Réttur - 02.05.1950, Page 55
RÉTTUR
135
mál Haas hafði verið upplýst? Hann var hvorki handtek-
inn né ákærður, heldur aðeins fluttur í embætti í annarri
þýzkri borg. Weimarlýðveldið iþurfti á að halda mönnum
af tagi Tenholts. Það var hægt að nota bann sem verk-
færi gegn vinstri flokkunum.
Á hin hamingjusamlegu málalok kvikmyndarinnar
bregður dökkum skugga: Haas, sem fengið hefur upp-
reisn sinna mála, finnur ekki til neinnar fölskvalausrar
gleði yfir að hafa endurheimt frelsi sitt og mannorð.
Hann hefur hugboð um það, sem í vændum er eftir átta
ár, þegar þúsundir þjóðbræðra hans eru myrtir án þess
út af því rísi nokkur málarekstur.
Þess er að geta, að saga Tenholts er hvergi nærri öll,
þar sem kvikmyndinni sleppir. Vorið 1933 er Hitler kom-
inn til valda. En honum hefur enn ekki tekizt að kúga
hina stéttvísu verkamenn í Ruhrhéraðinu til auðsveipni
við sig. Yfirmaður hinnar nýstofnuðu leynilögreglu ríkis-
ins í Recklinghausen er einn af blóðþyrstustu böðlum
Þýzkalands — Gestapoforinginn Tenholt. Árið 1934 lýsir
verkamaður einn úr Ruhr, sem tókst að strjúka úr fang-
elsi, meðferð þeirri, er hann hafði orðið að sæta af hálfu
Tenhotls í maí 1933: Tenholt „undirbjó“ fangelsaða and-
fasista með gegndarlausum misþyrmingum, en notaði þá
síðan sem agn með því að reka þá eftir götunum í Dort-
mund. Nokkrir gestapomenn fylgdu þeim álengdar, til-
búnir að grípa hvern þann kunningja hinna sárt leiknu
manna, er gæfi sig í grandaleysi á tal við þá.
Þann 8. des. 1933 'bar þýzkur flóttamaður vitni í Paris
fyrir „Rannsóknarnefndinni til upplýsingar á ógnarstjórn
Hitlerþýzkalands."
„Sakamálafulltrúinn Tenholt, maður, sem mestu réði
um aðferðir og framkomu Gestapo á staðnum, tók á móti
okkur með eftirfarandi orðum: „Vitið þér, hvert þér hafið
lent?“ „í Recklinghausen að því er ég bezt veit“, svaraði
ég. „'Hér hafið þér lent í hendur villimanna,“ sagði Ten-