Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.12.2005, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 20.12.2005, Qupperneq 4
SPÁNN Fleiri íbúðir hafa verið byggðar í Malaga á suðurströnd Spánar síðustu þrjú árin en í öllu Katalóníuhéraði samkvæmt tölum spænskra yfirvalda. Eru strandhéruð landsins, og þá sérstaklega á suðurströndinni, í miklum uppvexti og ekkert lát virðist á áhuga innlendra sem erlendra aðila að byggja og setjast þar að. Er nú gert ráð fyrir að sex hundruð þúsund nýjar íbúðir rísi í Andalúsíu á næstu tíu árum og mun meirihluti þeirra verða í eigu útlendinga. ■ Mikill uppvöxtur á Spáni: Hálf milljón nýrra íbúða LADISLAV NIZNANSKY Kveðst syrgja dauða þeirra sem létust í fjöldamorðum nasista í Slóvakíu, sem hann beri ekki ábyrgð á. MÜNCHEN, AP Fyrrverandi liðsfor- ingi nasista, hinn tæplega níræði Ladislav Niznansky, var í gær sýknaður af ákæru um þátttöku í þremur fjöldamorðum í Slóvakíu í lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Saksóknari hafði krafist hámarksrefsingar yfir Niznansky, eða lífstíðarfangelsis. Verjendur hans sögðu hann saklausan. Niznansky kveðst hafa verið neyddur til þess að ganga erinda nasista við að berja niður uppreisn Slóvaka gegn ríkisstjórn landsins, sem þá fylgdi þýsku nasistastjórn- inni að málum. ■ Fyrrum liðsforingi nasista: Sýknaður af morðákæru Barn misnotaði barn Þrettán ára gamall piltur er grunaður um að hafa misnotað sjö ára gamla stúlku á salerni bókasafns í Brighton í Michigan. Stúlkan var með móður sinni sem leit af henni eitt andartak. Lögreglan kom á vettvang og er nú pilturinn í haldi á sérstakri stofnun fyrir unga afbrotamenn. BANDARÍKIN Tölvunám í jólapakkann Gjafabréf á tölvunámskeið er frábær jólagjöf. Gjafabréf á námskeið fyrir eldri borgara 60 ára og eldri. Byrjendur eða framhald. Verð kr. 19.500 Gjafabréf á námskeið um stafrænar myndavélar og meðferð stafrænna mynda. Verð kr. 15.000 G J A F A B R É F Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is Keyrði á ljósastaur Ungur ökumaður missti stjórn á bíl sínum í hálku á Akureyri í gærkvöld og ók á stag að stórum rafmagnsstaur. Litlu munaði að hann steyptist niður bratta hlíð við hlið vegarins. Ljósastaurinn brotnaði við höggið og féll ásamt raflínunum til hliðar við bílinn. Ökumaðurinn flúði á bílnum af vettvangi en var stöðvaður af lögreglu norður á Tjörnesi. LÖGREGLUFRÉTTIR 4 20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 19.12.2005 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 62,67 62,97 Sterlingspund 110,55 111,09 Evra 75,22 75,64 Dönsk króna 10,087 10,147 Norsk króna 9,392 9,448 Sænsk króna 7,965 8,011 Japanskt jen 0,5386 0,5418 SDR 90,36 90,9 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 105,6238 HEILBRIGÐISMÁL Tæplega 30 þúsund Íslendingar nýttu sér reglulega þjónustu sjúkraþjálfara á síðasta ári samkvæmt tölum Trygginga- stofnunar. Hefur þeim fjölgað ört hin síð- ari ár sem á sjúkraþjálfun þurfa að halda. Var fjöldinn rúmlega 20 þúsund árið 1998 og hefur fjölgað um eitt til tvö þúsund manns á ári hverju síðan þá. Meðalfjöldi koma á hvern sjúkling hefur ennfrem- ur aukist úr 16,5 skiptum á ári í rúmlega 18 skipti. ■ SJÚKRAÞJÁLFUN Tæplega 30 þúsund manns nýttu sér þjónustu sjúkraþjálfara á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Æ fleiri fara til sjúkraþjálfara: Tæplega 30 þúsund á ári BANDARÍKIN George W. Bush, for- seti Bandaríkjanna, sagði á blaða- mannafundi í gær að það væri skylda sín að vernda þjóð sína fyrir árásum hryðjuverkamanna og í því skyni væru fjarskiptahler- anir nauðsynlegar, jafnvel þótt þær væru án dómsúrskurðar. Uppljóstranir dagblaðsins New York Times í síðustu viku hafa vakið athygli en þar var greint frá því að í kjölfar árásanna 11. sept- ember 2001 hefði Bush heimilað Þjóðaröryggisstofnuninni NSA að hlera síma og lesa tölvupóst fólks í Bandaríkjunum sem grun- að er um að eiga í samskiptum við erlenda hryðjuverkamenn, án umfjöllunar dómstóla. Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær sagði forsetinn hins vegar að hann hefði leyft hleran- irnar vegna þess að oft væri tím- inn of naumur til að fá úrskurð. „Þetta eru nýir tímar, nýtt stríð. Fólk skiptir um símanúmer á augabragði.“ Hann bætti því við að aðgerðunum yrði haldið áfram „svo lengi sem þjóðin byggi við ógnanir óvinar sem vilji myrða bandaríska þegna“. Á sunnudag hvatti Harry Reid, leiðtogi demókrata í öldungadeild þingsins, til að óháð rannsókn færi fram á hlerununum. Í gærmorgun sagði Alberto Gonzales dóms- málaráðherra hins vegar að þegar Bandaríkjaþing veitti forsetanum heimild til að beita hernum eftir að árásirnar 11. september hefði leyfi til símahlerana falist í henni. Bush tók svo í sama streng í ræðu sinni síðar um daginn. Russell Feingold, öldungadeildaþingmað- ur demókrata, vísaði hins vegar þessum skilningi algerlega á bug í samtali við dagblaðið Washington Post í gær. Bush skaut föstum skotum á þá demókrata sem staðið hafa gegn því að atkvæðagreiðsla færi fram um endurnýjun löggjafar um aðgerðir gegn hryðjuverkamönn- um sem sett voru haustið 2001. „Ég skora á öldungadeildarþing- menn sem eru frá New York, Los Angeles og Las Vegas að skýra út fyrir sínum umbjóðendum hvers vegna þessar borgir eru örugg- ari en aðrar,“ og átti hann þar við Hillary Clinton, sem er frá New York og Harry Reid, frá Nevada. Í ræðu sinni viðurkenndi for- setinn einnig að gallaðar leyni- þjónustuupplýsingar um gereyð- ingarvopnaeign Íraka kynnu að reynast Bandaríkjamönnum fjöt- ur um fót ef taka ætti Írana föst- um tökum, erfitt yrði að sannfæra fólk um að upplýsingar um Íran væru réttar. sveinng@frettabladid.is Bush segir að þingið hafi leyft hleranirnar George W. Bush Bandaríkjaforseti vísaði gagnrýni vegna fjarskiptahlerana án dómsúrskurðar á bug í gær og sagði þær nauðsynlegar til að vernda landsmenn fyrir hryðjuverkum. Hann skaut meðal annars skotum að Hillary Clinton. ÚR VÖRN Í SÓKN Bush gagnrýndi öldungadeildarþingmenn demókrata fyrir að standa gegn endurnýjun föðulandslaganna svonefndu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BÓLIVÍA Forsetaframbjóðandinn Evo Morales virtist í gærkvöld hafa tryggt sér meirihluta atkvæða í forsetakosningun- um í Bólivíu. Helsti keppinaut- ur hans, Jorge Quiroga, hefur þegar játað ósigur sinn. Morales er fyrsti indjáninn sem kosinn er forseti í landinu en yfir helmingur þeirra sem þar búa eru af indjánaættum. Þeir hafa löngum átt undir högg að sækja vegna fordóma í sinn garð en Morales hefur heitið því að svo verði ekki í þeirri fram- tíð sem hann hyggst búa lands- mönnum. Morales er sagður afar vinstrisinnaður en hann hefur heitið því að færa verðmæti landsins aftur til fólksins. Talið er hann eigi þar við miklar gas- lindir í landinu sem eru flestar í eigu erlendra stórfyrirtækja. Hann hefur auk þess sagst ætla að lögleiða kókaræktun í landi sínu en það er uppistöðu- efnið til framleiðslu kókaíns. Þær yfirlýsingar hans hafa ekki fallið í kramið hjá Banda- ríkjamönnum en bandamönnum þeirra í S-Ameríku fer hægt og sígandi fækkandi. Staðfest úrslit úr forseta- kosningunum liggja svo fyrir í dag. - aöe Forsetaframbjóðandinn Evo Morales lofar að reisa Bólivíu úr öskustónni: Morales er öruggur um sigur NÝR LEIÐTOGI BÓLIVÍU Evo Morales hefur heitið róttækum breytingum og meðal annars lofað að koma eignarhaldi á miklum gaslindum í landinu í hendur fólksins á ný en erlend stórfyrirtæki eiga megnið af gaslindunum í landinu. DÓMSMÁL Afganskur maður um þrítugt verður í gæsluvarðhaldi þar til á morgun samkvæmt dómi Hæstaréttar fyrir helgi. Maðurinn var handtekinn 13. desember eftir að við tollskoðun á sendingu til hans kom í ljós falsað vegabréf sem komið hafði verið fyrir í útskorinni bók. Í vegabréfinu, sem er breskt, var mynd af manninum. Þá kom í ljós að maðurinn hafði í fórum sínum afganskt vegabréf á öðru nafni en hann hefur gefið upp. Maðurinn sagðist vera á leið til Kanada og hafa greitt ótilgreindum aðila á aðra milljón fyrir ferðina og vegabréfin. - óká Afgani í gæsluvarðhaldi: Vegabréf falið í útskorinni bók
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.