Réttur - 01.10.1931, Blaðsíða 53
Rjettur]
TILBÚINN ÁBURÐUR
245
eru bændur frá Úral og skrifstofumenn frá Moskva,
yfirleitt menn af öllum stéttum og úr öllum landshlut-
um og njóta heilnæmis loftlagsins og fegurðar nátt-
úrunnar sér til heilsubótar og uppbyggingar andlega og
líkamlega.
Hvernig geta menn svo ætlast til þess að þessir
menn og ættingjar þeirra, vinir og kunningjar rísi
öndverðir gegn þeirri stjórn, er tryggir þeim alt
þetta ?«
Tilbúinn áburður.
Auðhringir — bændur — strfðshætta.
Einhver sú ægilegasta kreppa, sem nokkurn tíma
hefir dunið yfir auðvaldsheiminn er nú í algleymingi.
Afurðir auðvaldslandanna falla stöðugt í verði og á
þetta ekki síst við landbúnaðarafurðirnar. Hveiti
Ameríkubændanna hefir fallið svo í verði, að ekki þyk-
ir borga sig að flytja það á markaðinn, og af sömu á-
stæðum er kaffinu í Suður-Ameríku fleygt í sjóinn.
Alstaðar hvar, sem um er að litast í auðvaldsheimin-
um ber sömu sjón fyrir augu: Ofgnótt þeirra lífsnauð-
synja, sem mannkynið þarfnast, en atvinnulausar,
svangar og klæðlitlar miljónir öreiga verkamanna
hrópa: »Við verðum að fá mat. Við verðum að fá föt
til að geta klætt okkur gegn kuldanum«. En þessi
þurfalýður getur ekki keypt hveiti amerísku bænd-
anna né kaffið í Brasilíu. Verðið á ull íslensku bænd-
anna er svo lágt að vafi er á því, hvort það borgar sig
fyrir þá að hirða hana af fé sínu. Kjötið frá síðasta
ári hefir selst seint og illa. Bændur í nærsveitum
Reykjavíkur verða að sætta sig við 18, 19 eða 20 aura