Réttur - 01.10.1931, Blaðsíða 28
220 HVERSVEGNA ERU LÆRÐIR MENN............. [Rjettur
eins haldnir af þessari skiljanlegu tregðu (inertia) í
mannfélagsmálum, sem orsakast af persónulegri vel-
líðan, heldur eru þeir þannig tamdir og tilsettir fyrir
áhrif skólanna og nána umgeingni og samruna við eðl-
isháttu broddborgaraskaparins, að þeir eru um tíma og
eilífð undirorpnir svokallaðri ósigrandi fáfræði (igno-
rantia invincibilis*) um þjóðheillamál. Þegar sósíalist-
inn er í austri, þá eru þeir í vestri, og það getur aldrei
um eilífð dregið saman með þessum tveim. Lífsskoð-
unin er svo samrunnin hinni fastmótuðu skapgerð
þessara manna, að þeir eru alveg rökheldir. Þegar þeir
voru að þroskast og læra á hinum fínu háskólum, þá
var sósíalismi alment hafður til athlægis sem heimsku-
legt lýðskrum, eins og til að mynda hjálpræðisher, sem
ekki þótti sæmandi fyrir nokkurn fínan eða mentaðan
mann að ljá eyru. Samkvæmt gamalli og góðri ákveðn-
ishyggju (absólútiskri hyggju), höfðu þeir inndrukkið
það sem óyggjandi lögmál, að í sérhverju þjóðfélagi
hljóti að vera til lítil úrvalssveit og mikill skríll. Og um
alt það, er skrílinn snerti, gilti bara eitt einasta snjall-
yrði, sem fram á þennan dag hefur verið eina úrlausn-
in, sem yfirstéttin hefur viljað veita áhugamálum
hans: Odi profatnum vulfjus. Hinir mörgu, fátæku
hefðu altaf verið og hlytu altaf að vera til, eins og
Kristur sagði: fátæka hafið þér jafnan hjá yður, —
það væri náttúrulögmál, eins og hitt, að hinir ríku
mundu og ættu að lifa og ríkja yfir þeim um tíma og
eilífð. Jafnvel þótt kenníngar af þessu tagi séu bæði
fræðilega og raunverulega afsannaðar, þá er þessi sér-
kennilega tegund manna stálheld fyrir öllum röksemd-
um og staðreyndum um það mál, af því að hin skoðun-
in er blátt áfram líffræðilega samrunnin þeim, eins og
nokkurskonar eðlisávísan og verður ekki upprætt,
*) Ég set þarna latínuna aftan við í svigum, til unaðsbótar
fyrir lærða menn. Höf.