Morgunblaðið - 18.12.2005, Side 38

Morgunblaðið - 18.12.2005, Side 38
38 SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ S ystkinin Arnór, Geir- finnur, Guðrún, Inga Dagmar og Jón Karls- börn hafa afsalað til Háskólans á Akureyri öllum eignarhlutum sínum í jörðinni Vé- geirsstöðum í Fnjóskadal. Jörðin er þar með nánast öll í eigu háskólans, því árið 1995 færðu systkinin og fleiri ættmenni skólanum hluta jarðarinnar að gjöf. Að auki afsöluðu Arnór og Geirfinnur nú í sumar þremur sumarhúsum, bænahúsi og fleiri eignum á Végeirs- stöðum til háskólans. Þá afhenti Geir- finnur Végeirsstaðasjóði 10 milljónir króna sem nýta skal til uppbyggingar á Végeirsstöðum. Fyrir 10 árum færði Arnór Háskólanum á Akureyri að gjöf 40 listaverk eftir ýmsa af bestu listamönnum þjóðarinnar og þrjá skúlptúra eftir japanskan lista- mann í tilefni af flutningi skólans á framtíðarsvæðið á Sólborg. Árið 1998 færði Arnór háskólanum að gjöf tvær fasteignir, íbúð í raðhúsi við Furul- und og verslunarhúsnæði í Sunnu- hlíð. Að auki ánafnaði Arnór háskól- anum allt innbú sitt í Furulundi, þar á meðal 30 málverk. Gjafirnar voru bundnar því skilyrði að andvirði eign- anna yrði notað til stofnunar gjafa- sjóðs til uppbyggingar rannsóknar- starfs á Végeirsstöðum. Blaðamaður Morgunblaðsins heimsótti þá bræður, Geirfinn og Arnór, en þeir búa saman í raðhúsa- íbúðinni í Furulundi, og forvitnaðist um þessa miklu velgjörðarmenn Há- skólans á Akureyri. Arnór sagði að það hefði verið full eining innan systkinahópsins um að færa háskól- anum jörðina í Fnjóskadalnum að gjöf. „Við höfum haft mikla trú á skól- anum frá upphafi. Uppbygging hans hefur gengið vel og það er í raun ótrú- legt að nemendur skuli vera orðnir 1.500 á ekki lengri tíma. Háskólinn á eftir að stækka og dafna enn frekar á næstu árum og við erum því ánægð með að geta lagt okkar að mörkum. Haraldur Bessason, fyrrverandi rektor, hóf starfið í skólanum með þrjár bækur í farteskinu. Skólinn er aðeins kominn á unglingsaldur en hefur alla burði til þess að verða stærsti háskóli landsins.“ Arnór sagði jafnframt að ríkisvaldið þyrfti að leggja meiri áherslu á að efla há- skólastigið við Eyjafjörð, slíkt væri nauðsynlegt fyrir byggð á Norður- og Austurlandi. Lagði 10 milljónir króna í sjóð til uppbyggingar á jörðinni Geirfinnur sagði að samvinna Há- skólans á Akureyri og Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri væri mjög jákvæð og í raun lykilatriði í starfi beggja stofnana. Fjölgun lækna og sérfræðinga við FSA gerði það að verkum að hægt yrði að taka á móti fleiri sjúklingum, líka af höfuðborg- arsvæðinu. Geirfinnur lagði 10 millj- ónir króna í Végeirsstaðasjóð, sem nýta á til uppbyggingar á jörðinni. Arnór sagði að framlag Geirfinns væri undirstaða sjóðsins en að fleiri þyrftu að leggja fram fjármagn svo hægt yrði að efla hann enn frekar og standa að frekari uppbyggingu á Vé- geirsstöðum. Þeir bræður sjá fyrir sér að reist verði stórt og myndarlegt hús á Végeirsstöðum, ráðstefnu-, funda- og kennsluhúsnæði, þar sem verði aðstaða fyrir nemendur og gesti háskólans. „Ég hvet alla þá sem áhuga hafa á tækni, vísindum og mannlegum eiginleikum til að leggja sjóðnum lið,“ sagði Arnór. Fólkið vaxið með skóginum Skógrækt hófst á jörðinni