Morgunblaðið - 09.12.2005, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505
Opið virka daga 10-18
laugardaga kl. 10-16
sunnudaga kl. 13-17
NÝ SENDING
KÁPUR, JAKKAR, DRAGTIR, SKINNKRAGAR OG BOLIR
Christa
KLÆDDU ÞIG VEL
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Fyrir Liðamót
Laust við skeldýr og sodium 1000 mg
Glucosamine Aðeins 1 hylki á dag.
AKUREYRI
SUÐURNES
Reykjanesbær | Í tillögu að
fjárhagsáætlun Reykjanes-
bæjar sem er til umfjöllunar í
bæjarstjórn er gert ráð fyrir
sérstakri hækkun launa til
ófaglærðra starfsmanna á
leikskólum. Kemur hún ofan á
þær hækkanir sem þetta
starfsfólk hefur þegar fengið,
sem mun vera um 12%.
Samkvæmt upplýsingum
Árna Sigfússonar bæjarstjóra
er í fjárhagsáætluninni skap-
aður grundvöllur til að hækka
laun ófaglærðra starfsmanna
leikskóla bæjarins aukalega
um að meðaltali 5% um næstu
áramót. Það sé gert án hækk-
unar leikskólagjalda. Með
þessu er verið að leggja
umönnunarstörf í leikskólum
og grunnskólum að jöfnu og
stuðla að bættri mönnun leik-
skólanna. Árni tekur fram að
gert sé ráð fyrir að launa-
hækkunin verði árangurs-
tengd.
Árni segir skynsamlegra að
styrkja þjónustu leikskólanna
með þessum hætti en að tala
um að fella niður leikskóla-
gjöld. Gjaldfrjáls leikskóli geti
leitt til þess að ekki verði hug-
að nægilega að þjónustu skól-
anna, launum starfsfólks og
starfseminni almennt.
Hækka laun
ófaglærðra
á leikskólum
Garður | Vel varðveittur hárkambur
frá því á tólftu öld hefur fundist við
fornleifauppgröft við gamla prestbú-
staðinn á Útskálum í Garði. Ekki er
vitað til þess að slíkur gripur hafi áð-
ur fundist hér á landi.
Fornleifafræðingar frá Fornleifa-
stofnun Íslands hafa unnið að upp-
greftri og rannsóknum á bæjarhóln-
um á Útskálum vegna undirbúnings
framkvæmda sem fyrirhugaðar eru
við Útskálahúsið á vegum Menning-
arsetursins að Útskálum. Hefur ver-
ið grafið í gegnum tvö mannvirki frá
seinni öldum og niður í torfhús með
vel varðveittu timbri sem gjóskulög
tímasetja fyrir seinni hluta tólftu
aldar. Uppgreftri þar er ekki lokið
en líkur eru taldar á því að um ein-
hverskonar útihús sé að ræða.
Kom á óvart
Ekki hefur fundist mikið af grip-
um við uppgröftinn, þar til í þessari
viku að þar fannst í hruni í elsta
mannvirkinu hárkambur úr beini.
Guðrún Alda Gísladóttir, sem stjórn-
ar rannsókninni, segir að kamburinn
sé einstaklega vel varðveittur. Tenn-
urnar eru fínar og nánast allar
heilar. Þá er kamburinn fallega
skreyttur með depilhringamunstri.
Guðrún telur að kamburinn sé
innfluttur. „Við vitum ekki um að
kambur af þessu tagi hafi fundist
hér á landi. Til eru dæmi um svipaða
kamba frá Noregi en þeir eiga að
vera yngri, frá 13. öld,“ segir Guðrún
Alda.
Vegna þess hversu fáir gripir hafa
fundist við uppgröftinn kom fundur
kambsins vísindamönnunum á óvart.
„Þetta breytir ekki Íslandssögunni
en bætir við hana,“ segir Guðrún um
þýðingu fundarins. Kamburinn er
moldugur en honum hefur nú verið
komið í hreinsun og forvörslu hjá
Þjóðminjasafni Íslands. „Við bíður
spennt eftir að sjá gripinn þegar bú-
ið verður að hreinsa hann,“ segir
Guðrún Alda.
