Réttur - 01.10.1931, Síða 64
256
RITSJÁ
[Rjettur
Michail Scliolochow: Der stille Don. Ver-
lag' fíir Literatur und Politik. Berlin 1930.
Af þeim fjölda ágætra skáldsagna, sem skapast hafa- í Rúss-
landi síðan byltinguna, er þessi einhver sú besta. Er þetta helj-
armikið skáldverk. 2 þykk bindi eru komin út. Hið fyrra heitir
»Frá friði til styrjaldar«. Hið síðara »Stríð og bylting«.
Er skáldsagan fyrst og fremst lýsing á lífi Kósakkanna við
Don, siðum þeirra og venjum, trúarlífi og ástum, brög'ðum og
bardögum.
Hún ber það með sjer þessi saga, að menning hins borgara-
lega Rússlands hefur ekki horfið, þótt byltingin yrði, heldur
hafa byltingarskáldin þvert á móti lært margt af eldri skáldun-
um og reynt að bjarga því besta úr list þeirra. Mun mörgum
detta í hug »Stríð og friður« Tolstois við lestur þessarar sögu
og þolir hún að mörgu leyti samanburð við það meistaraverk.
Sagan iðar af lífi og fjöri, allar persónurnar öðlast virkilega
sjálfstæðan lífskraft og' höfuðpersónan, Grigorij Pantelejewitsch
Meljechow, er snildarlega g'erð, sálarstríð hans út af ástamál-
unum, ástríðumar, hefnigirnin, hugarstríðið út af Bolshevism-
anum — öllu er þessu lýst svo ljóst, sem frekast er hægt að
óska. Öll er sagan svo »spennandi«, að hún sameinar hvað það
snertir kosti bestu »reifara« við list skáldsögunnar. E. O.
J. Lenz: Die II. Internationale und ihr
Erbe. 1889—1929.
Verlag Carl Hoym Nachfolger. Ham-
burg—Berlin. 1930.
1 þessari bók, sem er tæpar 300 síður, getur að finna bestu
sögu 2. Intemationale, þessa heimskunna sambands sosialdemo-
krata, sem rituð hefur verið fram að þessu. Er bókin m. a. full
af tilvitnunum í ræður helstu forvígismanna sambandsins, Be-
bels o. fl., á þingum þess, og prentaðar upp ályktanir og sam-
þyktir frá sömu alþjóðaþingum. Auk þess rekur höf. sögu Al-
þjóðasambanda kommúnista og' sosialdemokrata eftir stríðið alt
fram til 1929. Er saga þessi hin merkilegasta í alla staði og auk
þess skemtilega rituð. En hún er fyrst og fremst söguleg og'
heldur sjer aðallega við það að lýsa þróuninni á þessu sviði, en
minna við hitt að rannsaka orsakir afsláttarstefnunnar og svik-
anna og samhengi þess við imperialismann. Fyrir sosialdemo-
krata þá, sem þýsku skilja, er þetta hin gagnlegasta bók, og
ekki síður fyrir kommúnistana. E. O.
Allar þessar bækur útvegar »Bókaverslun alþýðu h.f.«, Aðal-
stræti 9 B, Reykjavík.