Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 77
Komdu í spennandi heim
afþreyingar og upplýsinga
Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone
eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
06
37
12
/2
00
5
KOMDU Í SPENNANDI HEIM
AFÞREYINGAR OG UPPLÝSINGA
19.900 kr.
NOKIA 6101
SÍMI
Kl. 21.00
Stúlknakórinn Graduale Nobili
heldur jólatónleika við kertaljós í
Langholtskirkju. Elísabet Waage
leikur á hörpu og sex kórfélagar
syngja einsöng. Stjórnandi er Jón
Stefánsson.
„Okkur langaði bara til að gera notalega jólatónleika,
koma okkur í jólaskap og kannski öðrum líka,“
segir Valgerður Guðnadóttir söngkona. Hún kemur
fram á tónleikum í Neskirkju í kvöld ásamt tveimur
öðrum söngkonum, þeim Ardísi Ólöfu Víkingsdóttur
og Rósalind Gísladóttur. Með þeim spilar Vignir Þór
Stefánsson á píanó.
Á efnisskránni verða eingöngu jólalög. „Þetta
eru allt saman lög sem fólk þekkir og finnst
gaman að heyra, klassísk jólalög í skemmtilegum
útsetningum. Við syngjum allar saman og svo erum
við með dúetta líka. Þetta verður ósköp notalegt.“
Þær nefna sig Jólastjörnur, hafa sungið töluvert
saman, meðal annars í kvartettinum Ópus, en þetta
er í fyrsta sinn sem þær koma fram þrjár saman.
„Við höfum allar verið að syngja á fullu í desember.
Hún Ardís er Idolskvísa, var í fjórða sæti held ég
fyrsta árið, og er að syngja í þessum Lummum,“
segir Valgerður og bætir því við að bæði hún sjálf
og Rósa eigi von á barni áður en langt um líður sem
greinilega megi á þeim sjá.
„Við verðum því býsna skrautlegar á sviðinu í
Neskirkju.“
Syngja í sig jólaskapið
Hljómsveitirnar Moskvitch og
Hljómsveit Hafdísar Bjarnadótt-
ur halda tónleika á Kaffi Kúltúra í
kvöld. Á efnisskránni er ný frum-
samin tónlist auk þjóðlagatónlist-
ar frá ýmsum heimshornum.
Hljómsveit Hafdísar Bjarna-
dóttur er komin saman á ný eftir
langt tónsmíðahlé með splunku-
ný lög eftir Hafdísi í farteskinu.
Hljómsveitina skipa Steinunn
Guðjónsdóttir á blokkflautur,
Grímur Helgason á klarinett og
bassaklarinett, Eiríkur Orri Ólafs-
son á trompet, Kristín Þóra Har-
aldsdóttir á fiðlu, Hafdís Bjarna-
dóttir á rafgítar, Ragnar Emilsson
á rafbassa og Scott McLemore á
trommur.
Að sögn Hafdísar eru nýju
lögin blanda af mörgum stefnum
eins og áður hefur verið. Stuðið
sé aftur á móti orðið aðeins meira
núna. „Ég er líka með fjölbreytt-
ari aðferðir en áður. Tónsmíðarn-
ar eru orðnar aðeins breiðari,“
segir Hafdís. „Ég er á öðru ári
í Listaháskólanum að læra tón-
smíðar og hef ég aðeins lært af
því.“
Hafdís segir að tónleikarn-
ir í kvöld tengist ekki neinni
útgáfustarfsemi. „Þetta er ekki
neitt „jóla“. Við erum ekki að
kynna disk og ég held að þetta
sé ágætis tilbreyting frá öllu
jólastússinu.“
Hljómsveitin Moskvitch hefur
verið í dvala í haust þar sem tveir
meðlimir sveitarinnar stunda
nám í Gautaborg. Á efnisskrá
Moskvitch eru aðallega lög frá
Austur-Evrópu en einnig má
finna lög frá öðrum löndum, til
dæmis Indlandi og Finnlandi.
Tónleikarnir í kvöld hefjast kl.
21.00. Miðaverð er 500 kr.
Tilbreyting frá jólastússinu
HLJÓMSVEIT HAFDÍSAR BJARNADÓTTUR Sveitin er komin saman á ný eftir langt
tónsmíðahlé með splunkuný lög í farteskinu.
Á knattspyrnuvelli
framfaranna nefnist erindi
Stefáns Pálssonar og Skúla
Sigurðssonar sem flutt
verður á hádegisfyrirlestri
Sagnfræðingafélagsins í
dag. Þeir líkja framförum í
sagnfræði við knattspyrnu,
Erindið er hluti af fyrirlestraröð
Sagnfræðingafélags Íslands sem
nefnist „Hvað eru framfarir“, þar
sem framfarahugtakinu hefur
verið velt upp með ýmsum hætti.
„Flestir í fyrirlestraröðinni
hafa sett spurningamerki við
hugtakið, en sumir ekki,“ segir
Stefán. „En við Skúli erum sérlega
miklir afstæðishyggjumenn og
póst-módernistar og setjum stærra
spurningamerki við hugtakið en
aðrir hingað til.“ Þótt Skúli sé
minni knattspyrnuáhugamaður
en Stefán er líkingin við
knattspyrnuvöll frá honum komin.
