Morgunblaðið - 09.12.2005, Page 61
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Úlf-
arnir Halda skemmta . Húsið opnað kl. 22
frítt inn til miðnættis.
Uppákomur
Bókabúð Máls og menningar | Verk Hug-
leiks Dagssonar úr hans nýjustu bók Bjarg-
ið okkur verða til sýnis í Bókabúð Máls og
menningar, Laugavegi. Sýningin hefst kl. 17
og mun Benni Hemm Hemm spila nokkur
lög við það tækifæri. Heyrst hefur að Hug-
leikur muni sjálfur koma fram með Benna
Hemm Hemm. Allir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Fyrirlestrar og fundir
Samtökin ’78 | Opinn fundur í félagsheim-
ili Samtakanna á Laugavegi 3, 10. des. kl.
14. Páll Þórhallsson, lögfræðingur í forsæt-
isráðuneyti, Þorvaldur Kristinsson, fulltrúi
Samtakanna ’78 í nefnd um réttarstöðu
samkynhneigðra, og Hrefna Friðriksdóttir,
lögfræðingur hjá Barnaverndarstofu,
kynna fram komið frumvarp ríkisstjórnar-
innar um réttarstöðu samkynhneigðra og
svara spurningum.
Fréttir og tilkynningar
Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins
9. desember er 52268.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 61
DAGBÓK
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó kl. 14, söng-
stund við píanóið að því loknu. Ath.
hádegismatur frá kl. 12–13, miðdegis-
kaffi kl. 15.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl. 9–
16.30. Jólabingó kl.13.30. Veglegir
vinningar.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, frjálst að
spila í sal, fótaaðgerð.
Bústaðakirkja | Jólafundur kven-
félags Bústaðasóknar verður 12. des.
kl. 19.15, skemmtiatriði og matur.
Skráning í símum: Lilja: 568 1568 /
898 1568 og Guðríður: 568 5834 /
848 9072. Skráning fyrir 6. des.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er
öllum opið. Jólaferð mánudags-
kvenna 12. des. Jólaferð hverfisins 13.
des. Nokkrir miðar til á Vínarhljóm-
leikana. Uppl. í síma 588 9533.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Brids í Gjábakka í dag kl. 13.15. Fé-
lagsvist verður spiluð í kvöld kl.
20.30 í Gjábakka.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Að-
ventustund verður laugardaginn 10.
des. kl. 15–17 í Stangarhyl 4. Hug-
vekju flytur séra Guðmundur Þor-
steinsson, upplestur Björn G. Eiríks-
son , barnakór syngur jólalög, Anna
H. Norðfjörð flytur jólahugleiðingu,
jólalög sungin við undirleik Sigurðar
Jónssonar.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Eldri
borgarar og öryrkjar efna til göngu
og útifundar föstudag 9. des. Gengið
verður frá Hallgrímskirkju kl. 16.30
og útifundur á Austurvelli hefst kl. 17.
Skólahljómsveit Kópavogs fer fyrir
göngunni. Flutt verða ávörp og for-
seta Alþingis afhent áskorun til
stjórnvalda.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.15
boccia, kl. 10 spænska, kl. 13 gler- og
postulínsmálun, kl. 13.15 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, m.a. bókband,
rósamálun o.m.fl. Kl. 10.30 létt ganga
um nágrennið. Frá hádegi spilasalur
opinn. Veitingar í hádegi og kaffitíma
í Kaffi Berg. Strætó S4 og 12 stansa
við Gerðuberg. Allar uppl. á staðnum
og í síma 575 7720 og www.gerdu-
berg.is.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin. Almenn handavinna. Út-
skurður. Baðþjónusta, Fótaaðgerð
(annan hvern föstudag). Hárgreiðsla.
Kl. 11 spurt og spjallað. Kl. 12 hádegis-
matur. Kl. 14.45 bókabíll. Kl. 15 Kaffi.
