Fréttablaðið - 20.12.2005, Page 20

Fréttablaðið - 20.12.2005, Page 20
Það kostar frá 7.500 upp í 11.700 krónur að láta tæma tank á bíl sem fylltur hefur verið með röngu eldsneyti. Daglega dælir fólk bensíni á dísilbíla. „Þetta gerist alveg ótrúlega oft,“ segir Hörður Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Olíudreifingar, en starfsmenn fyrirtækisins eru kall- aðir til þegar fólki verður á þau mis- tök á bensínstöðvum að dæla röngu eldsneyti á bílinn. Í langflestum til- vikum uppgötvast mistökin í tæka tíð og því hægt að kalla til dælubíl og dæla bensíninu upp úr tanki bíls- ins en stundum þarf að grípa til rót- tækari og umfangsmeiri aðgerða. „Ef bíllinn hefur verið settur í gang þurfum við að taka hann inn á verkstæði til að forða skemmdum,“ segir Hörður og bætir við að dæmi séu um að vélar bíla hafi skemmst vegna þessa. Birgir Pétursson þjónustustjóri segir oftast auðvelt að dæla bensín- inu af bílum en öryggiskerfi nútím- ans geti verið erfið viðureignar. „Það eru til bílar sem eru þannig að það er ekki hægt að tappa af þeim. Þá þarf að fara með þá á verkstæði og kippa tanknum undan. Það eru reyndar undantekningartilfelli,“ segir Birgir. Þó það gerist nánast daglega að fólk dæli röngu eldsneyti á bíla sína má segja að tilvikin séu fá þegar litið er til þess að bensíni og dísil- olíu er dælt á nokkur þúsund bíla á degi hverjum. Tilvikin mælast því í prómillum. Algengast er að slysin verði þegar ökumenn dæla sjálfir á bíla sína en einnig kemur fyrir að bens- ínafgreiðslumönnum verði á að grípa ranga dælu. Þegar rangt eldsneyti fer á bíl er jafnan um að ræða að bensíni sé dælt á dísilbíl. Þar sem stútar dísildæla eru sverari en bensín- dæla komast þeir ekki í gegnum op bensíntanka. Því er sjaldgæft, og nánast ómögulegt, að dísil rati í bensíntank. Eftir að lögum um dísilolíu var breytt og verð hennar færðist nær bensínverði sést ekki svo glögglega á krónumælum olíudælanna að rangt eldsneyti hefur farið á tank- inn. Því var hins vegar að heilsa fyrir lagabreytingu. „Menn fengu áfall þegar þeir voru búnir að dæla bensíni á dísilbílinn því tankar þeirra eru yfirleitt stærri en bens- ínbílanna. Menn voru kannski búnir að dæla fyrir tíu þúsund kall áður en þeir tóku eftir mistökunum,“ segir Hörður. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort algengara sé að karlar eða konur dæli röngu eldsneyti á bíla sína. ■ Daglegt brauð að fólk dæli bensíni á dísilbíla DÍSILOLÍU DÆLT AF BENSÍNBÍL Oftast er hægt að tæma tanka bílanna á staðnum en stundum þarf að fara með þá á verkstæði og kippa málunum í lag. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Komdu í spennandi heim afþreyingar og upplýsinga Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 3 06 37 12 /2 00 5 16.900 kr. MOTOROLA V360v SÍMI KOMDU Í SPENNANDI HEIM AFÞREYINGAR OG UPPLÝSINGA Ensku- og dönskumælandi fólki gefst kostur á að sækja messur á móðurmálum sínum um jólin. Á aðfangadag messar séra Þórhall- ur Heimisson á dönsku í Dóm- kirkjunni og hefst messan klukk- an þrjú. Dönsk jólamessa hefur verið haldin um árabil. Ensk messa verður svo í Hallgríms- kirkju á annan jóladag og hefst hún klukkan tvö. Séra Bjarni Þór Bjarnason mun messa og er þetta í fimmta sinn sem ensk messa er haldin með þessu sniði. Á sunnudag var þýsk jóla- messa í Dómkirkjunni og messaði Dr. Gunnar Kristjánsson. Hefur hann messað á þýsku í um tuttugu ár. Íslenskir prestar messa á erlendum tungumálum um jólin: Messað á ensku og dönsku BESTU VINIR Þessi mótorhjólamaður í Sydney í Ástrílu tekur hundinn sinn með sér hvert sem hann fer. Og auðvitað fær hvutti hlífðargleraugu svo hann tárist ekki í vindinum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR20 nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Þú