Fréttablaðið - 20.12.2005, Side 40

Fréttablaðið - 20.12.2005, Side 40
 20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR8 Opið frá 10-20 Kringlunni • Sími 533-2290 Make it better. 100% vatnshelt á alla fjölskylduna Frábær jólagjöf Rithöfundarnir Ingólfur Björg- vinsson og Embla Ýr Bárudótt- ir kynntust skrýtnum jólasið í Barcelona. Ingólfur Björgvinsson og Embla Ýr Bárudóttir búa í Barcelona og hafa kynnst þar ýmsum jólasið- um. „Katalóníubúar hafa í raun þrjár gjafahátíðir yfir jólin,“ segir Ingólfur. „Fyrst kemur jóla- sveinninn eins og um allan heim 24. eða 25. desember en stærsta gjafahátíðin er 6. janúar þegar vitringarnir koma með gjafir eins og þeir gerðu handa jesú- barninu.“ „En það er kannski helst þessi áhugi Katalóna á hægðum sem kemur mest á óvart í jólasiðum íbúa í Barcelona,“ segir Embla. „Þar má þá fyrst telja kúkalurkinn, „caga tio“ eða bara „el tio“, sem kúkar jólagjöfum.“ Blaðamaður hváir og Ingólfur útskýrir betur: „Þetta er svona trjádrumbur og undir hann eru settar lappir eins og framfætur. Svo er andlit málað í sárið á drumbnum og húfa sett á en aftari hlutinn er hulinn með teppi og þar er jólagjöfunum stungið inn.“ Embla tekur við: „Börnin berja svo lurkinn með priki og syngja söng þar sem þau hvetja lurkinn til að láta frá sér gjafir handa þeim. Og svo koma gjafirnar undan teppinu.“ Þau hafa aldrei fengið sig til að spyrja beinlín- is hvaða merkingu þessi lurkur hefur. „En þegar ég rakst á annan sið sem tengist hægðum þá varð ég að spyrja,“ segir Ingólfur. „Kat- alónar leggja mikla áherslu á að gera fal- legar jólauppstillingar af fæðingu jesúbarnsins í jötunni. Þar eru Jósef og María og jesú- barnið, vitringarnir, fjárhirðarnir og hin og þessi dýr. Og þar innan um leynist alltaf lítill drengur eða kall sem situr á hækjum sér og er að kúka. Hann er oft mjög vandaður og vel gerð- ur, skorinn í tré eða steyptur úr leir og það fer ekkert á milli mála hvað hann er að gera því kúkur- inn sést koma út úr rassinum á honum. H a n n er kallaður Caganer. Stundum er andlit þekktra manna, t.d. fót- boltamanna sett á hann. Þessum „kúkalabba“ er svo stungið inn í helgisenuna og hann falinn þar.“ Embla bætir við: „Og svo er mesta fjörið að finna hann.“ Ingólfur fékk hins vegar skýringu á þessu fyrirbæri. „Hún er sú að þetta sé heiðinn siður, nokkurs konar frjósemisdýrkun þar sem bóndinn fer út á akurinn og skilar náttúrunni einhverju af því sem honum hefur hlotnast á árinu. Þetta gerðu menn á vetrarsól- stöðum og hugs- anlega er hefðin runnin þaðan.“ Ingólfur og Embla ætla að ná í vitringahátíðina í Barcelona 6. janúar en verða hér á landi fram að því og halda jól með fjölskyldu og vinum og kynna t e i k n i - my ndasög- una Vetrarvíg. Þetta er þriðja bókin í teiknimyndaflokknum Sögur úr Njálu sem hefur notið mikilla vinsælda hjá ungviðinu undanfarin ár. Þau ná hins vegar ekki að hýða jólalurkinn svo hann kúki einhverju fallegu handa þeim. brynhildurb@frettabladid.is Hér fær forseti Katalönsku stjórnarinnar þann vafasama heiður að vera „caganer“ eða kúkalabbi. Frjósemislurkurinn og caganer í Katalóníu Ingólfur og Embla voru hlessa á hægðagleði Katalóníubúa um jólaleytið. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.