Jólabingó kl. 14. Ýmsir góðir vinning-
ar.Veislukaffi. Barnabörnin velkomin.
Hraunbær 105 | Óvissu- og jóla-
ljósaferð 13. des. Farið frá Hraunbæ
kl. 11. Jólagrautur og kaffi á Hafinu
bláa. Síðan haldið í Hveragerðiskirkju
og þaðan til Reykjavíkur og jólaljós
og skreytingar borgarinnar skoðuð.
Að lokum kaffi og aðventukringla á
Aflagranda. Kr. 2000. Skráning í
síma 587 2888 fyrir mán. 12. des.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Leikfimi kl. 11.30. Tréskurður kl. 13.30.
Boccia kl. 13.30. Dansleikur kl. 20.30.
Sighvatur Sveinsson „Hrókur alls
fagnaðar“ leikur fyrir dansi. Allir vel-
komnir.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgangur
að opinni vinnustofu – postulínsmáln-
ing kl. 9–12. Böðun fyrir hádegi, jóla-
bingó kl. 14, vinningar, kaffi og með-
læti. Fótaaðgerðir í s. 588 2320.
Hársnyrting s. 517 3005.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Jólahlaðborðið er í dag kl.
17. Skráningu lokið. Sími 568 3132.
Vesturgata 7 | Vesturgata 7 |
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30 hann-
yrðir. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður.
Kl. 13.30 sungið við flygilinn við
undirleik Sigurgeirs. Kl. 14.30–16
dansað við lagaval Sigurgeirs.
Rjómaterta í kaffitímanum. Hand-
verkssala verður kl. 13–16. Margt
góðra muna.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, leirmótun kl. 9–13, morgun-
stund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, leirmót-
un kl. 13, bingó kl. 13.30.
Kirkjustarf
Áskirkja | Jólahlaðborð kl. 19. Hug-
vekja og jólasöngvar. Vinsamlegast
tilkynnið þátttöku.
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10–12. Föndrum fyrir jólin.
Fríkirkjan Kefas | Starf fyrir unglinga
er á föstudagskvöldum kl. 20. Sam-
komur og samverustundir sem allir
unglingar eru velkomnir á.
Hallgrímskirkja | Starf með öldruð-
um kl. 11–14. Leikfimi, súpa, kaffi og
spjall.
Íslenski söfnuðurinn í Lundúnum |
Íslensk aðventuguðsþjónusta laugar-
daginn 10. des. í St. Mark’s Unitarian
Church, Castel Terrace, Edinborg,
EH1 2DP og hefst athöfnin klukkan
14.15. Sr. Sveinbjörn Björnsson, prest-
ur í Skotlandi, mun þjóna fyrir altari
ásamt sr. Sigurði Arnarsyni. Safn-
aðarfólk er hvatt til að koma með
eitthvert góðgæti á kaffiborðið.
Keflavíkurkirkja | Heiðarskóli kemur
til kirkju kl. 10.10.
Kirkjuskólinn í Mýrdal | Síðasta
samvera kirkjuskólans fyrir jól verður
í Víkurskóla laugard. 10. des. Syngjum
jólalög, heyrum sögu og horfum á
brúðuleikhúsið. Mætum öll og kæt-
umst fyrir jólin.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl.
10. Fyrirbænir – og einnig tekið við
bænarefnum. Kaffisopi á eftir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
KVENNAKÓR og Karlakór Kópa-
vogs eru hér á æfingu fyrir jóla-
tónleika kóranna sem verða haldnir
í Digraneskirkju í kvöld kl. 20.
Mörg falleg jólalög verða sungin
og einnig munu kórarnir syngja
saman.
Kaffisala verður í hléinu á vægu
verði. Miðasala við innganginn
1.500 kr. á mann en eldri borgarar
fá afslátt. Frítt er inn fyrir yngstu
börnin.
