Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 97

Fréttablaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 97
 20. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR62 ÞRÍR SPURÐIR TÓNLEIKAR GUS GUS Á NASA Á LAUGARDAG Hvernig voru Gus Gus-tónleikarnir? STOR HUMAR skatan er komin. [ VEISTU SVARIÐ ] 1 10,8 prósenta aukning. 2 Bono, Melinda og Bill Gates. 3 Sólskinshestur. FRÉTTIR AF FÓLKI Andstæðingarnir fyrr-verandi úr hringiðu stjórnmálanna, þau Davíð Oddsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, eru loksins orðnir samherjar. Þau koma nú bæði fram í sjónvarps- auglýsingu til að kynna plötuna Úr vísnabók heimsins, sem hjónin Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson gáfu út á dögunum. Platan hefur að geyma gullfallegar vísur þar sem íslensk börn af ýmsum uppruna syngja þjóðlög frá 18 löndum á 15 tungumál- um. Allur ágóðinn rennur óskiptur til aðstoðar Rauða krossins við munaðarlaus börn í sunnan- verðri Afríku. HRÓSIÐ ...fær Dj Margeir sem haldið hefur tryllt diskókvöld á öðrum degi jóla síðastliðin níu ár og nú heldur hann það tíunda og síðasta. Plata með laginu Hjálpum þeim, sem var endurútgefið á dögunum í nýrri útgáfu, hefur selst í um það bil þrjú þúsund eintökum síðan hún fór í sölu fyrir viku. Hvert eintak kostar eitt þúsund krónur og miðað við að allur ágóði renni til góðgerðarmála hafa þrjár milljónir króna safn- ast nú þegar. Platan hefur verið til sölu í versl- unum Bónuss, Hagkaupa, 10-11, Top Shop og Nettó. Að sögn Sigrún- ar Kr., innkaupastjóra Top Shop, hefur verið mikið spurt um plötuna í búðinni. „Það voru kúnnar búnir að koma dögum áður til að spyrja um þetta. Þeir fylgdust stíft með því hvort við myndum fá plötuna og hvenær,“ segir Sigrún. „Þegar við áttum þetta til greip fólk þetta á kassanum.“ Sigrún segir að platan hafi verið í mikilli spilun í búðinni og það hafi örugglega haft einhver áhrif á þessa góðu sölu. Nýja platan þarf þó að seljast töluvert til viðbótar ef hún á að ná frábærum árangri upprunalegu plötunnar því sú seldist í nær þrjá- tíu þúsundum eintaka árið 1985. Komu þeir peningar að góðum notum fyrir söfnunarátak sem þá stóð yfir vegna hungursneyðar í Eþíópíu. ■ Þrjú þúsund eintök seld HJÁLPUM ÞEIM Plata með endurútgáfu af laginu Hjálpum þeim hefur selst í um það bil 3.000 eintökum. Sjónvarpsþátturinn Sjáumst með Silvíu Nótt er einhver umdeildasti sjónvarpsþáttur ársins og hefur þáttastjórnandinn ekki verið síður á milli tannanna á fólki. Í síðasta þætti var Silvía hneppt í gæsluvarðhald eftir að hafa stungið söfnunarfé í vasann og keypt fyrir það jeppa og demantshring. Henni var þó sleppt og gafst tækifæri til að árita nýút- kominn mynddisk með öllum þátt- unum auk efnis sem ekki hefur áður komið fyrir almenningssjónir. „Það verða þarna líka einhverjir hlutir af netinu en þegar þátturinn fór af stað í upphafi voru netverjar óhræddir við að tjá sig um þessa „tík“,“ segir Ágústa Eva Erlendsdóttir, leikkona og nánasti samstarfsmaður Silvíu. Árið hefur verið ansi viðburðar- ríkt hjá þeim stöllum en þátturinn var valinn skemmtiþáttur ársins á Eddunni og Silvía sjálf útnefnd sjónvarpsmaður ársins. Nú liggur fyrir að hún muni taka þátt í Eurov- isionkeppni Ríkissjónvarpsins en þar flytur hún lagið Til hamingju Ísland. „Silvía elskar sviðsljósið og þetta verður án nokkurs