstofu til fimm ára en samhliða
því starfi var hún formaður stjórnar
Leikfélags Akureyrar. Árið 2002 tók
hún þátt í ráðningu nýs leikhússtjóra
hjá leikfélaginu. Í áliti kærunefndar
jafnréttismála frá sama ári var sú
ákvörðun talin stangast á við jafn-
réttislög og komst héraðsdómur að
sömu niðurstöðu ári síðar.
Ráðherra lagði að
Valgerði að hætta
Í kjölfar dómsins óskaði Valgerð-
ur eftir fundi með Árna Magnússyni,
félagsmálaráðherra, sem haldinn var
skömmu síðar. Í upphafi fundarins
lýsti ráðherra því yfir að Valgerður
nyti ekki lengur trausts hans og
lagði að henni að láta sjálf af störf-
um. Á það féllst Valgerður og gaf
ráðherra þá út fréttatilkynningu
þess efnis að þau hefðu orðið sam-
mála um að hún léti af störfum.
Hálfu ári síðar féll dómur Hæsta-
réttar um ráðningu leikhússtjórans
þar sem komist var að þeirri niður-
stöðu að leikfélagið hefði ekki brotið
gegn jafnréttislögum. Valgerður
krafði ríkið um bætur vegna starfs-
lokanna og byggði á því að hún hefði
látið af störfum að kröfu ráðherra og
án sakar af hennar hálfu.
Hæstiréttur segir í dómi sínum í
gær að engin rök hefðu verið færð
fyrir því að ekki hefði mátt ná því
markmiði ráðherrans að skapa frið
um starfsemi Jafnréttisstofu með
því að Valgerður viki tímabundið úr
starfi þar til Hæstiréttur hefði dæmt
í máli leikfélagsins, eins og hún lagði
til. Með þessu hafi ekki verið virt
regla um meðalhóf við töku stjórn-
valdsákvörðunar.
Bakaði ríkinu skaðabótaábyrgð
Þá verði að líta svo á að með ein-
dregnum yfirlýsingum sínum á fund-
inum hafi ráðherra stytt sér leið að
settu marki með því að knýja Val-
gerði í reynd til að fallast á að láta af
starfinu. Segir Hæstiréttur, að þessi
leið sé ósamrýmanleg þeirri megin-
reglu stjórnsýsluréttar að óheimilt
sé að undirbúningur og úrlausn máls
miði að því að komast hjá að fylgja
lögboðinni málsmeðferð, sem ætlað
sé að tryggja réttaröryggi aðila. Því
hafi ráðherra bakað ríkinu skaða-
bótaskyldu gagnvart Valgerði.
Hæstiréttur taldi eðlilegt, með
hliðsjón af dómaframkvæmd og að-
stæðum í málinu, að ríkið greiði Val-
gerði 6 milljónir króna í bætur og var
þá tekið tillit til miskabóta, sem hún
átti rétt til á grundvelli skaðabóta-
laga, og greiðslu til hennar, sem þeg-
ar hafði verið innt af hendi og svaraði
til 6 mánaða launa.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Markús Sigurbjörnsson, Árni
Kolbeinsson, Garðar Gíslason,
Gunnlaugur Claessen og Hrafn
Bragason. Ástráður Haraldsson hrl.
flutti málið fyrir Valgerði og Skarp-
héðinn Þórisson ríkislögmaður fyrir
ríkið.
Hæstiréttur dæmir ríkissjóð til að greiða sex milljóna skaðabætur vegna starfsloka
Félagsmálaráðherra virti
ekki meðalhófsregluna
SAMTÖK foreldra og aðstandenda samkyn-
heigðra (FAS) afhentu í vikunni Sólveigu Pét-
ursdóttur, forseta Alþingis, áskorun þar sem
skorað er á Alþingi að breyta hjúskaparlögum
nr. 31/1993 á þann veg að þau þjóni bæði
gagnkynhneigðu og samkynhneigðu fólki.