sækir ótrúlega vel að mér, það er bara allt ágætt að frétta,“ segir Unnur Birna Hjálmarsdóttir, formaður Makalausa félagsins á Akureyri. Makalausa félagið stuðlar að því að fólk sem ekki á maka geti hist og notið félagsskaps hvers annars. Hátíðarnar geta verið einmanalegar hjá fólki sem ekki á maka og að sögn Unnar Maríu hafa hún og félagar hennar í Makalausa félaginu gert ýmislegt til að auka samverustundir þeirra makalausu. Félagið hélt árshátíð fyrir stuttu og jólahlaðborðinu er nýlokið. Unnur María segir að mikil stemning hafi verið á árshátíðinni. „Það var dúndurgaman. Það mættu margir og fólk kom með gesti. Það var rífandi fjör í salnum til hálftvö um nóttina og svo var haldið á skemmtistaðinn Vélsmiðjuna þar sem fólk hélt áfram að dansa.“ Núna þegar árshátíðinni og jólahlaðborðinu er lokið segir Unnur María að visst millibilsástand sé hjá félaginu fram að gamlárskvöldi. „Nú förum við í kaffi hvert til annars og ræðum málin á léttu nótunum. Á gamlárskvöld er hins vegar hefð fyrir því að hafa opið hús hjá formanninum. Ég býð fólki að koma svona rétt fyrir miðnætti og vera eins lengi og það vill.“ Flestir eyða síðasta kvöldi ársins með fjölskyldu sinni og þegar Unnur er spurð hvort mætingin hafi verið góð í gegnum tíðina segir hún það koma nokkuð á óvart hversu margir mæti. „Miðað við að þetta er fjölskyldukvöld er mætingin yfirleitt góð. Til dæmis mætti helmingur félagsmanna í fyrra. Fólk stoppar reyndar misjafnlega lengi, sumir eru með smá fiðring og vilja fara út að dansa en aðrir kíkja í stutta heimsókn.“ Spurð hvort náin kynni hafi myndast milli einhverra félagsmanna segir Unnur að forsvarsmenn Makalausa félagsins leggi aðallega áherslu á félagslega starfsemi. „Hins vegar er þetta þriggja ára gamalt félag og það hafa myndast tvö pör innan þess og að sjálfsögðu hefur fólk náð sér í förunaut utan félagsins. En það hefur myndast alveg ótrúlega góður vinskapur meðal félagsmanna, neikvætt fólk er orðið jákvætt og skilur að það á vini. Enda geta vinir verið af gagnstæðu kyni,“ segir formaðurinn Unnur María Hjálmarsdóttir. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? UNNUR MARÍA HJÁLMARSDÓTTIR, FORMAÐUR MAKALAUSA FÉLAGSINS Á AKUREYRI. Mikil stemning á árshátíðFær Hannes þá aftur á baukinn? „Ég var settur út í kuldann eftir ummæli mín um Hannes Hólmstein en nú hafa orðið mannabreytingar á stöðinni og þess vegna sný ég aftur.“ BUBBI MORTHENS Í FRÉTTABLAÐINU UM ÞORLÁKSMESSUTÓNLEIKA SÍNA SEM ÚTVARPAÐ VERÐUR Á RÁS 2 Í ÁR. Úbbs, best að skila bókinni. „Ef það er eitthvað sem ég vil ekki í jólapakkann minn, þá eru það glæpasögur og koverplötur.“ MIKAEL TORFASON RITSTJÓRI Í LEIÐARA Í DV. „Þetta er mér talsvert áfall og spurning hvort ég þurfi ekki áfallahjálp,“ segir Birgir Hólm Björgvinsson um þá staðreynd að framleiðsla finnsku Nokia- stígvélanna leggst af á nýju ári. Birgir Hólm sem steig ölduna um árabil en er nú kominn í land og situr í stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur. „Þetta var mikið og virt merki, miklu flottara en Armani og þetta rusl í dag,“ segir Birgir Hólm og hlær. Hann hefur átt mörg Nokia-stígvél um ævina og þekkir þau eins og lófann á sér. „Þau hafa reynst alveg afskaplega vel,“ segir hann en bætir við að stígvélanotkun hafi vísast minnkað með árunum. Menn séu komnir í þannig galla að ekki þurfi gúmmíhlífar upp með leggjunum, buxurnar hlífi svo vel. „Hér áður fyrr var maður ekki maður með mönnum nema eiga Nokia-stígvél en þetta breytist náttúrulega eins og annað,“ segir Birgir Hólm sem vonar heitt og innilega að ótíðindin frá Finnlandi spilli ekki jólahaldinu hjá sér. SJÓNARHÓLL HÆTT AÐ FRAMLEIÐA NOKIA STÍGVÉL Áfall BIRGIR HÓLM BJÖRGVINSSON STJÓRNARMAÐUR Í SJÓMANNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.