Morgunblaðið - 09.12.2005, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 47
UMRÆÐAN
OFBELDI ógnar bæði andlegri og
líkamlegri heilsu kvenna um allan
heim og er útbreiddasta mannrétt-
indabrot okkar tíma. Ofbeldi karla
gegn konum brýtur gegn grundvall-
arfrelsi mannkyns og er ein versta
birtingarmynd kynjamisréttis.
Rík skylda hvílir á stjórnvöldum
að sporna við ofbeldi karla gegn kon-
um og styðja úrræði fyrir þær sem
verða fyrir ofbeldi. Samkvæmt sam-
þykktum Sameinuðu þjóðanna bera
stjórnvöld ábyrgð á því að draga úr
kynbundnu ofbeldi með því að
tryggja fjármagn til forvarna og efla
úrræði. Brýnt er að allar opinberar
stofnanir skoði hvernig þær eru í
stakk búnar til að vinna að for-
vörnum og úrræðum.
Í forvörnum felst fræðsla um jafn-
rétti kynjanna og virðingu á öllum
skólastigum og öflugt kynningarstarf
meðal almennings. Til að geta brugð-
ist við kynbundnu ofbeldi þurfa fag-
stéttir að vera menntaðar til að tak-
ast á við afleiðingar ofbeldis hvort
sem er í löggæslu, innan mennta-,
heilbrigðis-, dóms- eða félagsmála-
kerfis. Allar samfélagsstofnanir
þurfa að hafa verklagsreglur sem
kveða á um hvernig brugðist skuli við
upplýsingum um kynbundið ofbeldi.
Úrræði fyrir þolendur ofbeldis, svo
og ofbeldismenn, þurfa að vera
tryggð og efld. Neyðarmóttaka fyrir
þolendur heimilisofbeldis þarf að
vera starfandi líkt og Neyð-
armóttaka vegna nauðgunar.
Ljóst er að margt hefur áunnist
síðustu árin í baráttunni gegn kyn-
bundnu ofbeldi og ber að fagna því.
Lög eru til endurskoðunar, verklags-
reglur fyrir lögreglu eru orðnar að
veruleika, fjármagn til meðferðar
fyrir heimilisofbeldismenn er tryggt
og aðgerðaáætlun á landsvísu er í
smíðum. En betur má ef duga skal.
Sveitarstjórnir hljóta að axla ábyrgð
og samræma aðgerðir innan þeirra
stofnana sem heyra undir sveit-
arstjórnarstigið.
Undirrituð samtök og stofnanir,
sem standa að 16 daga átaki gegn
kynbundnu ofbeldi árið 2005, skora
því á stjórnvöld, jafnt á landsvísu
sem á sveitarstjórnastigi, að grípa til
allra nauðsynlegra aðgerða til að
vinna að bættri heilsu kvenna og
uppræta þann smánarblett sem kyn-
bundið ofbeldi er á íslensku sam-
félagi. Einnig er brýnt að stjórnvöld
hafi hagsmuni kvenna að leiðarljósi í
samvinnu við önnur lönd, ekki síst í
þróunaraðstoð og alþjóðlegu mann-
réttindastarfi. Við lýsum okkur
reiðubúin til samstarfs og til að miðla
þeirri þekkingu sem við búum yfir.
Í dag gefst tækifæri til að ræða við
forsvarsmenn stjórnmálaflokkanna
um stefnu þeirra í baráttunni gegn
kynbundnu ofbeldi. Fundurinn er
haldinn á Grand Hótel klukkan 8:30–
10:00 og er öllum opinn.
Heilsa kvenna, heilsa mann-
kyns: Stöðvum ofbeldið
’Í dag gefst tækifæri tilað ræða við forsvars-
menn stjórnmálaflokk-
anna um stefnu þeirra í
baráttunni gegn kyn-
bundnu ofbeldi.‘ Alnæmisbörn, Alnæmissamtökin á Ís-landi, Amnesty International á Ís-
landi, Blátt áfram, Bríet – félag ungra
femínista, Femínistafélag Íslands,
Konur gegn limlestingu, Kvenfélaga-
samband Íslands, Kvennahreyfing
Öryrkjabandalags Íslands, Kvenna-
ráðgjöfin, Kvenréttindafélag Íslands,
Mannréttindaskrifstofa Íslands,
Neyðarmóttaka vegna nauðgunar,
Rannsóknastofa í kvenna- og kynja-
fræðum, Rauði kross Íslands, Samtök
kvenna af erlendum uppruna á Ís-
landi, Samtök um kvennaathvarf, So-
roptimistasamband Íslands, Stíga-
mót, Styrkur – úr hlekkjum til frelsis,
UNIFEM á Íslandi, V-dagssamtökin,
Zonta á Íslandi, Þjóðkirkjan.