Morgunblaðið/Golli
Kórsöngur í Kópavogi
Listasafnið á Akureyri
Sunnudaginn 11. desember
lýkur sýningu Helga Þorgils
Friðjónssonar í Listasafninu á
Akureyri. Sýningunni, sem ber
heitið Tregablandin fegurð, er
ætlað að veita heilsteypt yfirlit
yfir feril Helga á undanförnum
árum og hefur að geyma mörg
af hans áhrifamestu málverk-
um, auk vatnslitamynda og
skúlptúra.
Sjá nánar á heimasíðu safns-
ins: http://www.listasafn.akur-
eyri.is. Listasafnið er opið alla
daga nema mánudaga frá kl.
12–17.
Sýningum
lýkur
33b er sýningarrými og vinnustofur
myndlistamanna og tónlistarmanna
að Skipholti 33b. Nafnið vísar í hús-
númer, sjúkrahúsdeild, og starfs-
mannaleigur og gangast meðlimir
við öllum skilgreiningum. 33b er
fyrir aftan Bingó í Vinabæ eða
gamla Tónabíói. Hin árlega sýning
vinnustofunnar verður nú um
helgina. Sýnendur eru: Pétur
Thomsen, Karen Ósk Sigurðar-
dóttir, Arndís Gísladóttir, Sandra
María Sigurðardóttir, Sigurður
Breiðfjörð Jónsson, Steindór Ingi
Snorrasons, Arnar Ingi Hreið-
arsson, Margrét M. Norðdahl,
Elísabet Stefánsdóttir og Hrund
Jóhannesdóttir.
Opnun er í kvöld frá kl. 20 - 23 og
opið er um helgina frá 14 - 18. Í
boði er tónlist og myndlist en í
hópnum eru myndlistamenn af sitt-
hverju sauðahúsinu innan geirans
t.a.m. í ljósmyndun, tónlist, mynd-
verkum og gerningum. Á sýning-
unni gefur m.a. að líta hringstiga
úr efnisströngum, umhverfishljóð
frá Sri Lanka, aðflutt landslag á
Kárahnjúkum, glitrandi blúndu-
málverk, gígantísk portrett, krón-
ískar teikningar og tónsmíðar á
heimsmælikvarða. Og að sjálfsögðu
eru veitingar í boði eftir stemmn-
ingu hvert sinnið.
Vinnustofusýning 33b
Í TILEFNI af
því að í ár eru 50
ár liðin frá ótíma-
bæru andláti altó-
saxófónleikarans
og bebop-frum-
kvöðulsins
Charlie Parker
efnir kvartett
Sigurðar Flosa-
sonar til
minningar-
tónleika um
þennan meistara. Tónleikarnir verða
á Café Rosenberg, Lækjargötu, á
laugardag kl. 16–18
Kvartettinn skipa, auk Sigurðar
sem leikur á altó-saxófón, þeir Ey-
þór Gunnarsson á píanó, Valdimar
K. Sigurjónsson á kontrabassa og
Erik Qvick á trommur. Sérstakur
gestur verður altó-saxófónleikarinn
Benjamin Koppel, en hann er einn
fremsti altósaxófónleikari Dana.
„Norrænir vopnabræður munu sem
sagt sameinast í dagskrá tileinkaðri
fuglinum sem flaug fjaðralaus. Flest
lögin sem flutt verða eru eftir Charl-
ie Parker, en einnig kunna að fljóta
með örfáir standardar sem honum
var sérstaklega annt um.
Þeir sem eru í þörf fyrir aukið
jólastress eru sérstaklega hvattir til
að mæta og eyða ófriðsælum eftir-
miðdegi með kvartettinum, Benjam-
in og bebop-tónlist eins af helstu
snillingum djasssögunnar,“ segir
Sigurður Flosason.
