Fréttablaðið - 17.11.2005, Page 77
Samkvæmt bandaríska blaðinu New York
Post mun Christina
Aguilera ganga í það
heilaga á næstu dögum.
Reiknar blaðið með að
unnusti hennar, Jordan
Bratman, dragi hring á
fingur söngkonunnar um
næstu helgi. Samkvæmt
heimildum New York
Post mun Aguilera
klæðast brúðarkjól
frá Christian Lacroix
en brúðarmeyjarnar
verða í fatnaði frá
hönnuðinum Kai Milla, eiginkonu Stevie
Wonder. Blaðið sagðist hafa áreiðanleg-
ar heimildir fyrir því að brúðkaupið færi
fram í Mexíkó.
New York Post greindi frá því á miðvikudaginn að Halle Berry
yrði næsta andlit Versace. Mun hún
taka við af Madonnu sem gegnt hefur
„sendiherrastöðu“ tískurisans undan-
farið ár. Blaðið greinir frá því
að ljósmyndarinn Mario Test-
ino hafi tekið myndir af
leikkonunni í Los Angeles
og að þær eigi að nota í
næstu herferð Versace.
Keira Knightley er víst orðin
örmagna af þreytu
ef marka má fréttir
contactmusic.com
fréttavefsins. Hún er
um þessar mundir
stödd við tökur á
framhaldsmyndunum tveimur af Pirates
of the Caribbean og ætlar víst að taka
sér langt frí að þeim loknum. Í samtali
við fréttavefinn
sagði leikkonan
að hún hefði
neyðst til að
vinna 32 tíma
samfleytt en
helgina áður hefði
sama verið
uppi á ten-
inginum. „Ég
þarfnast virki-
lega hvíldar,“
sagði
Knightley.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hljómsveitin Jakobínarína mun
hita upp fyrir tónleika rokkdúetts-
ins The White Stripes í Laugar-
dalshöll á sunnudaginn.
Meðlimir The White Stripes og
aðstandendur sveitarinnar fengu
tillögur að tíu íslenskum hljóm-
sveitum til að hita upp og varð
Jakobínarína fyrir valinu. Þess
má geta að Jakobínarína, sem sló
í gegn á Iceland Airwaves, mun
á næstunni fara út og spila á tón-
leikahátíðinni South by Southwest
í Texas.
Jakobínarína hitar upp
JAKOBÍNARÍNA Hljómsveitin Jakobínarína
mun hita upp fyrir The White Stripes.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI