Fréttablaðið - 17.11.2005, Qupperneq 70
FIMMTUDAGUR 17. nóvember
2005
46
maturogvin@frettabladid.is
Verð einungis
1.750 kr. í hádeginu
2.200 kr. föstudagskvöld (nýtt)
Í tilefni Þakkagjörðardagsins 24. nóvember
2005 bjóðum við upp á hina árlegu
kalkúnaveislu að hætti Bandaríkjamanna.
Einungis þrjú skipti.
Í hádeginu fimmtudaginn 24. nóvember og
föstudaginn 25. nóvember.
Nýjung í ár:
Kalkúnaveisla föstudagskvöldið 25. nóvember
Borðapantanir í síma
511 6030
Ath! Í fyrra komust færri að en vildu.
Pantið tímanlega.
Eftirréttur og
kaffi að loknu
kalkúnahlaðborði
Ilmkerti virka
Þau skapa góða stemningu þegar vanillu-, rósa-
eða hunangslykt fyllir vitin og framkalla rétta
andrúmsloftið.
> Ilmkerti frá L´occitane
Koníaks- og rjómalíkjörinn
franski La Belle Cream er 17% að
styrkleika, framleiddur úr 100%
koníaki. Hann er silkimjúkur,
sætur en þurr með karamellu- og
kaffibragði og djúpum koníaks-
keim. Fínleikinn vekur bragðlauk-
ana. Léttur, fíngerður og ódýrari
en aðrir rjómalíkjörar. Heillandi
þægindi einkenna hann, hægt er
að bera hann fram á hefðbundinn
hátt á klaka, hressandi í kaffið
hvort sem er í heitt kaffi eða sval-
andi ískalt expresso-Belle Cream.
Og auðvitað í konfektið!
La Belle Cream kostar 1.990 krón-
ur og fæst í flestum vínbúðum.
LA BELLE CREAM BRÛLÉE:
(Handa 6 manns)
500 g rjómi
6 eggjarauður
90 g sykur
1 vanillustöng
Börkur af einni appelsínu
4 g matarlím (2 blöð)
4 cl La Belle Cream líkjör
Hrásykur
Blandið sykri og eggjarauðum
saman. Hitið rjómann að suðu
með vanillustöng og appelsínu-
berki. Blandið saman við eggja-
rauðurnar án þess að þeyta. Bætið
matarlími í og sigtið. Bætið La
Belle Cream rjómalíkjörnum út
í. Hellið í skálar og kælið í tvo
til þrjá tíma. Sáldrið hrásykri
á yfirborðið. Brennið undir vel
heitu grillinu í ofninum eða með
gasbrennara. Berið fram strax
með glasi af La Belle Cream. Til
að hafa enn meiri stemningu er
hægt að bæta appelsínuberki og
lichi-sorbet frá Sandholts bakaríi
ofan á.
Uppskrift frá Ásgeiri Sandholt í
Sandholts bakaríi.
LA BELLE CREAM:
Jólalíkjörinn í ár.
LA BELLE CREAM RJÓMALÍKJÖR
Hvaða matar gætir þú síst verið án?
Það er ansi margt. En reglulega verð ég að fá
rosalega gott kjöt. Mér finnst rosalega gott að
fá mér góða nautasteik, en fjárhagsins vegna
sætti ég mig við lamb. Góður fiskur verður líka
að vera og ég er líka orðinn mikið fyrir kjúkling,
sem ég var ekki.
Fyrsta minningin um mat?
Ég hef sennilega verið á öðru aldursári þegar
ég man eftir að hafa séð krukku af eplamauki
uppi í hillu hjá mömmu.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Það var réttur sem ég fékk á Vox á dögunum.
Ég fékk að smakka hina og þessa rétti af mat-
seðlinum og eins ótrúlega og það hljómar voru
þeir hver öðrum betri.
Er einhver matur sem þér finnst vondur?
Ég fúlsa ekki við neinu. Sjálfsagt er eitthvað út
í heimi sem á ekki við mína bragðlauka en ég
hef ekki lagt mér það til munns enn.
Leyndarmál úr eldhússkápunum?
Já, ég luma á leyndarmáli en gæfi ég það upp
væri það ekki leyndarmál.
Hvað borðar þú til að láta þér líða betur?
Til að láta mér líða betur finnst mér gott að
elda eitthvað og það er aðallega matseldin
sem slík sem veitir mér vellíðan. Ég elda mjög
mikið, kannski líður mér alltaf svona illa, hver
veit. En ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur.
Hvað áttu alltaf í ísskápnum?
Mjólk, egg, lýsi, ávexti og grænmeti. Ég er
duglegur að uppfæra í ísskápnum.