Fornleifafræðingarnir eru að
ljúka við rannsókn á elsta mannvirk-
inu í grunninum við Útskálahúsið og
uppgreftri verður hætt að þeirri
vinnu lokinni og þá hefst undirbún-
ingur framkvæmda við sjálft húsið.
Merkur forngripur fannst við uppgröft við Útskálahúsið
Skreyttur og vel varðveittur
kambur frá tólftu öld
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Ljósmynd/Fornleifastofnun Íslands
Forngripur Eigandi kambsins fallega hefur væntanlega týnt honum í einhverju útihúsi að Útskálum í Garði.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Rannsókn Guðrún Alda Gísladóttir og Howell M. Roberts voru að grafa í
torfhúsi frá tólftu öld þegar þau fundu kambinn óvænt í hruni úr þaki.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins |
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á
Akureyri efnir til prófkjörs vegna
vals á framboðslista flokksins við
komandi sveitarstjórnarkosningar.
Prófkjörið verður haldið 11.
febrúar 2006. Frestur til að til-
kynna þátttöku rennur út 16. jan-
úar 2006
Þeir sem rétt hafa til að kjósa eru
fullgildir meðlimir í sjálfstæð-
isfélögum í sveitarfélaginu, sem
þar eru búsettir og náð hafa 16 ára
aldri á prófkjörsdegi. Einnig þeir
stuðningsmenn flokksins sem munu
eiga kosningarétt í sveitarfélaginu
við kosningarnar og undirritað
hafa inntökubeiðni í sjálfstæð-
isfélag í sveitarfélaginu fyrir lok
kjörfundar.
Kjörnefnd mun á næstunni
ákveða nánari tilhögun prófkjörs-
ins í samræmi við gildandi próf-
kjörsreglur.
Ævintýrið um Augastein | Hin
margrómaða jólaleiksýning Æv-
intýrið um Augastein eftir Felix
Bergsson verður í Samkomuhúsinu
á Akureyri nú fyrir jólin, dagana
10. og 11. desember. Enn eru nokk-
ur sæti laus á sýningarnar. Sýn-
ingin var sett upp af leikhópnum Á
senunni.
Ævintýrið um Augastein var
frumsýnt í London árið 2002 og í
Reykjavík 2003.
Verkið er leikið af höfundi og
það byggist á hinni sígildu sögu um
Grýlu og jólasveinana en ævintýrið
er tekið lengra og sagan um litla
drenginn, sem nefndur er Auga-
steinn, verður miðpunktur leikrits-
ins.
VILJI forsvarsmanna Haga sem
reka Hagkaup og þróunarfélagins
Þyrpingar stendur til þess að reisa
fjögur til fimm þúsund fermetra
verslun Hagkaupa við suðvesturhorn
núverandi Akureyrarvallar. Stefnt er
að því að flýta framkvæmdum eins og
kostur er fáist til þess leyfi bæjaryf-
irvalda, þegar yrði byrjað á fram-
kvæmdum og stefnt að opnun nýrrar
verslunar 1. nóvember á næsta ári.
Þetta kemur fram í grein í blaði
sem Athygli, fyrirtækis á sviði al-
mannatengsla og Kaupmannafélags
Akureyrar, en því var dreift í öll hús á
Akureyri í gær. Með greininni fylgja
myndir af íþróttavallasvæðinu þar
sem sýnt er hvernig það myndi líta út
eftir að búið er að byggja þar verslun
og skemmtigarð í norðurhorni vall-
arins. Fram kemur einnig að Hagar
hafa leitað eftir nýrri staðsetningu
fyrir Hagkaupsverslun sína og horft
til miðbæjarsvæðisins í þeim efnum,
en Sjallareiturinn svonefndi sé ekki
nægilega stór fyrir verslun af þeirri
stærð sem menn hafa í hyggju að
byggja.
Stýrihópur um verkefnið Akureyri
í öndvegi skilaði tillögum sínum í nóv-
ember en þær ganga út á að á Ak-
ureyrarvelli verði byggðar íbúðir og
þar verði einnig fjölskyldu- og
skemmtigarður. Tillögurnar byggj-
ast á þeim tillögum sem hlutu verð-
laun í samkeppni um nýtt miðbæj-
arskipulag, en þær byggja svo aftur á
íbúaþingi sem efnt var til í september
í fyrra þar sem um 10% bæjarbúa,
um 1.600 manns, tóku þátt í að móta
hugmyndir að nýjum og betri miðbæ.