16 daga átak
arfélögin því það væri þeirra að
úthluta svæðum fyrir æfing-
arsvæði. Sú niðurstaða að vísa
þessu á sveitarfélögin finnst mér
viss vonbrigði.
Að fenginni reynslu minni af
sveitarstjórnarmálum geta sveit-
arfélögin ekki úthlutað svæðum
nema í samráði við ríkisvaldið.
Í ársbyrjun veitti bæjarstjórn
Grindavíkur leyfi til vélhjóla-
íþróttaklúbbsins fyrir akstri í
landi sínu við Kleifarvatn frá 1.
mars til 1. júní. Strax hófu vél-
hjólaíþróttamenn að æfa sig
þarna við vatnið og um páska-
helgina mátti sjá við æfingar á
milli 50 og 70 vélhjólaíþrótta-
menn daglega. Skömmu eftir
páska bannaði sýslumaður akstur
þarna á þeirri forsendu að um ut-
anvegaakstur væri að ræða og
leyfi frá sýslumanni fyrir æfing-
arsvæðinu væri ekki fyrir hendi.
Þarna er sýslumaður fulltrúi um-
hverfisráðneytis og dóms-
málaráðuneytisins.
Vélhjólaíþróttamenn hættu að
æfa á svæðinu, en fljótlega fór að
bera á spólförum eftir mótorhjól
víða um Reykjanesið á stöðum
sem ekki er ætlaður til mót-
orhjólaaksturs. Næst komu
greinar í blöð um utanvegaakstur
og gróðurskemmdir með stórum
fyrirsögnum.
Þrátt fyrir góðan vilja bæj-
arstjórnarmanna í Grindavík og
annarra hlutaðeigandi, nema rík-
isins gekk sú ákvörðun ekki eftir.
Næsta vor má gera ráð fyrir
að sagan endurtaki sig ef ekkert
verður að gert, þegar öll þessi
mótorhjól fara af stað og ekki
verður bætt úr aðstöðuleysinu.
Sé vilji fyrir hendi hjá stjórn-
völdum til að leysa þessi mál á
farsælan hátt eru til úrræði.
Ríkið þarf að veita fjármagni til
vélhjólaíþróttaklúbbanna í sam-
vinnu við þau sveitarfélög sem
tilbúin eru til að láta svæði af
hendi til æfinga.
Til dæmis hefur Vélhjóla-
íþróttaklúbburinn fengið æfing-
arsvæði í landi sveitarfélagsins
Ölfuss við Jósepsdal. Framtakið
er frábært og ljóst að sveit-
arstjórnarmenn í Ölfushrepp
hafa skilning á vandanum.
Það sem upp á vantar er að
land þetta er í nokkurri hæð yf-
ir sjó og frost er í jörðu á þess-
um stað fram eftir vori. Til að
hjólamenn geti notað svæðið
sem mest á árinu þarf að vinna í
svæðinu fyrir allnokkurt fjár-
magn. Þetta fjármagn er ekki til
og því ljóst að þar verður ekki
æft fyrr en í lok apríl eða byrj-
un maí.
Með styrk frá ríkinu upp á 8–
10 miljónir getur Vélhjóla-
íþróttaklúbburinn gert æfing-
arsvæðið tilbúið til æfinga í
marsbyrjun og vísað vélhjóla-
íþróttamönnum á þetta svæði.
Við vitum öll að það er ekki
spilaður fótbolti á grasinu ef
merktur fótboltavöllur er við
hliðina á því.
Ég vil því skora á stjórnvöld
að ganga til liðs við vélhjóla-
íþróttaklúbbana og vinna að far-
sælli lausn á þessum vanda.
’Ef ekkert verður gertfyrir þessa íþróttamenn
byrjar sama sagan aft-
ur, með akstri á svæðum
þar sem ekki má aka en
það gefur augaleið að
spólförin verða fleiri. ‘
Höfundur er fyrrverandi
sveitarstjórnarmaður, áhugamaður
um mótorhjólaíþróttir,
náttúruunnandi og áhugamaður um
skógrækt og útivist.
Tímaritið
Lifun fylgir
Morgunblaðinu
í dag
fyrir fagurkera á öllum aldri
dúnmjúkur desember
jólastemning á aðventu
munir með sögu og sál
hagsýnir húsráðendur
kalevala á klaus k
ljúfir bitar á löngum kvöldum
lifun
tímarit um heimili og lífsstíl – 09 2005
smáauglýsingar
mbl.is