Ef þú yrðir fastur á eyðieyju, hvaða rétt
tækir þú með þér?
Ég myndi taka með mér kjúklingaréttinn
hennar mömmu. Hann er geðveikur og líka svo
góður daginn eftir.
Hvað er það skrítnasta
sem þú hefur borðað?
Það er krókódíla-
hamborgari sem ég
fékk í Bandaríkunum.
En það kom á daginn
fimm dögum seinna
að þetta var ekki krókó-
dílakjöt, heldur eitthvert
kjöt sem hafði
verið barið í
tægjur. En í
fimm daga var
krókódíll inn
það skrítnasta
sem ég hafði
borðað.
Krókódíllinn var skrýtinn í fimm daga
„Þrautir, klúbbakeppni, eðalhorn,
fræðsla og að sjálfsögðu smökkun á
mat og víni. Þetta er svona í grunn-
inn það sem verður í boði hjá okkur
á Vínsýningunni 2005 í Smáralind
um helgina. Markmið okkar er að
allir áhugamenn um mat og vín geti
fundið sitthvað við sitt hæfi á þess-
ari viðamestu vínsýningu sem sett
hefur verið upp hér á landi. Þarna
mun fólk hafa einstakt tækifæri
til að hafa aðgang að úrvali vína
og fjölda sérfræðinga.“ segir Jóna
Grétarsdóttir, sem situr í sýning-
arstjórn sýningarinnar. Hún hefur
ásamt Dominique Plédel Jónsson
staðið í ströngu undanfarnar vikur
við að undirbúa sýninguna ásamt
meðlimum Vínþjónasamtakanna og
starfsfólki ÁTVR, en þessir tveir
aðilar standa að sýningunni ásamt
innflutningsaðilum. „Vín er orðið
mun hversdagslegri þáttur í matar-
menningu Íslendinga en áður var
og jafnframt óhátíðlegri og óform-
legri. Í samræmi við þessar breyt-
ingar verður sýningin afslöppuð og
fólk þarf ekki að vita neitt um vín til
að njóta hennar, bara hafa áhugann
á að njóta góðra vína og vilja auka
við þekkingu sína.“
Þó að sýningaraðilar taki sig ekki
hátíðlega eru hátíðarvín hins vegar
í forgrunni en um helgina hefjast
hátíðardagar í Vínbúðum þar sem
fjölmörg vín sem henta með matn-
um um komandi stórhátíðir verða í
hávegum höfð og sum þeirra verða
boðin á sérstöku kynningarverði.
Innflutningsaðilar sem taka þátt í
sýningunni munu kynna þessi vín og
bjóða upp á smökkun á þeim og ráð-
gjöf um samsetningu víns og matar.
„Það er gleðilegt að fólk hugsar
sífellt meira um vín í samhengi
við matinn og á sýningunni verða
fleiri aðilar sem bjóða upp á mat
en nokkru sinni fyrr. Einnig verð-
ur boðið upp á alls kyns „gourmet“
mat, kaffismakk og konfekt, osta og
súkkulaði en það á eftir að bræða
gesti sýningarinnar“, segir Domin-
ique.
Vandað glas á mann
„Allir gestir sýningarinnar fá
vandað vínglas til eignar og ganga
á milli sýningarbása og fá vín í
glasið til smökkunar. Hver og einn
fer í gegnum sýninguna á sínum
hraða og við verðum með ýmislegt
til skemmtunar annað en að gæða
sér á góðu víni. Þeir sem vilja geta
prófað að leysa nokkrar skemmti-
legar þrautir og verða fjölbreytt
verðlaun í boði. Þarna verða líka
kynningar á ýmsum fylgihlutum
svo sem upptökurum, glösum og
karöflum og býðst sýningargestum
afsláttur í útvöldum verslunum í
Smáralind sem bjóða upp á slíkar
vörur. Það er ótrúlega mikið sem
fólk fær fyrir þúsundkallinn,“ segir
Dominique og bætir við að fólk geti
verið á sýningunni klukkutímum
saman ef því er að skipta því fyrir-
lestrar verða á klukkutíma fresti og
ýmislegt til sýnis. „Á bás Vínbúð-
anna verða sýndir margir gamlir
hlutir sem tengjast sögu vínmenn-
ingar á Íslandi,“ segir Jóna. „Það er
virklega gaman að sjá hvernig tíðar-
andinn hefur breyst, þarna getur
fólk gluggað í gamlar skömmtun-
arbækur karla og kvenna, en hér
áður fyrr fékk hver Íslendingur
ákveðinn kvóta og þurfti að fram-
vísa sérstökum skömmtunarbókum
við vínkaup. Einnig þurfti fólk að
kvitta undir sérútbúna yfirlýsingu
ef það fékk flösku á borðið til sín á
veitingastöðum.“
Lyktarprófunarglös
Vínbúðirnar hafa breyst gríðar-
lega í takt við breytta tíma og á bás
þeirra getur fólk kynnt sér ýmis-
legt skemmtilegt um nútímann ekki
síður en fortíðina. „Vínsérfræðing-
ar Vínbúðanna munu kynna sérstak-
lega fjórar þrúgur og fræða fólk
um einkenni þeirra í gegnum lykt-
arskynið. Þannig fá gestir tækifæri
til að þjálfa þefskynið með aðstoð
„lyktarprófunarglasa“ og geta þeir
borið ólíkan ilm saman við vínin.
