Fréttablaðið - 20.12.2005, Page 83

Fréttablaðið - 20.12.2005, Page 83
 20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR Hvaða jólalag fer mest í taugarnar á þér? HILDUR HELGA SIGURÐARDÓTTIR BLAÐAMAÐUR: ,,Ég hef verið með lagið ,,Nei nei ekki um jólin“ á heilanum núna undanfarna daga. Mér finnst þetta vera frekar hryllilegt lag þar sem sá sem syngur vill ekki að eitthvað gerist um jólin. Ég ímynda mér alltaf að það sé eitthvað hræðilegt sem má ekki gerast um jólin. Fyrir utan boðskapinn sjálfan er þetta líka bara svakalega vont lag.“ Þegar líða fer að jólum fá jólalögin að hljóma á öldum ljósvakans í stríðum straumum. Sum eru frábær á að hlýða á meðan önnur eru lítt skemmtileg. Við hér á Fréttablaðinu ákváðum því að athuga hvaða lög fara illa í fólk á þessum árstíma. Svör viðmælendanna voru nokkuð fróðleg. HLYNUR ÁSKELSSON ÖÐRU NAFNI CERES 4 TÓNLISTARMAÐUR: ,,Það er klárlega ,,Gils- bakkaþula“ og þessi mjög svo leiðinlega endurtekning sem er sífellt í því lagi. Það er einhver leiðinda síbylja í þessu lagi sem ég kann ekki við.“ ELÍN MARÍA BJÖRNSDÓTTIR ÞÁTTAGERÐAR- KONA: Það eru eiginlega bara engin jólalög sem fara í taugarnar á mér. Það er bara alls ekki neitt sem stendur upp úr. Ég gæti hins vegar miklu frekar nefnt jólalög sem mér finnst skemmtileg heldur en þau sem mér finnst slæm.“ DANÍEL ÁGÚST TÓNLISTARMAÐUR: ,,Það er að mínu mati ,,Jólahjól“ með Stefáni Hilmarssyni og félögum í Sniglunum. Mér finnst það sérstaklega pirrandi lag. Þetta lag heyrist að mínu mati allt of oft í útvarpinu.“ HELGA BRAGA JÓNSDÓTTIR LEIKKONA: ,,Ég er nú ekki manneskja sem læt hlutina fara í taugarnar á mér. Ég á mjög erfitt með að gera upp á milli jólalaga. Ég þoli hins vegar ekki þegar byrjað er of snemma að spila jólalögin. Þegar maður fær að heyra þetta um miðjan nóvember þá slekk ég á á útvarpinu.“ BRYNDÍS ÁSMUNDSDÓTTIR LEIKKONA: Mikið er þetta skemmtileg spurning. ,,Jólahjól“ fer rosalega í taugarnar á mér. Það er að mínu mati allt of oft spilað. Ég snýst við í skinninu þegar ég heyri þetta lag. Þegar ég heyri upphafsstefið þá fæ ég kryppu.“ BIRGIR BALDURSSON TROMMARI: ,,Er það ekki ,,Jól alla daga“ með Eiríki Haukssyni? Það er þá aðallega barnakórinn á bak við sem fer svona rosalega í taugarnar á mér í þessu lagi.“ GUÐLAUG ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR LEIKKONA: ,,Það fer svakalega í taugarnar á mér lagið ,,Ef ég nenni“ sem er að mínu mati alveg afspyrnu slakt. Svo er þarna lag sem ég kalla hraða jólalagið. Textinn í því lagi er vægast sagt slakur. Hann er einhvern veginn svona ,,meiri jól meiri jól“ eitthvað. Mér finnst það lag alveg svakalega leiðinlegt. Þessi tvö standa eiginlega upp úr slökum lögum um jólin.“ STEINUNN ÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR SÖNGKONA ÚR NYLON: ,,Yfirleitt eru ekki nein jólalög sem fara í taugarnar á mér en þó get ég nefnt eitt lag sem mér finnst svolítið skrítið. Lagið ,,Ef ég nenni“ með Helga Björnssyni er mjög gott lag en textinn er að mínu mati arfaslakur. Það að kaupa gjöf handa elskunni sinni ef þú nennir, er að mínu mati ekki góður texti.“ ELÍS PÉTURSSON HLJÓMSVEITARMEÐLIMUR Í JEFF WHO: ,,Það er ýmislegt sem kemur upp í hugann. Þar á meðal er lagið ,,Svona eru jólin“ sem mér finnst alltaf svolítið út á kanti.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.