Réttur - 01.10.1931, Blaðsíða 58
250
TILBÚINN ÁBURÐUR
[Rjetíur
nánar, að ekki gat verið um neina samkeppnr eða
verslunarstríð að ræða.
f sameiningu vinna nú þessir 2 hringir að því að
takmarka áburðar framleiðsluna; óhemju byrgðir
liggja óseldar, en bændur geta ekki fullnægt áburðar-
þörf sinni. Verkamenn svo þúsundum skiftir verða að
hrökklast út á götuna, atvinnulausir og fækkar þannig
stöðugt þeim, sem geta keypt afurðir bændanna.
En þessi samtök hringanna eru ekki óbrigðul til
þess að halda áburðarverðinu eða hvaða tegund sem
er, uppi. Nú eru góð ráð dýr. Forráðamenn samsteyp-
anna leitast við í lengstu lög að halda arðránsstöðu
sinni. Nú þykir nokkurnveginn fullvíst hvað þessir
herrar hafa á prjónunum. Það er eitt land á hnettin-
um, sem hringirnir hafa ekki náð neinni fótfestu. Það
er Sovjet Rússland. Efnaiðnaður var enginn í Rúss-
landi fyrir byltinguna. En með þeim alkunna hraða,
sem einkennir vöxt rússneska iðnaðarins undir hinum
sósíalistisku atvinnuháttum hefir þessi iðnaður tekið
stórfeldum framförum. Þessvegna er framleiddur
áburðurinn að rússnesku bændurna vantar hann og
hann fer þangað beina leið. Og iðnaðarverkalýðurinn
fær sínar nauðsynjar bjá bændunum í staðinn. Þar eru
engir auðmenn eða borgarastétt er leggur toll á þessa
vöru og nær þannig í hluta af þeim verðmætum, sem
fjöldinn framleiðir. Gróðaálagning auðhringanna er
þar úr sögunni. Rússneski verkalýðurinn, með bænd-
ur við hlið sér komu þeim fyrir kattarnef 1917. Við
þetta er framleiðsla rússneska verkalýðsins að verða
svo ódýr, að hin úrelta framleiðsluaðferð auðvaldsins
stenst henni ekki snúning. Og auðdrottnar auðvalds-
heimsins renna gírugum hatursaugum til Rússlands
eða verkalýðsins þar. Hvað verður um okkur ef þeir
halda svona áfram? Áður en varir koma þeir með vör-
ur sínar, og eru þegar byrjaðir, inn á okkar markað,
sem eru miklu ódýrari og þá erum við dauðadæmdir.