Réttur - 01.04.1968, Qupperneq 18
Framþróun kapítalismans er íólgin í því, að
ný og ný svið hinnar félagslegu tilveru manns-
ins eru virkjuð í þágu kapítalískra lögmála;
þetta krefst af hálfu andstæðinga hans sam-
svarandi fjölbreytni í baráttuaðferðum og
heildarsýnar í þeim markmiðum, sem þeir
setja sér.
2. Háþróað kapítalískt þjóðfélag er síður
en svo ónæmt fyrir djúptækum þjóðfélags-
kreppum, sem fletta ofan af öllum mótsögnum
þess, en áhrif þeirra l>yggjasl nú síður en áður
á sjálfkrafa keðjuverkan og meira á viöbragðs-
hæfni þeirra þjóðfélagsafla, sem við eigast;
horgarastéttin hefur nú yfir að ráða miklu
margþættari og áhrifameiri tækjum til að
sigrast á slíkum kreppum, og því er það um
leið meira komið undir pólitískri stjórnlist
verkalýðshreyfingarinnar og þeirri valdaað-
stöðu, sem henni hefur áður heppnazt að ná,
hvernig henni tekst að nota sér slíkt ástand.
Hér er ekki ráðrúm til að fjalla nánar um þau
sögulegu tíðindi, sem gerzt liafa í Frakklandi
að undanförnu, en í fljótu bragði virðast þau
gott dæmi um þetta.
3. Nauðsynlegir tengiliðir inilli hinnar dag-
legu pólitísku baráttu og þjóðfélagsbyltingar-
innar hljóta við núverandi aðstæöur að verða
miklu fleiri og margvíslegri en áður var gert
ráð fyrir. Við þær kröfur, sem ætlað var að
vera beinn undanfari og aflvaki byltingar-
átaka, bætast nú aðrar, sem miða að því að
breyta valdahlutföllunum í þjóðfélaginu og
ryðja brautina sjónarmiðum, sem í eðli sínu
eru andstæð hinum kapítalísku lögmálum.
4. Einangrun sósíalismans í einu landi eða
ákveðnum heimshluta þýðir um leið óhjá-
kvæmilega takmörkun á sögulegum möguleik-
um hans, en nánari þýðing þessa er mismun-
andi eftir þróunarstigi viðkomandi lands og
aðstöðu þess á alþjóðavettvangi. Lögmál „ó-
jafnrar þróunar“, sem leitt hefur til sigurs
byltingarinnar í einstökum löndum samtímis
því, að rikjandi þjóöskipulag festi sig í sessi
í öðrum, er ekki aðeins í fullu gildi, heldur
hefur því bætzt ný vídd: með vaxandi skipu-
lagningu kapítalismans er borgarastéttinni
88
orðið hægra um hönd að draga ákveðna lær-
dóma af sigri byltingarinnar í öðrum löndum
og staðfesta þá með tilheyrandi ráðstöfunum.
Um fyrirsjáanlega framtíð getur sósíalisminn
aðeins sigrað í einstökum löndum, þar sem
skapazt hafa forsendur fyrir byltingu; nauð-
synlegt er að gera sér grein fyrirhvorutveggja,
sögulegri nauðsyn þessa athafnasviðs og ó-
hjákvæmilegum takmörkunum þess.