„Hugmyndin er sú að við myndum
ekki telja það framfarir í fótbolta
þótt menn myndu bruna hraðar
fram og aftur völlinn eins og
járnbrautarlestir,“ segir Stefán.
„Framfarir í fótbolta hljóta að
snúast um skemmtilegt miðjuspil
þar sem menn koma með flóknari
fléttur og leika fram og til baka.
Þannig fótbolti hugnast okkur að
minnsta kosti sem og sagnfræði.
Tæknisagan er okkur hugleikin
og við tæpum á dæmum úr sögu
símans á Íslandi sem og sögu
rafvæðingar.“
Þá reyna þeir Skúli og Stefán
að svara þeirri spurningu hvort
viðhorf sagnfræðingsins til fram-
farahugtaksins hafi ekki áhrif
á störf hans, en eins og sönnum
póst-módernistum sæmir komast
þeir ekki að einhlítri niðurstöðu.
„Án þess að ég ljóstri of miklu upp
þá teljum við að framfarahugtakið
sé orðið óskilgreint fyrirbæri
og það er einkennandi fyrir
umræðuna í dag að ferðamátinn
til framfaralandsins skiptir meira
máli heldur en markmiðið sjálft.“
Skúli og Stefán hafa áður flutt
saman erindi og geðjast samstarfið
vel, en Skúli verður reyndar
fjarri góðu gamni þar sem hann
er staddur í Berlín. „Við reynum
að mæta því á einhvern hátt,
bregðum upp myndum af honum
svo hann verði alltumlykjandi,“
segir Stefán. „Við ætlum að reyna
að gera þetta bæði lifandi og
skemmtilegt og vonandi velta upp
áhugaverðum spurningum.“
Fyrirlesturinn verður fluttur í
fundarsal Þjóðminjasafns Íslands
og hefst klukkan 12.10 í dag.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
bergsteinn@frettabladid.is
Framfarir í sögu og fótbolta
STEFÁN OG SKÚLI Skúli verður fjarri góðu gamni á fyrirlestrinum á morgun en Stefán lumar á nokkrum ráðum til að mæta því og ætlar að
bregða upp myndum af félaga sínum og fleira. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM
Eplið fellur sjaldan langt frá
eikinni, er sagt, og það má til
sanns vegar færa um Óskar Lárus
Ágústsson og dóttur hans Erlu
Sólveigu Óskarsdóttur. Bæði hafa
þau hannað húsgögn, Óskar sem
smiður en dóttir hans sem lærður
húsgagnahönnuður.
Í dag opna þau sýningu á
verkum sínum í Hönnunarsafni
Íslands við Garðatorg í Garðabæ.
Tilefnið er 85 ára afmæli Óskars,
sem er í dag, og nefna þau
sýninguna Eplið og eikin.
„Mörgum finnst þetta
sérkennilegur tími til að opna
sýningu en þetta er nú einu
sinni afmælisdagur hans og því
verður ekki breytt,“ segir Erla,
sem hefur lengi langað til þess
að halda sameiginlega sýningu á
hönnunargripum þeirra feðgina.
Hún útskrifaðist sem
húsgagnahönnuður árið 1993
frá Danmarks Design Skole í
Kaupmannahöfn og hefur unnið
sjálfstætt síðan. Óskar lærði
húsgagnasmíði á verkstæði
Hjálmars Þorsteinssonar við
Klapparstíg og lauk sveinsprófi
árið 1943.
Erla segist aldrei hafa hugsað
um það á námsárum sínum að hún
væri að feta í fótspor föður síns.
„Það hefur kannski staðið
manni of nærri. Það er ekki fyrr en
á síðustu tveimur til þremur árum
sem ég hef farið að skoða hans
hluti og sjá ákveðinn skyldleika.
Ég hafði ekkert hugsað út í það
fyrr. Ég held samt að hann hafi
ekki litið á sig sem hönnuð. Þetta
var bara nauðsyn, að brauðfæða
fjölskylduna. En það var í honum
þessi óþrjótandi sköpunarkraftur.
Hann var alltaf að búa eitthvað til
og skapa.“
Óskar er síður en svo hættur
að smíða, þrátt fyrir háan aldur.
Erla segir hann líka hafa hjálpað
sér mikið.
„Ég er ekki smiður og það
er erfitt að fá fólk til að smíða
frumgerðir af húsgögnum. Hann
hefur gert þetta fyrir mig.“
Sýningin stendur til 20. janúar.
Eplið og eikin
ERLA OG ÓSKAR Þau feðgin opna sýningu í dag á húsgagnahönnun þeirra beggja, sem
haldin er í tilefni af 85 ára afmæli Óskars. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
> Ekki missa af ...
... upplestri Kristjáns Þórðar
Hrafnssonar og Sigríðar
Jónsdóttur á skáldaspírukvöldi í
Iðu í kvöld.
... jólatónleikum í anddyri
Háskóla Íslands í hádeginu á
morgun þar sem nýr stúlknakór
flytur jólaverkið Ceremony of
Carols eftir Benjamin Britten
ásamt Elísabetu Waage
hörpuleikara.
... sólstöðuhátíð Ásatrúarmanna
við Kaffi Nauthól í Nauthólsvík
annað kvöld, þar sem glaðst
20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR42
menning@frettabladid.is
!