Réttur


Réttur - 01.10.1931, Blaðsíða 16

Réttur - 01.10.1931, Blaðsíða 16
208 RÉTTUR [R.iettm' um á hlaðinu og horfði hluttekningarlaus út í bláinn. Þetta voru þá afdrif æfistarfs hans, sem hann hafði lagt í allan sinn sveita. Kofinn, sem hann hafði hrúgað upp smátt og smátt með því að neita sér og fjölskyldu sinni um allt, nema það sem nauðsynlegast þurfti til viðhalds þessa snauða lífs. Túnbletturinn, sem hann hafði staðið í hörðu stríði út af við sjálfa náttúruna. Allt var nú komið undir hamarinn, og hann var sjálfur ónýtur, réttindalaus sveitarlimur með heilsulausa kerl- ingu og vitlausan strák. Fimm hundruð krónur! fyrsta sinn. Fimm hundruð og fimmtíu! Þeir buðu í kaupmaður og oddvitinn. Sex hundruð krónur! kaupmaður leit á oddvitann, sem hristi höfuðið eins og honum væri nóg boðið. Sex hundruð krónur! fyrsta, annað og — býður nokkur betur?------þriðja sinn. Kaupmaður var hæstbjóð- andi, en það mátti næstum segja að guð almáttugur hefði hreppt eignina. Óli hálfviti hoppaði á hlaðinu meðan verið var að bjóða upp og hermdi eftir þeim, sem í buðu. Þegar búið var að slá eignina varð óla litið á þorskhaus, sem lá í hlaðvarpanum. Einhver endurminning vaknaði í hans þokukenndu meðvitund við þá sjón. Hann sparn fæti við þorskhausnum svo hann. flaug inn í mannþröngina og sagði: Þetta fer allt í helvítis kjaptinn á honum. Iialldór Stefánsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.