Réttur - 01.07.1966, Blaðsíða 36
236
réttur
sem eftir varð af friðsælli mannabyggð. Þessi hafa orðið örlög t. d.
Toozchourmatou, Chemchemal, Kifri, Adyeller, Shouen og Shaik
Bezini í Kirkuk héraði. I Adyellar og Shouen var eyðileggingin
framkvæmd undir yfirumsjón landvarnarmólaráðherra íraks.
Sömu örlög biðu annarra héraða Kúrda.
Kommúnistaflokkur Iraks viðurkennir rétt Kúda til sjálfstjórnar
og styður þá í baráttu þeirra, en er jafnframt þeirrar skoðunar að
lýðræðisleg lausn málsins fáist ekki nema núverandi afturhalds-
stjórn landsins sé steypt af stóli ...
Sjálfstjórn Kúrda í írak myndi styrkja bróðurlega samstöðu
Araba og Kúrda gegn heimsvaldasinnum og Arif og hans aftur-
haldsstjórn, tryggja sjálfstæði landsins og efla félagslegar umbætur.
Þvingun og ofbeldi í sambúð þessara þjóðarbrota skapar tortryggni
og auðveldar alla íhlutun erlendra heimsvaldasinna og aðgerðirþeirra
til að sundra samstöðu íbúanna. Það er því nauðsynlegt að allir
framfarasinnaðir stjórnmálaleiðtogar í arabiska heiminum veiti
Kúrdum virkan stuðning í baráttu þeirra fyrir sjálfstjórn.
Almenningur í írak veit fullvel að bylting Kúrda er ekki „inn-
flutt“, að hún á eðlilegar orsakir í þeirri þjóðerniskúgun sem þeir
hafa verið beittir. Núverandi stjórnarherrar í Bagdad eru jafnvel
hræddir við að taka sér í munn nafnið „Kúrdistan“ og hafa í þess
stað búið til heitið „Norðlendingarnir“. En almenningur í Irak veit
að Kúrdar berjast fyrir göfugum og réttlátum málstað og styður af
heilum huga uppreisn þeirra.
Byltingarbarátta Kúrda er ekki bundin við sjálfstjórnartakmarkið
eitt, þeir berjast einnig fyrir lýðræðisstjórn í írak. Sigur í málefn-
um Kúrda er því óaðskiljanlegur hluti baráttunnar fyrir stjórnar-
farslegu lýðræði . . . Það er einnig mikilvægur þátlur í þjóðfrelsis-
baráttu Miðausturlanda almennt og Arabahreyfingarinnar, þáltur í
þjóðfrelsisbaráttunni í þessum löndum fyrir frelsi, framförum, lýð-
ræði og friði.
Ahrif heimsvaldasinna og íhlutun má bezt marka af afturhalds-
samri stjórnarstefnu í írak. Herforingjaklíkan og Al-Bazzaz for-
sætisráðherra gerast æ handgengnari erindrekar erlendra olíu-
hringa og tengjast CENTO æ fastari böndum, og eru í samvinnu við
erkiafturhaldið í Saudi Arabíu, Jordaníu og Tyrklandi. Það er al-
kunnugt leyndarmál að það var Hvíta húsið og olíuhringarnir sem
áttu mestan þáttinn í að koma Al-Bazzaz í forsætisráðherrastólinn.
Hinir nýju, smánarlegu samningar við olíufélögin er verðið sem
greitt var fyrir stuðninginn til að berja niður byltingu Kúrdanna.