Réttur - 01.10.1931, Blaðsíða 48
240 HEILBRIGÐISMÁLIN í R B [Rjettur
menni. Þeirra, sem fá að halda lífi og limum, bíða ekki
betri örlög. Allar eigur þeirra eru gerðar upptækar og
þeir látnir sverja böðlum sínum trúnaðar- og hollustu-
eiða. Þeir eru hneptir í þrældómsfjötra útlendra
kapítalista, sem sjúga úr þeim merg og blóð, gera það
að gulli og fylla með því pyngjur sínar. Launin eru
hörmulega lág og mestur hluti þeirra er tekinn aftur
með óbærilegum sköttum og álögum, svo að því nær
ekkert verður eftir til að lifa af, enda telst meira að
segja borgaralegum skýrslum svo til, að á síðastliðnu
ári hafi fólkinu í auðvaldshéruðum Kína fækkað um
11 miljónir, sem allar hafi orðið hungurmorða.
Þetta er ástandið, sem kapí.talisminn hefir skapað í
nýlendum sínum og hálfnýlendum og sem hann berst
fyrir að viðhalda. Alla þá, sem gerast svo djarfir að
rísa gegn þessu og hvetja þjóðina til sjálfsbjargar,
kallar yfirstéttin ræningja, glæpamenn og trúníðinga.
Á máli borgarastéttarinnar er sá maður ræningi, sem
vill hindra hana í að ræna arðinum af annara manna
vinnu. Glæpamaður er sá, sem vill méina henni að
svelta miljónir manna í hel árlega. Trúníðingur er sá,
sem vill uppræta hjá alþýðunni trúna á heilagleik
borgaralegs eignarréttar og eilífleik þess þjóðskipu-
lags, sem á honum byggist.
Heilbrígðismálin
í Ráðstjórnarlýðveldunum.
Franskur læknir, að nafni Pierre Dominique, sem
hefir ferðast um Sovjet-Rússland, skrifaði í borgara-
leg blöð um ferð sína og það sem hann sá í Rússlandi.
Svo sem við er að búast, þar sem maðurinn er læknir,