Morgunblaðið - 18.12.2005, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 2005 29
FRÉTTIR
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina
til Kanaríeyja í janúar á frábærum
kjörum. Þú bókar og tryggir þér sæti
og 4 dögum fyrir brottför færðu að
vita hvar þú gistir.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Kanarí
17. janúar
frá kr. 29.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
Verð frá kr.29.990
Netverð á mann, m.v. hjón og 2 börn, 2-11
ára, í íbúð í viku 10. eða 17. janúar. Innifalið:
Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Verð frá kr.39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/íbúð/stúdíó
í viku 10. eða 17. janúar. Innifalið: Flug,
skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
10. janúar
Uppselt - aukaflug
Bestu vextir sparireikninga bankans
Verðtryggður reikningur
Auðvelt og þægilegt að spara reglulega
Bundinn þar til barnið verður 18 ára
Þú færð Framtíðarreikning í
næsta útibúi Íslandsbanka
og á isb.is.
*3.000 kr. lágmarksupphæð.
Framtíðarreikningur
fyrir hrausta krakka
Flottur Latabæjarbolur
í jólapakka fylgir Framtíðarreikningi*
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
4
8
0
0
ALLFLEST sveitarfélög á
landinu eru um þessar mund-
ir að senda til íbúa sinna seg-
ulmottur með geðorðunum
tíu, en þau voru sett saman
af forsvarsmönnum Geð-
ræktar.
Stefanía Sörheller, starfs-
maður forvarnarnefndar
Reykjavíkurborgar, segir að
geðorðin séu góður leið-
arvísir í daglegu og lífi og að
þau minni á ábyrgð hvers og
eins á eigin líðan. „Þau eiga
að fara inn á öll heimili í
Reykjavík,“ segir hún.
Geðrækt bauð sveit-
arfélögunum að taka þátt í
þessu verkefni. Segulmott-
urnar eru þeim að kostnaðarlausu,
segir Guðrún Guðmundsdóttir, for-
svarsmaður Geðræktar, en þau sjá
hins vegar um að dreifa þeim á
heimilin. „Flestöll sveitarfélögin á
landinu, nema örfá lítil sveitarfélög
úti á landi og Garðabær, taka þátt í
þessu verkefni,“ segir hún.
Geðorðin tíu eru eftirfarandi:
1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara.
2. Hlúðu að því sem þér þykir
vænt um.
3. Haltu áfram að læra svo lengi
sem þú lifir.
4. Lærðu af mistökum þínum.
5. Hreyfðu þig daglega, það léttir
lundina.
6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu.
7. Reyndu að skilja og hvetja
aðra í kringum þig.
8. Gefstu ekki upp, velgengni í
lífinu er langhlaup.
9. Finndu og ræktaðu hæfileika
þína.
10. Settu þér markmið og láttu
drauma þína rætast.
Geðorðin send
til landsmanna
Segulmottuna er hægt að setja á ísskápinn.
SEXTÁN nemendur
voru nýlega útskrifaðir
frá Ráðgjafaskóla Ís-
lands. Útskriftin fór
fram við hátíðlega athöfn
í Odda, Háskóla Íslands.
Var þetta þriðja útskrift
Ráðgjafaskóla Íslands,
sem stofnaður var vorið
2004. Við útskriftina
voru jafnframt fyrstu Ís-
lendingunum afhent al-
þjóðleg skírteini frá
ICRC (International
Certification and Re-
ciprocity Consortium /
Alcohol and Other Drug
Abuse), en forsenda
slíkrar viðurkenningar
er að viðkomandi hafi lokið þriggja
ára starfsnámi og þrjú hundruð
klukkustunda faglegu námi. Það var
Jeff Wilbee, forseti ICRC sem af-
henti skírteinin, en alls voru afhent
37 skírteini. Í fréttatilkynningu frá
Ráðgjafaskólanum kemur fram að
þetta marki mikil tímamót fyrir ís-
lenska áfengis- og vímuefnaráðgjafa
sem barist hafa fyrir því að fá starf
sitt viðurkennt sem fag af íslenskum
yfirvöldum.
Þriðja útskrift Ráð-
gjafaskóla Íslands
Stefán Jóhannsson, skólastjóri Ráðgjafaskóla
Íslands, afhendir hér Guðrúnu B. Ágústsdóttur
skírteini sitt, en hún var einn sextán ráðgjafa
sem útskrifaðir voru nýlega.
Morgunblaðið/Sverrir