Nú á þriðjudag, sendi IMG Gallup
út bréf til 600 Akureyringa, sem vald-
ir voru af tilviljun. Þar segir að í til-
lögum stýrihópsins sé gert ráð fyrir
að Akureyrarvöllur víki fyrir útivist-
arsvæði og annarri uppbyggingu á
svæðinu. Vísað er í aukablað Morg-
unblaðsins eins og það er orðað, sem
helgað sé málefnum Akureyrar, því
sé dreift í öll hús í bænum og að þar
verði kynntar hugmyndir að skipu-
lagi Akureyrarvallar. Þess er farið á
leit við viðtakanda bréfsins að hann
kynni sér hugmyndirnar og svari fá-
einum spurningum um viðhorf sitt til
þeirra þegar spyrill frá fyrirtækinu
hringi, en það verður á tímabilinu frá
8. til 20. desember. Ekki kemur fram
í bréfinu fyrir hvern könnunin er
gerð.
Hagar og Þyrping kynna hugmyndir um stórverslun á Akureyrarvelli
Stýrihópur gerir
ekki ráð fyrir
verslun á svæðinu
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæj-
arstjóri á Akureyri og formaður
stýrihóps um verkefnið Akureyri í
öndvegi, segir að
það sé grund-
vallaratriði í um-
ræðu um skipu-
lagsmál, að bæði
þeir sem fjalli
um þau og taki
ákvarðanir séu
vel upplýstir um
allar hliðar máls.
„Ég legg
áherslu á að nýja
miðbæj-
arskipulagið snýst ekki um hvort
byggja eigi verslun á íþróttavall-
arsvæðinu eða ekki.
Nú er hins vegar verið að kynna
einhliða eina tillögu að breyttri
landnotkun á Akureyrarvelli án
þess að lesendum blaðs Kaup-
mannasamtakanna og Athyglis sé
gefið heildaryfirlit um kosti og
galla stýrihópsins,“ sagði Kristján
Þór.
Hann gat þess að tillögur stýri-
hópsins sem kynntar voru í liðnum
nóvembermánuði hafi orðið til á
íbúaþingi síðastliðið haust. Verð-
launatillögurnar þrjár hafa end-
urspeglað vilja íbúanna, þar hafi
greinilega komið fram að menn
vildu blandaða byggð á íþrótta-
svæðinu, íbúðir og eins konar úti-
vistarsvæði, fjölskyldu- og
skemmtigarð.
Skapa pressu
á skipulagsyfirvöld?
Kristján Þór kvaðst vissulega
ekki vita hvernig nýta ætti nið-
urstöður úr þeirri skoðanakönnun
sem nú væri að fara af stað á veg-
um Gallup. Miðað við hvernig mál-
ið væri fram sett mætti gera ráð
fyrir að þær yrðu nýttar til að
vinna hugmyndum um versl-
unarmiðstöð á íþróttavallarsvæð-
inu fylgi.
„Ég tel nauðsynlegt að upplýs-
ingar til íbúa hvað þessi mál varð-
ar séu sem hlutlægastar, svo er
ekki í þessu tilviki.“
Umhverfisráð sem og bæjarráð
hafa vísað tillögum stýrihópsins til
afgreiðslu í bæjarstjórn, þ.e. að til-
laga að endurskoðuðu að-
alskipulagi Akureyrar 2005 til
2018 verði send til Skipulagsstofn-
unar til athugunar og svo auglýst
samkvæmt skipulags- og bygging-
arlögum. Málið verður tekið fyrir í
bæjarstjórn á þriðjudag. „Sam-
kvæmt lögum má gera ráð fyrir að
skipulagsferlinu ljúki ekki fyrr en í
byrjun apríl á næsta ári og á þeim
tíma geta bæjarbúar kynnt sér efni
tillögunnar og gert við hana at-
hugasemdir ef þeim sýnist svo,“
sagði Kristján Þór.
Telur kynninguna ein-
hliða og ekki hlutlæga
Kristján Þór
Júlíusson