Fréttablaðið - 20.12.2005, Page 10

Fréttablaðið - 20.12.2005, Page 10
MILLIRÍKJASAMSKIPTI Veruleg- ar tafir hafa orðið á skipan nýs sendiherra í sendiráð Bandaríkj- anna í ár. Nýi sendiherrann, Carol van Voorst, kemur ekki til starfa fyrr en í janúar en James I. Gads- den hætti í júlí. Sendiráðið hefur því verið sendiherralaust í tæp- lega hálft ár þó að staðgengill hafi vissulega verið þar að störfum. Pia Hanson, upplýsinga- fulltrúi bandaríska sendiráðs- ins, segir að þó að sendiherr- arnir fari á sumrin þá byrji þessir nýju aldrei fyrr en á haustin og fer þetta allt eftir því hvað H v í t a húsið er fljótt að t i l nefna nýjan sendiherra. Drátturinn nú sé í lengra lagi en ekkert óeðlileg- ur. Sendiherrann taki aðeins til starfa einum til tveimur mánuðum seinna en venjulega. „Það fer eftir því hvað það er mikið að gera í Hvíta húsinu og þinginu, hvort þarf að setja marga sendiherra í stöður á sama tíma og svo framvegis,“ segir Pia og bætir við að van Voorst hafi nýlega lokið störfum í Vínarborg, þar sem hún var stað- gengill sendiherra, og sé nú í sendiherraþjálfun í Banda- ríkjunum. Pia segir að starfsemi sendi- ráðsins einkennist af rólegheitum um jól og nýár og því hafi ekki tekið því fyrir nýja sendiherrann að mæta til starfa fyrr en á nýju ári. Það sé engin pólitík á bak við það. Steingrímur J. Sigfússon, full- trúi Vinstri grænna í utanríkis- málanefnd, telur dráttinn á skipan sendiherra sýna að Bandaríkja- menn hafi ekki miklar áhyggjur af varnarviðræðunum við Íslend- inga og benda til þess að þeir taki þau mál ekki mjög alvarlega. „Ef þeir hefðu talið alvöru á ferðum í samskiptum þjóðanna þá hefðu þeir ekki látið dragast lon og don að manna hér sendi- herrastöðu,“ segir hann og telur þetta óvenjulegt þar sem um rótgróið sendiráð sé að ræða. - ghs Bandaríkin eru ekki með sendiherra Bandaríkjamenn hafa dregið í hálft ár að skipa hér sendiherra og er það óvenjulegt þegar um svo rótgróið sendiráð er að ræða. Steingrímur J. Sigfússon telur það sýna að þeir hafi ekki miklar áhyggjur af samskiptum þjóðanna. BANDARÍSKA SENDIRÁÐIÐ Nýr sendiherra tekur til starfa í janúar í bandaríska sendiráðinu. Pia Hanson upplýsingafulltrúi segir að dráttur- inn á skipan sendiherra sé heldur lengri en venjulega en engin pólitík sé á bak við það. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 3 03 96 12 /0 5 LANDBÚNAÐUR Haraldur Bene- diktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, mótmælir fullyrðingum um að matarverð hér myndi lækka um þrjátíu prósent með því að fella niður landbúnaðarstyrki. „Þetta eru ný sannindi fyrir mér og furðulegt að heyra þá klifa á þessu, Sigurð Jónsson hjá Samtökum verslunar og þjónustu og Tryggva Þór Herbertsson, for- stöðumann Hagfræðistofnunar,“ segir hann. Haraldur bendir á að hér séu í sölu landbúnaðarafurðir sem ekki njóti styrkja og séu engu að síður mun dýrari en í nágrannalönd- unum. „Hér er flutt inn tollalaust korn, hveiti, ávextir, grænmeti og fleira. Árið 2003 var verð á brauði og kornvöru 67 prósentum hærra en í Evrópusambandsríkj- unum fimmtán. Verð á sykri, sem líka er landbúnaðarafurð, er 61 prósenti hærra en annars staðar. Þetta segir okkur að verðmunur á matvöru getur átt sér margar skýringar,“ segir hann og bendir á að hér séu föt líka miklu dýrari en víða annars staðar. „Ég get að minnsta kosti ekki tengt að land- búnaðarverndartollar hafi áhrif á verð á gallabuxum sem kosta 2.700 krónur í Bandaríkjunum en 10 til 12 þúsund krónur hér. Haraldur tekur þó ekki svo djúpt í árinni að segja að niðurfelling tolla myndi ekki hafa áhrif til lækkunar á matarverði. „Það er hins vegar rangt að segja að allt matarverð lækki. Við erum með helminginn af öllum matarinnflutningi nánast tollalausann.“ - óká Bændasamtökin hafna fullyrðingum um verðlækkun: Vörur án styrkja samt dýrari HARALDUR BENEDIKTSSON Formaður Bænda- samtaka Íslands. 10 20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.