Með því einu að breyta gildissviði laganna og
láta 1. grein laganna gilda um hjúskap tveggja
einstaklinga, en ekki karls og konu eins og nú
er, og hnika til orðalagi hér og þar í lögunum,
næðist þetta fram, segir í áskoruninni frá sam-
tökunum.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur
lagnt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á
lögum sem ætlað er að jafna réttindi samkyn-
heigðra og gagnkynhneigðra. Tekur frum-
varpið meðal annars á réttindum samkyn-
hneigðra til ættleiðinga, gervifrjóvgunar og til
að fá óvígða sambúð skráða í þjóðskrá. Frum-
varpinu hefur verið vísað til allsherjarnefndar
og er í umsagnaferli. Mun það ekki verða af-
greitt fyrir jól.
FAS segja í áskorun sinni að stíga eigi skref-
ið til fulls og afnema þannig lagalegan mismun
á grundvelli kynhneigðar. Með því væri laga-
legu jafnrétti náð og samkynhneigðum sem og
gagnkynhneigðum, börnum þeirra og fjöl-
skyldum, mætt af virðingu á hamingjustund-
um lífsins þegar hjúskapur er innsiglaður milli
tveggja einstaklinga. Í áskoruninni er bent á
að hvergi í lögum sé fjallað um kristilegan til-
gang hjúskapar, einungis sé í ákvæðum um
vígslumenn minnst á presta og trúfélög.
Vígslumenn hjúskapar geti verið hvort sem er
prestar, forstöðumenn trúfélags sem hefur
vígsluheimild eða borgaralegir vígslumenn.
Skora á Alþingi að
breyta hjúskaparlögum
Morgunblaðið/Þorkell
Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, tekur við áskoruninni frá Hörpu Njáls, formanni FAS.
EFTIRFARANDI yfirlýsing frá Árna Magnússyni félagsmálaráðherra vegna
dóms Hæstaréttar í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur gegn íslenska ríkinu var
í gær birt á vef ráðuneytisins:
„Með dómi sínum í dag hefur Hæstiréttur komist að þeirri niðurstöðu að
við ákvörðun um starfslok Valgerðar H. Bjarnadóttur,
sem framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu, hafi verið brotið
gegn reglu stjórnsýslulaga um meðalhóf við töku stjórn-
valdsákvörðunar. Hæstiréttur telur að með vægari að-
gerðum hefði mátt ná því markmiði að skapa frið um
starfsemi Jafnréttisstofu með því að Valgerður viki tíma-
bundið úr starfi meðan beðið var dóms Hæstaréttar í máli
sem hún tengdist og varðaði meint brot á ákvæði Jafnrétt-
islaga. Ennfremur telur Hæstiréttur að við meðferð máls-
ins hafi undirritaður stytt sér leið að settu marki, knúið
Valgerði í reynd til að láta af starfi og hafi það verið
ósamrýmanlegt þeirri meginreglu stjórnsýsluréttar að undirbúningur og úr-
lausn máls miði að því að komast hjá að fylgja lögboðinni málsmeðferð, sem
ætlað sé að tryggja réttaröryggi aðila. Með þessu hafi félagsmálaráðherra
bakað íslenska ríkinu skaðabótaskyldu gagnvart Valgerði, sem rétturinn tel-
ur hæfilega ákveðnar 6 milljónir króna, að teknu tilliti til miska.
Ég dreg ekki dul á að þessi niðurstaða Hæstaréttar veldur mér von-
brigðum. Ég hafði vænst þess að niðurstaða Héraðsdóms yrði staðfest en þar
var íslenska ríkið sýknað af kröfum Valgerðar og ekki talið að brotinn hefði
verið á henni réttur að neinu leyti. Það var einnig mat Ríkislögmanns og ann-
arra lögfræðilegra ráðgjafa sem ég leitaði til við meðferð málsins. Með nið-
urstöðu Hæstaréttar er hins vegar fengin endanleg niðurstaða. Ég fagna því
að málinu er nú lokið og óska Valgerði H. Bjarnadóttur velfarnaðar.“
Vonsvikinn en segir dóminn
endanlega niðurstöðu
Árni Magnússon
VALGERÐUR H. Bjarnadótt-
ir, fyrrum framkvæmdastjóri
Jafnréttisstofu, segist að von-
um ánægð
með úr-
skurð
Hæsta-
réttar, sem
dæmdi í
gær ís-
lenska ríkið
til þess að
greiða
henni sex
milljónir
króna í bætur vegna starfs-
loka hennar. „Þessi dómur er
náttúrulega mikill sigur, ekki
bara fyrir mig heldur fyrir
réttvísina í landinu,“ sagði
Valgerður í samtali við
Fréttavef Morgunblaðsins síð-
degis í gær. Viðurkenning
hafi fengist á því að ráð-
herrann hafi misbeitt valdi
sínu með því að krefjast þess
að hún hætti störfum að
ósekju.