Þetta er afar skemmtileg leið til að
veita manni innsýn í hvernig vínum
er lýst. Eftir að hafa prófað þetta
sjálf skildi ég miklu betur hvað við
var átt þegar talað var um að vínin
lyktuðu eins og súkkulaði, mold,
tóbak, ananas eða vanilla. Vínbúð-
irnar leggja mikla áherslu á fræðslu
og ábyrga umgengni og við hvetjum
fólk til að taka leigubíl heim eftir
góða smökkun ef þannig stendur á.
Það er tuttugu ára aldurstakmark á
sýninguna og þeir sem eru rétt um
tvítugt mega eiga von á því að verða
spurðir um skilríki,“ segir Jóna.
Á sunnudeginum verður einn af
hápunktum sýningarinnar, spurn-
ingakeppni milli vínklúbba og mun
enginn annar en konungur spyrl-
anna, Logi Bergmann Eiðsson, vera
við stjórnvölinn. „Keppnin sló í
gegn á sýningunni í fyrra, vínklúbb-
um er sífellt að fjölga hér á landi og
það eru lygilega margir orðnir vel
að sér um vínheiminn,“ segir Dom-
inique, sem verður yfirdómari sem
fyrr.
Vínsýning í takt við tímann
MATGÆÐINGURINN GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON
Í Eðalhorninu á vínsýningunni munu menntaðir vínþjónar leiða fólk í
gegnum smakkanir á gæðavínum og miðlað verður fróðleik um vínin
og uppruna þeirra.
Haldin verða örnámskeið, um hálftími að lengd, og kostar 1.000 kr.
inn. Smökkuð verða þrjú til fimm vín, sum dýr og vandfundin.
Laugardagur:
Kl. 14 Nýju svæðin á Spáni.
Umsjón: Stefán B. Guðjónsson.
Fyrir utan Rioja og Penedes er verulega margt spennandi að gerast á
Spáni í dag. Fjallað um þessi nýju svæði og dæmigerð vín smökkuð.
kl. 15 Slow Food-vín.
Umsjón: Þorri Hringsson.
Gambero Rosso, innan Slow Food hreyfingarinnar, veitir á hverju ári
þrjú glös fyrir bestu vínin, sem eru bestu tákn fyrir upprunasvæðin.
Mjög athyglisvert örnámskeið um ítölsk vín.
kl. 16 Syrah og Shiraz
Umsjón: Stefán B. Guðjónsson.
Hvort tveggja sama þrúgan, en þó svo ólík eftir því hvernig nafnið
hennar er skrifað - tákn um uppruna. Það verða stór vín úr þeim
báðum.
kl. 17 Kampavín fyrir hátíðarnar.
Umsjón: Sævar Már Sveinsson.
Ekki er allt sem freyðir kampavín, en það er mjög sjaldgæft að hægt
sé að bera saman mismunandi kampavínstegundir. Glæsileiki um
hátíðarnar.
Sunnudagur:
kl. 14 Kampavín fyrir hátíðarnar.
Umsjón: Sævar Már Sveinsson.
kl. 15 Roussillon og lífræn ræktun
Umsjón: M. Pujol frá Frakklandi
Háttskrifað hérað í dag, þétt og merkileg vín - þar að auki úr lífrænt
ræktuðum berjum. Stór og mikil vín, mjög forvitnilegt.
kl. 16 Syrah og Shiraz.
Umsjón: Stefán B. Guðjónsson.
kl. 17 Bordeaux og hátíðamatur.
Umsjón: Sævar Már Sveinsson.
Bordeaux verður alltaf viðmiðunin og stóru vínin þaðan svíkja aldrei.
Einstakt tækifæri til að smakka ómissandi hátíðarvín.
Dagskrá Eðalhornsins á Vín 2005