Morgunblaðið - 09.12.2005, Page 33
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 33
„ÉG ER alltaf með puttana í
þæfðri ull en ég hef ekki gert
mikið af jólaskrauti í gegnum tíð-
ina,“ segir Sigríður Ásta Árna-
dóttir textílhönnuður en hún á lit-
skrúðugar jólakúlur úr þæfðri ull
á jólasýningu Handverks og
hönnunar. Hún segir jólakúlurnar
mjög dæmigerðar fyrir allt sem
hún hannar. „Ég hef svolítið verið
að vinna með svona kúlur úr
þæfðri ull í tengslum við föt sem
ég er að gera. Þegar ég var með
fullan bala af lituðum kúlu lá það
einhvern veginn beint við að gera
jólakúlur úr þeim. Síðan saumaði
ég alls konar skraut og borða í
kúlurnar. Þær eru ekki endilega
hugsaðar til að hengja á tré held-
ur má líka hengja þær upp í
glugga eða hvar sem jólaskraut
getur hangið.“
Sigríður var ekki búin að hanna
útsauminn á kúlunum nákvæm-
lega þegar hún byrjaði á þeim.
„Mér finnst oft mjög gott, þegar
ég er að vinna hluti, að gefa eftir
ákveðið pláss fyrir sköpun í
vinnuferlinu. Þegar ég byrjaði á
kúlunum hugsaði ég með mér að
það væri bara besta að sjá hvern-
ig þær yrðu.“
Kitschfríður
Til að gera kúlurnar notar Sig-
ríður lausa ull, vöðlar henni sam-
an í hálfgerðan hnykil og rúllar
svo hverjum hnykli fyrir sig hægt
og rólega saman á milli lófana
með heitu vatni og sápu. Eftir þá
meðferð setur hún kúlurnar inn í
þvottavél og lætur þær þéttast
betur þar. Svo litar hún þær eftir
á.
„Jólakúlurnar er eingöngu
hægt að kaupa á jólasýningunni
en fötin mín hef ég verið að selja
hjá Rögnu Fróða, það mætti
segja að þetta jólaskraut sé af-
sprengi fatalínu minnar.“
Sigríður vinnur aðallega með
þæfða ull og útsaum. Henni finnst
ullin skemmtileg því hún tekur
fallegan lit og auðvelt er að forma
hana á allan hátt. „Ég hef líka
verið að endurhanna gamlar ull-
arflíkur. Ullin er áhugavert efni
með endalausa möguleika og hef-
ur einhvern veginn eilíft líf.“
Sigríður segir jólakúlurnar
mjög hefðbundnar fyrir það sem
hún hannar en þær eru litskrúð-
ugar og glitrandi. „Hönnun mín
heitir Kitschfríður og er iðulega
úr ull og litskrúðug. Ég geri að-
allega peysur, pils og kraga sem
eru settir saman úr mörgum
litlum ullarkúlum. Orðið kitch er
oft notað yfir hluti sem eru
skræpóttir og glitrandi. Ég fékk
þann stimpil á mig þegar ég var í
náminu að ég væri mjög höll und-
ir „kitch“-hluti og ákvað að nota
það viðurnefni fyrir mína eigin
hönnun.“
HÖNNUN | Litskrúðugar, glitrandi og þæfðar jólakúlur
Fullur bali af kúlum
Sigríður Ásta við jólatré sem er
skreytt með þæfðu ullarkúlunum.
Morgunblaðið/Ásdís
STÉTTARFÉLAGIÐ Efling hefur undanfarin ár sótt
um styrk til mannaskipta vegna félagsmanna sinna í
Leonardó starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins.
Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir er yfir fræðslumálum
hjá Eflingu, hún segir að þau hjá Eflingu hafi komist í
kynni við þetta mannaskiptaverkefni árið 2000 á upp-
lýsingaráðstefnu Lenonardó. „Við fórum þá í að sækja
um fyrir okkar félaga og höfum fengið úthlutað styrk í
þrígang.“
Um er að ræða styrki til þess að heimsækja fyrirtæki
í öðru Evrópulandi sem starfar í sama atvinnugeira og
viðkomandi vinnur í hér heima. „Styrkþegar fara út í
vikuferð og kynna sér sambærilegt starf þar og þau
vinna hér heima. Þetta er gert þannig að hver og einn
sækir um styrkinn í samstarfi við sinn atvinnurekanda,
í gegnum okkur. Það hafa til dæmis farið út hópar frá
Landakoti og Hrafnista hefur sent út oftar en einu
sinni. Um daginn fóru tvær konur frá hjúkrunarheimili
til Danmerkur og menn frá gatnamálastjóra hafa líka
fengið styrk. Einnig hafa nokkrir farið frá Málningu,
þeir fóru til Noregs að skoða málningaverksmiðju og
fengu kynningu þar á öllu ferli í starfsmannaþróun,
námskeiðum, starfi fyrirtækisins og framleiðslu á máln-
ingu. Að lokinni ferðinni skila allir skýrslu til okkar og
hún fylgir með lokaniðurstöðunum, sem við skilum af
okkur, um þá sem nýttu sér styrkinn,“ segir Þórunn.
Góður árangur
Hún segir að árangurinn af mannaskiptunum hafi
verið frábær. „Þetta eflir fólk mjög, því finnst það hafa
fengið tækifæri til að sjá starfið sitt í nýju ljósi og öðl-
ast víðsýni á það, mörgum er það mikils virði. Þeir sem
hafa til dæmis farið út úr umönnunargeiranum eru að
upplifa að hugmyndafræðin er önnur í umönnun en
hérna. Það kemur allt önnur umræða á eftir. Fólki
finnst það læra mikið á þessu og viðhorf atvinnurek-
anda eru mjög góð. Þeim finnst starfsfólkið koma til
baka með gleði og hugmyndir í vinnuna.“
Ferðirnar standa yfir í eina viku og gert er ráð fyrir
að félagsmenn haldi launum hjá sínum atvinnurekanda
á meðan. „Fólk er alltaf á launum þegar það fer út því
þetta er í þágu starfsins, fyrirtækið er að styrkja það í
starfi. Atvinnurekendur fara ekki með í ferðirnar en
þeir mynda oft tengslin við svipuð fyrirtæki erlendis.
Við sjáum líka um að koma á samskiptum milli fyrir-
tækja. Ferðir og uppihald er greitt og starfsmennta-
sjóðir Eflingar styrkja ferðirnar.“
Fengu Starfsmenntaverðlaunin
Þórunn segir að nú þegar hafi farið um fjörutíu og
fjórir út á Leonardó styrk. „Það er fólk úr öllum at-
vinnugreinum sem sækir um þetta, þátttakan er breið.
Núna erum við að safna í nýjan umsóknarhóp og hann
verður blandaður.“
Efling er ekki aðeins að styrkja fólk héðan til að fara
út því það er líka að koma fólk frá öðrum löndum hing-
að til lands til að kynna sér starfsemi hérlendra fyr-
irtækja.
„Við erum líka með annað verkefni í gangi sem er
þriggja landa þátttaka. Við erum í samstarfi við Skot-
land og Noreg. Þá mynda löndin tengsl í tiltekið verk-
efni sem er tilraunaprófað og með lokaniðurstöðu. Við
tókum þátt í fræðslu fyrir trúnaðarmenn, þar sem trún-
aðarmenn lærðu að miðla upplýsingum um fræðslu og
námstilboð. Það fóru í gegnum þetta, hjá okkur í vor,
níu einstaklingar í fjarnámi. Þessu verkefni er að ljúka
um þessar mundir.“
MENNTUN | Stéttarfélagið Efling
Félagsmenn heimsækja
fyrirtæki í sama geira
Morgunblaðið/Þorkell
Þegar hafa farið um fjörutíu og fjórir út á Leonardó-
styrk, fólk úr ýmsum atvinnugreinum.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Stórhöfða 25 • 110 Reykjavík • sími 569 3100 • www.eirberg.is
Við leggjum þér lið
Hægindastólar
sem lyfta þér upp
Verð frá 98.500 kr.
XE
IN
N
AN
05
12
00
1
Fjarðargata 13-15 Hafnarfirði
565 7100