Morgunblaðið - 18.12.2005, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 2005 33
FRÉTTIR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
2
2
9
2
4. sæti
Skáldverk
Mbl.
6. – 12. des.
2. sæti
Skáldverk
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
7. des. – 13. des.
„Tekur í hjartað“
3. prentun
væntanleg
2. prentun
á þrotum
1. prentun
uppseld
2005
edda.is
Steinunn Sigurðardóttir
„Sólskinshestur er hið mesta hnossgæti, sem á mínum bæ yrði hvenær sem
er tekið fram yfir allt heimsins jólakonfekt ... Steinunn er í fantaformi“
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, RÚV
„Frábærlega falleg bók, áhrifarík og býður lesanda upp á háskalega og
heillandi tilfinningalega rússibanaferð ... Sparibók sem veitir lesandanum ósvikna
ánægju, jafnt í rigningu sem sólskini.“
Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is
„Bók Steinunnar hittir beint í hjartastað ... Það er í henni einhver innri
ljómi.“
Skafti Þ. Halldórsson, Mbl.
„Hér sýnir Steinunn allar sínar bestu hliðar.“
Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljósið
„Lesandinn finnur strax að hér er höfundurinn aftur á heimavelli. Steinunn kann
þá list að hrífa lesandann með sér.“
Halldór Guðmundsson, Fbl.
„Sólskinshestur í myrkrinu ... tekur í hjartað.“
Sigríður Albertsdóttir, DV
31 NEMANDI af grunnnámsdeild
Lögregluskóla ríkisins brautskráðist
síðastliðinn föstudag við athöfn í Bú-
staðakirkju. Hafa flestallir ráðið sig
til lögreglustarfa hjá lögreglunni í
Reykjavík. Í útskriftarhópnum voru
sex konur og er hópurinn í heild álíka
fjölmennur og undanfarin ár. Þó er
meðalaldur nemendanna með því
hæsta sem þekkst hefur, eða 28 ár.
Hefur meðalaldur útskriftarnema yf-
irleitt verið 26-27 ár á liðnum árum.
Viðamestu greinarnar í lögreglu-
skólanum eru lögfræði- og réttar-
farstengdar greinar, auk skýrslu-
gerðar, verklegra æfinga, framkomu
og líkamsþjálfunar af ýmsu tagi.
Meðal nýrra námsgreina er siðfræði
sem lögð hefur verið aukin áherslu á
að sögn Gunnlaugs Snævars yfirlög-
regluþjóns.
Þess má geta að 140 umsækjendur
sóttu um skólavist fyrir árið 2006. Þar
af stóðst 51 umsækjandi öll próf og
voru 36 teknir inn.
Vegna meiri skorts á menntuðum
lögreglumönnum en ætlaður hafði
verið og eftir samráð við hlutaðeig-
andi aðila var ákveðið að fjölga nem-
endum úr 32 í 36.
31 brautskráður úr
lögregluskólanum
DREGIÐ hefur verið í Tívolí-
baunaleik Merrild en í vinning voru
Tívolí útvörp, Senseo kaffivélar og
tvær helgarferðir fyrir tvo til
Kaupmannahafnar í jólatívolí með
Iceland Express.
Vinningarnir fóru til þeirra sem
fundu Tívolí baun í Merrild kaffi-
poka frá heildverslun Daníels
Ólafssonar. Það voru Auður Anna
Pedersen og Hjörleifur Stefánsson
sem unnu tívolí-helgarferð fyrir tvo
í boði Merrild kaffi og Iceland Ex-
press, segir í fréttatilkynningu.
Á myndinn er vinningshafinn
Auður Anna Pedersen og Heimir
Már Helgason markaðsfulltrúi hjá
Danól.
Unnu ferð til
Kaupmanna-
hafnar
Fréttir
í tölvupósti