Minnast
Charlie
Parker
GLJÚFRASTEINN stendur fyrir
sýningu í Þjóðmenningarhúsinu við
Hverfisgötu í Reykjavík í tilefni af
því að fimmtíu ár eru liðin frá því
að Halldór Laxness fékk nób-
elsverðlaunin í
Stokkhólmi. Sýn-
ingin verður opn-
uð með fjöl-
breyttri dagskrá
á morgun. Dag-
skráin hefst kl.
11 og stendur til
kl. 22 þar sem úr-
val listamanna
kemur fram.
Meðal þess sem
sýnt verður á sýningunni í Þjóð-
menningarhúsinu er kjóll Auðar
Laxness sem hún klæddist við nób-
elsverðlaunaafhendinguna 1955,
borðbúnaður frá Nóbelssafninu í
Svíþjóð, mynd Ósvaldar Knudsen
og nóbelsverðlaunin sjálf.
Þjóðmenningarhúsið verður opið
upp á gátt allan laugardaginn og
verður komið fyrir kaffihúsi í bóka-
salnum þar sem hátíðardagskráin
fer fram. Aðgangur er ókeypis.
Laxnesssýning í
Þjóðmenningarhúsinu
Halldór Laxness
gljufrasteinn.is
GARÐBÆINGURINN Garðar Jök-
ulsson verður með sýningu á verk-
um sínum á Garðatorgi í desember.
Sýningin verður haldin inni á ,,nýja
torginu“, gengið inn við hliðina á
turninum. Garðar opnaði sýn-
inguna laugardaginn 3. desember
sl. þegar ljósin voru tendruð á jóla-
trénu á Garðatorgi.
Garðar er ekki óvanur því að
sýna verk sín á óhefðbundnum sýn-
ingarstöðum þar sem almenningur
á leið um enda segist hann alla tíð
hafa málað fyrir fólkið og vilja færa
listina til fólksins.
Garðar mun sýna verk sín á
Garðatorgi frá fimmtudegi til laug-
ardags í desember. Öllum er vel-
komið að líta inn. Sýningin er hald-
in í samstarfi við Garðabæ.
Garðar Jökulsson
sýnir á Garðatorgi
TVENNIR aðventutónleikar
verða haldnir í Skálholtskirkju á
morgun. Þar koma fram Skál-
holtskórinn og Barna- og kamm-
erkór Biskupstungna ásamt ein-
söngvurunum Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur og Páli Óskari
Hjálmtýssyni, hörpuleikaranum
Monicu Abendroth og strengja-
sveit undir stjórn Hjörleifs Vals-
sonar. Organleikari er Kári Þor-
mar og stjórnandi Hilmar Örn
Agnarsson. Tónleikarnir eru kl.
17 og kl. 20.
Að vanda verður frumflutt nýtt
jólalag Skálholts eftir tónskáld af
heimaslóðum og er það í þetta
sinn eftir Hreiðar Inga Þor-
steinsson úr Laugarási.
Aðventutónleikar í Skálholti
hafa unnið sér sess á undan-
förnum árum í friðsælli umgjörð
Skálholtsstaðar. Einsöngvarar
með Skálholtskórnum hafa verið
margir af virtustu tónlistar-
mönnum landsins og hefur Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Diddú, verið
fastagestur kóranna á aðventu-
tónleikum og í kórferðalögum um
árabil.
Aðventutónleikar í Skálholtskirkju
BERGUR Thorberg verður á ferð-
inni á Akureyri um helgina og sýnir
málverk máluð með kaffi á striga á
Glerártorgi og á Kaffi Amor við
Ráðhústorg. Eins og mörgum er
kunnugt er vinnuferlið hjá Bergi all-
sérstakt þar sem hann vinnur verkin
sín öll á hvolfi og snertir ekki strig-
ann og notar síðan kaffi sem lit þeg-
ar hann vinnur þau. Hann verður
alla helgina á báðum þessum stöðum
og sýnir fólki hvernig hann vinnur
verkin.
Kaffi-
málverk á
Akureyri
www.thorberg.is