Réttur - 01.07.1966, Blaðsíða 7
Abram Fiseher - samvizka hinnar
hvítu Suður-Afríku
i.
Æviatriði
Um aldamótin áttu fáar þjóðir heims slíkri samúð að fagna sem
Búar, bændaþjóðin í Suður-Afriku, sem brezkt hervald var að níðast
á og brjóta á bak aftur. Stephan G. Stephansson orti þá sitt ódauð-
lega kvæði „Transvaal“ gegn brezka imperialismanum og til stuðn-
ángs málstað Búa.
Síðan hefur 'sá sorgarleikur gerzt að fasisminn, einkum í mynd
þjóðflokkshrokans, hefur heltekið þessa þjóð og gert hana að slíkum
umskipting, að nú eru einkum Búar fordæmdir og fyrirlitnir um
víða veröld sakir svívirðilegrar kúgunar sinnar gagnvart hinum
þeldökka meir.ihluta Suður-Afríkumanna.
Hver sá Búi, sem nú berst baráttu frelsis, jafnréttis og bræðralags
fyrir málstað hinna kúguðu og ofsóttu þeldökku íbúa, vinnur því í
senn að hinum góða málstað og hjálpar til að þvo af þjóð sinni
þann smánarblett, sem fasistastjórn Verwoerds setur á hana.
Fremstur allra slíkra Búa — og þeir eru því miður ekki margir,
— er lögfræðingurinn Abrarn Fischer, sem nú í maí 1966 var
dæmdur í lífstíðarfangelsi af fasistastjórninni fyrir hetjulega bar-
áttu sina.
Abram Fischer er fæddur 1908 og er af einni helztu forystuætt
Búa. Afi hans, Abraham Fischer, var fyrsti og eini forsætisráðherra
í Orange River-nýlendunni, sem var sameinuð Suður-Afríku
1910, — síðan þingmaður og meðlimur stjórnarskrárnefndar og átti
sæti í fyrstu sambandsstjórninni. Faðir hans, Percy Ulrich Fischer,
var frægur lögfræðingur og að lokum forseti hæstaréttar Orange-
fríríkisins.
Abram Fischer fékk styrk til þess að nema lögfræði í Oxford, —
slyrkur sá var kenndur v.ið Cecil Rhodes, nýlenduherrann brezka.