Fréttablaðið - 20.12.2005, Page 67

Fréttablaðið - 20.12.2005, Page 67
 20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR16 Maður & kona er ný snyrtivöru- verslun við Laugaveg með glæsilegt úrval af snyrtivörum frá: Cartier, Givenchy, Burberry, Paul Smith, Moschino, Versace, Dolce & Gabbana, Roberto Cavalli, Britney Spears, Gant og fleirum. Við óskum ykkur til hamingju með þessa glæsilegu verslun! Laugavegur 7, 101 Reykjavík, sími 56 11 5 11 � � � � �� � � GUÐMUNDUR KRISTINN JÓNSSON SEGIR FLESTA DAGA TILEINKAÐA TÓNLIST. ...að Haka Sukur var fljótastur allra til að skora í úrslitakeppni HM? Það tók hann 11 sekúndur að skora gegn Suður Kóreu 2002. ...að fljótastur að fá reisupassann á HM var Rúmeninn Ion Vladoiu en hann var rekinn af velli eftir þriggja mínútna leik gegn Sviss á HM 1994? ...að sá sem skoarað hefur flest mörk í úrslitakeppni er Just Fontaine en hann skoraði 13 mörk í úrslita- keppni HM 1958 í Svíþjóð en það er met sem seint verður slegið. ...að Peter Shilton hélt markinu oftar hreinu en nokkur markmaður fyrr og síðar á HM 1982, 1986 og 1990? Hann lék 17 leiki og hélt hreinu í 10 þeirra. ...að þegar Ástralir sigruðu Samóa 31-0 í undankeppni HM 2002 settu þeir markamet? ...að Péle er yngsti leikmaðurinn til að skora í úrslitakeppni HM? ...að hann var aðeins 17 ára og 239 daga gamall? ...að yngsti leikmaður á HM var 17 ára og 41 dags gamall er hann þreytti frumraun sína? ... að hann var frá Norður Írlandi og hét Norman Whiteside? ...að goðsögnin Roger Milla er elstur allra sem tekið hafa þátt í HM sem leikmenn? ...að hann er jafnframt elstur allra til að skora á HM? ...að bæði metin sló hann í leik gegn Rússum árið 1994? Hann var þá 42 ára og 39 daga gamall. ...að í sama leik sló Oleg Salenko annað met? Hann skoraði 5 mörk í einum og sama leiknum. ...að Claudio Suarrez er leikjahæsti landsliðsmaður í heimi? Hann lék 171 landsleik fyrir Mexíkó á árunum 1992 til 2003. VISSIR ÞÚ Í hverju felst starf þitt? Ég vinn sem hljóðmaður hjá RÚV og eins er ég gítarleikari í Hjálmum og Baggalút og rek hljóðver í Kefla- vík sem heitir Geimsteinn. Hvernig er venjulegur dagur í þínu lífi? Þeir eru voða ólíkir. Flestir dagar byrja á því koma börnunum í leikskólann og svo fer ég annað hvort upp í RÚV eða í Geimstein til að grúska eitthvað í músík. Svo fara kvöld og helgar mikið í Hjálma eða Baggalút, en það er aðallega um helgarnar. Hefurðu gaman af þessu? Já, mjög. HVUNN- DAGURINN Tileinkaðir tónlist

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.