vafa ein af hennar bestu stundum og hún á eflaust eftir að vinna þetta,“ segir Ágústa en samkvæmt síðustu fregnum úr herbúðum drottning- arinnar verður Einar Bárðarson umboðsmaður hennar en Þor- valdur Bjarni Þorvaldsson semur lagið. Ágústa útilokar heldur ekki að Silvía muni beita öllum brögð- um til að ná sínu fram. „Kannski fá einhverjir keppendur heimsókn frá Arnari Grant og Boris,“ segir Ágústa dularfull. Fyrr á þessu ári var greint frá því að erlendar sjónvarpsstöðvar hefðu sýnt því áhuga að fá Silvíu til liðs við sig. Gaukur Úlfarsson, leikstjóri þáttanna, sagði að fleiri tilboð hefðu bæst við en nú myndi þátturinn fara í mánaðarfrí eftir nánast stanslausa eins árs törn. „Við ætlum að gefa okkur góðan tíma til að skoða alla möguleika í stöðunni svo við föllum ekki fyrir einhverju gylliboði,“ útskýrir Gaukur sem vildi þó ekkert tjá sig um frekari framtíð Silvíu Nóttar. „Vinsæld- irnar hafa komið skemmtilega á óvart enda væri lífið hálf leiðin- legt ef maður byggist alltaf við velgengni.“ freyrgigja@frettabladid.is SILVÍA NÓTT: GÆTI VERIÐ Á LEIÐINNI ÚR LANDI Syngur Til hamingju Ísland í Eurovisionkeppninni SILVÍA NÓTT Var handtekin í síðasta þætti eftir að hafa stungið söfnunarfé undir stól. Hún flýr til útlanda yfir jólin en er væntanleg aftur til að taka þátt í Eurovision.FRÉTTABLAÐIÐ / HEIÐA Tónlistarmaðurinn WIl Oldham er staddur hér á landi og eyddi meðal annars föstudagskvöldinu á Nasa þar sem hann dansaði eins og óður maður við tónlist glysrokksveitarinnar Trabant. Að sögn kunnugra er Oldham að taka upp plötu hér á landi en hann er víst algjörlega einn á ferðinni. Oldham hefur verið á landinu í nokkrar vikur og mun eitthvað dvelja áfram. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Oldham kemur hingað því fyrir nokkrum árum hélt hann magn- aða tónleika á Gauki á Stöng við mikla hrifningu viðstaddra. Ásgeir Kolbeins- son dagskrár- gerðarmaður: ,,Þetta voru alveg frábærir tónleikar, alveg hreint meiri- háttar. Þessi hljómsveit fer vaxandi. Þeir hefðu þó mátt spila örlítið lengur. Þeir spiluðu ekki nema í rúman hálftíma.“ Heiðar Austmann útvarpsmaður: ,,Þeir voru algjörlega frábærir. Þetta er eitt af fáum skiptum þegar maður fer út á lífið og líður eins og maður sé í útlöndum. Yfirbragðið var svo flott og þau voru svo óhefluð. Það er langt síðan ég skemmti mér svona vel á tónleikum.“ Haraldur Gíslason tónlistarmaður: ,,Mér fannst tónleikarnir mjög skemmtilegir. Ghostigital voru mjög skemmtilegir einnig. Það vakti mikla lukku þegar Einar Örn söng um fund tveggja manna, Þeirra Halldórs og George Bush. Gus Gus voru einnig að standa sig mjög vel. Þeir voru með eindæmum flottir. Þetta var allt mjög flott, allt troðið af fólki og bara eins og best verður á kosið.“ 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT: 2 gaul 6 frá 8 herma 9 bergteg- und 11 tveir eins 12 umhverfis 14 stjórntæki 16 hróp 17 skjögur 18 nag 20 fyrir hönd 21 ógæfa. LÓÐRÉTT: 1 gljáhúð 3 samtök 4 mikill ávinningur 5 þunnur vökvi 7 inngangskafli í tónverki 10 farfa 13 ónotaður 15 sjá eftir 16 hljóðfæri 19 á fæti. LAUSN LÁRÉTT: 2 baul, 6 af, 8 apa, 9 kol, 11 pp, 12 kring, 14 stýri, 16 óp, 17 rið, 18 bit, 20 pr, 21 ólán. LÓÐRÉTT: 1 lakk, 3 aa, 4 uppgrip, 5 lap, 7 forspil, 10 lit, 13 nýr, 15 iðra, 16 óbó, 19 tá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.