Réttur - 01.04.1968, Side 2
IHALDSKREPPA
EÐA
VERKLÝÐSLAUSN
Hrunið, sem Íhaldspólitíkin hefur leitt yfir
landið, blosir við. Atvinnurekendastéttin, sem
reynst hefur ófær til að stjórna sínu eigin at-
vinnulífi og þarmeð þjóðarinnar, ætlaði sér
þá dul að lækka dagkaup verkamanna, þegar
öll vinna hafði stórminnkað og árstekjur því
gerbreytzt til hins verra.
Verklýðssamtökin svöruðu árásinni, er ríkis-
stjórn atvinnurekendanna framdi með afnámi
vísitöluuppbótarinnar á kaup, einum rómi með
hálfsmánaðar verkfallinu í marz. Varnarbar-
áttan tókst að mestu, en ekki að fullu. Vígreif-
ustu verklýðsfélögin ákváðu þó réttilega að
halda hópinn og ganga að samningum, sem
ei voru fullur sigur, — frekar en berjast ein
fyrir fullri dýrtíðaruppbót og skiljast við stéttar-
systkinin, er að lægra vildu lúta. Það var skyn-
samlegt, því framundan er um nýár hin ör-
lagaríkasta kauphækkunarbarátta, þar sem
verklýðshreyfingin þarf á öllu sínu að halda:
víðfeðma einingu, vægðarlausri hörku og póli-
tískum skilningi á því að kauphækkunarbar-
áttan vinnst ekki nema verkalýðurinn sé reíðu-
búinn til stórfelldrar pólitískrar umsköpunar á
þjóðfélaginu, sem afturhaldið hefur með hringa-
vitlausri stefnu sinni skekt og skælt, svo það
rambar á glötunarbarmi.
Þetta hlutverk alþýðu — verkalýSs, starfs-
mannastétta o. fl., aS framkvæma þessar ger-
breytíngar á stjómarstefnu og þjóðfélags-
ástandi krefst tafarlausrar pólitískrar nýsköp-
unar alþýðuhreyfingarinnar sjálfrar, — sem
einnig af öðrum ástæðum er orðin aðkallandi,
bæði hvað snertir sterkan sósíalistískan for-
ystuflokk og víðfeðma baráttusamfylkingu.
LÆGÐ - KREPPA
Atvinnurekendastéttin með ríkisstjórn sinni
og öðrum pólitískum spákaupmönnum við
stjórnvölinn hefur elt mýrarljós „frjálsrar verzl-
unar" með slíkri áfergju þennan áratug, að
hún hefur brotíð niður öruggustu markaðssam-
böndin, sem ísland hafði: við sósíalistisku
löndin (úr 30% 1958 niður í 11% 1967) — til
þess að sitja að sínum „beztu mörkuðum" eins
og Morgunblaðið orðar það*. En einmitt á auð-
valdsmörkuðunum sveiflast verð og sölumögu-
leikar mest og það er hættulegast framleiðslu
*Sjá Rétt 1967, 4. hefti bls. 186 — mynd af leiðara
Morgunblaðsins 1. júní 1960.
72