Morgunblaðið - 09.12.2005, Síða 32

Morgunblaðið - 09.12.2005, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Rokkhljómsveitin Belja héltsína fyrstu formlegu tón-leika fyrir fullu húsi umsíðustu helgi á Kaffi Reykjavík við góðar undirtektir starfsmanna Icelandair sem voru að halda sína árlegu jólagleði. Á efnis- skránni voru sex lög. Allar stöður í hljómsveitinni eru nefnilega skip- aðar flugmönnum hjá Icelandair sem segjast fá mikla útrás í rokkinu. Belja var fyrst og fremst hugsuð sem skapandi útrás fyrir hljómsveit- armeðlimina enda er með öllu óvíst á þessari stundu hve mikil áhersla verður lögð á að spila opinberlega. Einhverjum tónleikagestum mun hafa fundist nóg um hávaðann, sem þótti meira ærandi en þotuhreyfill á fullum snúningi, en flutningurinn þótti þó takast vel. Hálft ár er síðan hljómsveitin var stofnuð. „Það er hins vegar alltaf dá- lítið vandamál að koma mönnum saman á æfingar því við erum alltaf á ferð og flugi í háloftunum og sjald- an í fríi allir í einu. Það þarf því varamenn í allar stöður og höfum við hug á að auglýsa eftir fleiri mús- íkölskum flugmönnum hjá Ice- landair til að fylla þær stöður," segir Atli Thoroddsen flugstjóri í samtali við Daglegt líf, en hann sér um söng- inn í hljómsveitinni. Auk hans skipa flugmannabandið þeir Björn Óttarr Jónsson á gítar, Ómar Guðnason og Bjartmar Arnarsson á trommur og Þórir Kristinsson á bassa, en sá síð- astnefndi er einnig liðtækur laga- höfundur. Flugdólgur og Vindrassgat Á næstunni hefur hljómsveitin hug á að æfa nýja efnisskrá, sem inniheldur frumsömdu lögin Vind- rassgat, Skamm skamm og Flug- dólgur. „Á tónleikunum tókum við flott lög úr mörgum áttum, sem okkur alla langaði að spila. Við tókum til dæmis pönkað rokk í anda Red Hot Chilli Peppers, eitt gamalt úr smiðju Billy Idol, lög með Blur og svo ís- lenskt Grafíklag. Þetta var góður kokteill. Við erum enn án hljóm- borðsleikara. Þetta átti því að vera frekar einfalt svo við gætum komið músíkinni skynsamlega frá okkur," segir Atli. Enginn núverandi meðlima hljóm- sveitarinnar hefur spilað op- inberlega áður, að sögn Atla, en ef- laust hafi einhverjir komið nálægt tónlistargutli á unglingsárum. Það var því ekki um neitt annað að ræða en dusta rykið af hljóðfærunum og byrja að æfa. „Fyrir mér var þetta spurning um að láta ákveðinn draum rætast. Að geta verið flug- maður og rokkstjarna. Þetta voru mínir leyndustu draumar og nú er ég búinn að ná hvoru tveggja og kominn á toppinn. Nú er ég kominn á sama plan og Bruce Dickinson, söngvari þungarokkshljómsveit- arinnar Iron Maiden. Hann hefur verið atvinnuflugmaður hjá breska flugfélaginu Astreus ásamt því að vera rokkstjarna. Þetta er bæði flott og skemmtilegt að koma saman með félögunum til að æfa saman lög." Þegar Atli er spurður hvort hann taki lagið í flugstjórnarklefanum, svarar hann því neitandi. „Ég geri ekki mikið af því að syngja um borð. Það er hávaði í vélinni og það sæmir ekki að flugstjórinn færi allt í einu að syngja fyrir farþegana. Maður verður að halda ákveðinni fag- mennsku um borð." Draumurinn að vera flugmaður og rokkstjarna  ÁHUGAMÁLIÐ | Flugmenn hjá Icelandair stofna hljómsveit og rokka reglulega Hljómsveitarmeðlimirnir Björn Óttarr Jónsson gítarleikari, Atli Thoroddsen, söngvari hljómsveitarinnar, Þórir Kristinsson, bassaleikari og lagahöfundur, og Bjartmar Arnarsson trommuleikari. join@mbl.is Nú á aðventunni er óhætt að mæla meðþví uppátæki að framkvæma töfra-brögð í jólaboðum, rétt eins og öðr- um boðum þar sem fólk kemur saman. Margt barnið ber jú í brjósti draum um að verða töframaður, enda skemmtilegt að koma fólki á óvart með töfrum og sjá það gapa í for- undran yfir óskiljanlegum kúnstum. Í Töfra- bragðabókinni, sem Jón Víðis töframaður sendi nýlega frá sér, eru kennd hin ýmsu töfrabrögð og eitt af þeim er hið sígilda bragð að láta pening spretta úr eyrum fólks. Til þess þarf aðeins eina mynt (tíkall eða hundraðkall) og nokkra æfingu, en æfingin skapar töfrabragðameistara rétt eins og aðra meistara. Áður en haldið er í jólaboðið er því gott að æfa sig í því sem kallað er „að lófa“ peninginn, þ.e.a.s. að fela hann í lófanum. Með peninginn lófaðan í hægri hendi rennir töframaðurinn sér upp að einhverjum gest- inum í jólaboðinu og segir hissa: „Má ég sjá, ertu með eitthvað í eyranu?“ Síðan snertir hann eyrað létt með fingrunum og lætur pen- inginn birtast. Nú er um að gera að æfa sig og slá í gegn í næsta jólaboði. Töfrar í jólaboðum  KRAKKAR www.tofrar.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.