Réttur - 01.07.1966, Blaðsíða 6
206
RÉTTUR
landið í. Atvinnurekendur í sjávarútvegi og iðnaði hrópa
upp að verðbólgan sé að drepa þá, — sem rétt er, — en
hafa hvorki manndóm né vit, til þess að segja því braskvaldi
kaupahéðna stríð á hendur, er rekur verðbólgupólitíkina
sem skipulögð bankainnbrot og launarán: aðalgróðaveg sinn.
Og síðan láta þessir atvinnurekendur framleiðsluatvinnu-
veganna, — er stjórnað gætu landinu í samstarfi við vinn-
andi stéttir, — Morgunblað fésýsluvaldsins binda fyrir munn
sinn og augu jafnt í innanlands- sem alþjóðamálum.
Það er mál að þessu linni, ef íslenzk atvinnurekendastétt
í fiskframleiðslu og iðnaði, ætlar ekki að láta dæma sig úr
leik í framfarabaráttu þjóðarinnar eða gera sig að fóta-
skinni erlends auðhringavalds, eins og fésýsluvaldið hóf að
gera með sérréttindasamningnum við alumínhringinn. Póli-
tísk og siðferðileg niðurlæging verður venjulega samferða.
Og það þarf í senn siðgæðislegt hugrekki og pólitíska forsjá
til þess að hefja eina stétt upp úr slíku. í íslenzk atvinnurek-
endastétt þá eiginleika til innan sinna vébanda, — eða verður
það héðan af alþýðu og menntamanna einna að vinna það
verk, sem framsækinn hluti borgarastéttar hefði eðli málsins
samkvæmt átt að taka þátt í?