fyrir um 50 árum og þar eru hæstu trén orðin 25 metrar á hæð. Geirfinnur sagði að þar hefðu m.a. verið gróðursettar margar tegundir af birki, sem væri alveg stórkostleg planta. Móðir þeirra bræðra, Karítas Sigurðardótt- ir frá Draflastöðum í Fnjóskadal, fékk Végeirsstaði í arf. „Móðir okkar hafði mikinn áhuga á skógrækt og það var hún sem hóf þessa vinnu þar og gerði staðinn að skógræktarjörð. Við systkinin héldum starfi hennar áfram, þannig að fólkið hefur vaxið með skóginum,“ sagði Arnór. Árið 1992 var byggt bænahús á jörðinni og sagði Arnór að það hefði verið rekið á eftir sér við það verk. „Það var ein- hver sem hvíslaði í eyra mér.“ Árið 1986 var byggð vatnsaflsvirkjun á Végeirsstöðum og var hún endur- byggð árið 1997. Virkjunin framleiðir 14-16 megavött og sér jörðinni fyrir rafmagni, sem er notað bæði til lýs- ingar og til upphitunar á vatni. Bróðir Karítasar, Sigurður Sig- urðsson, fyrrverandi búnaðarmála- stjóri, var skólastjóri á Hólum í Hjaltadal í 18 ár en síðan tók Krist- ján, bróðir þeirra Arnórs og Geir- finns, við skólastjórastöðunni og gegndi henni í 25 ár. Sigurður plant- aði fyrstu plöntunum á Hólum en síð- an tók Kristján við. Þeir Arnór og Geirfinnur fóru báðir í búnaðarskól- ann á Hólum á sínum tíma. Geirfinn- ur starfaði lengst af hjá Guðrúnu systur sinni og manni hennar, Sigurði Guðmundssyni, í Klæðaverslun Sig- urðar Guðmundssonar á Akureyri, eða frá 1955 til 1997. Hann hafði áður starfað hjá Prentverki Odds Björns- sonar og í pappírsverksmiðju í Sví- þjóð. „Eftir að ég hætti að vinna gat ég varið enn meira tíma í skógrækt- ina fyrir austan,“ sagði Geirfinnur. Var í blómabransanum í 54 ár Arnór kom til Akureyrar árið 1942 og hann er þekktastur fyrir rekstur sinn á Blómabúðinni Laufási. Hann starfaði í blómabransanum í samtals 54 ár. Hann sá um rekstur á blóma- búð KEA í 24 ár en keypti svo fyr- irtækið og rak blómabúðina í eigin nafni í 30 ár til viðbótar. „Það voru sérstaklega tveir heiðursmenn sem hvöttu mig til góðra verka og reynd- ust mér vel, þeir Jakob Frímannsson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri, og Jón G. Sólnes, fyrrverandi bankastjóri.“ Arnór er 87 ára gamall og Geir- finnur 84 ára. Heilsu þeirra er farið að hraka „en öllu skiptir að vera létt- ur í lund,“ sagði Geirfinnur. Þeir bræður vildu koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem lagt hafa hönd á plóginn á Végeirsstöðum en þeir eru fjölmargir. Háskólinn á Akureyri hefur eignast nánast alla jörðina Végeirsstaði í Fnjóskadal Gefendur vonast til að sjá þar rísa rannsókna- og kennsluhús Fimm systkini á Akureyri hafa afsalað sér eigna- hlutum sínum í jörðinni Vé- geirsstöðum í Fnjóskadal til Háskólans á Akureyri sem einnig hefur hlotið fjölda annarra góðra gjafa frá þeim. Kristján Kristjánsson ræddi við bræðurna í þess- um gjafmilda systkinahópi. krkr@mbl.is Morgunblaðið/Kristján Skógrækt hófst á Végeirsstöðum fyrir um 50 árum og eru hæstu trén orðin 25 metra há. Systkinin Arnór, Guðrún og Geirfinnur fyrir framan bænahúsið á Végeirsstöðum. Geirfinnur Karlsson, fyrir miðju, sýnir gestum Skógargyðjuna, styttu sem stendur á landareigninni. Morgunblaðið/Kristján Arnór Karlsson í bænahúsinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.