„Mér eru dæmdar miska-
bætur, sem er óvenjulegt,
þannig að það er viðurkennt
að það hafi verið vegið að mér
með óréttmætum hætti,“ sagði
Valgerður. Þarna hafi komið í
ljós að Hæstiréttur hafi haft
réttvísina að leiðarljósi.
Valgerður segist núna ætla
að slaka á og fara í jólafrí.
„Þetta mál hefur staðið yfir í
fjögur ár og það er gott að
vera laus við þann kafla í líf-
inu og á þennan hátt.“
Sigur fyrir
réttvísina í
landinu
Valgerður H.
Bjarnadóttir
JEB Bush, ríkisstjóri í Flórída og
bróðir George Bush bandaríkjafor-
seta, hefur skipað Sue Cobb, fyrr-
verandi sendiherra Bandaríkjanna
á Jamaíka, innan-
ríkisráðherra sam-
bandsríkisins
Flórída. Sue Cobb
er eiginkona
Charles E. Cobb,
sem var sendi-
herra Bandaríkj-
anna á Íslandi á
árunum 1989 til
1992.
Skv. frétt AP verður það m.a.
verkefni Sue Cobb á næsta ári að
hafa yfirumsjón með kosningum í
Flórída. Miklar deilur spruttu í
Flórída vegna framkvæmdar for-
setakosninganna árið 2000 og taln-
ingarinnar. Sue Cobb tekur við ráð-
herraembættinu í janúar næst-
komandi.
Sue Cobb ráð-
herra í Flórída
Sue Cobb
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær karlmann á fimmtugs-
aldri í 14 mánaða fangelsi fyrir am-
fetamínframleiðslu í Kópavogi þar
sem framleitt var talsvert af amfeta-
míni, auk fleiri brota.
Annar karlmaður á fertugsaldri
var einnig sakfelldur fyrir amfeta-
mínframleiðsluna og fyrir að hóta
nafngreindu fólki lífláti. Hann var
hins vegar sýknaður af refsikröfu en
gert að sæta öryggisgæslu á viðeig-
andi stofnun. Hann var fyrr á árinu
fundinn sekur um að ráðast á lækni
og þá gert að sæta öryggisgæslu.
Hefur hann dvalið á Réttargeðdeild-
inni að Sogni síðan.
Hjá lögreglu viðurkenndu menn-
irnir að hafa staðið sameiginlega að
tilraunum á amfetamínframleiðsl-
unni. Fyrir dómi neitaði hins vegar sá
er refsað var fyrir samstarfið en hér-
aðsdómur taldi að slá mætti því föstu
að um samstarf hafi verið að ræða.
Með tilliti til þess að ákærðu höfðu
aflað sér hráefna og viðamikils bún-
aðar til amfetamínframleiðslu auk
breytinga á húsnæði var talið að þeir
hefðu ætlað sér að selja a.m.k. hluta
af afrakstrinum. Voru þeir sakfelldir
fyrir framleiðslu á 110,8 g af amfeta-
míni í söluskyni, fyrir vörslu á 8,8 kg
af vökva og hlaupkenndum efnum og
300 ml af vökva sem innihéldu am-
fetamín og metamfetamín. Loks voru
þeir sakfelldir fyrir vörslu á 1,8 kg af
efnum sem innihéldu P-2-NP sem er
þekkt milliefni í framleiðslu amfeta-
míns og metamfetamíns.
Símon Sigvaldason héraðsdómari
dæmdi málið. Verjandi þess er 14
mánaða refsinguna hlaut var Hilmar
Ingimundarson hrl. og verjandi með-
ákærða Sveinn Andri Sveinsson hrl.
Dæmdur fyrir am-
fetamínframleiðslu