Réttur - 01.04.1968, Síða 21
PAX AMERICANA
LÍFTRYGGING
FYRIR BANDARÍSKAN KAPÍTALISMA
SÍÐARI
Þeir sem vilja hrekja þá kenningu að efna-
hagsmunir imperíalismans eigi mestan þátt í
að móta utanríkis- og hernaðarstefnu Banda-
rikjamanna, bera því oft við að hernaðar-
pantanirnar og hinir erlendu markaðir hafi
ekki úrslitaþýðingu nema fyrir lítinn hluta
handarískra auðfélaga. Þessi röksemd væri
góðra gjalda verð ef bandarískur kapítalismi
samanstæði af nokkurn veginn jafngildum
einingum. En sé tekið tillit til samþjöppunar
auðmagnsins, reynist röksemdin vera haldlítil.
Skv. hagskýrslum fyrir árið 1962 réðu aðeins
jimm auðfélög1 yjir 15% alls auðmagns í
iðnaðargeiranum. Og 100 fjársterkustu félög-
in hafa umráð yjir 55% heildarauðmagns-
1 Hér verSa orSin auSfélög (capitalistic corpora-
tion), einokunarhringir (monopolistic corp.) og fjöl-
þjóSasamsteypur (multinational corp.) notuS nokkuS
jöfnum höndum til aS tákna stærstu auShringa
Bandaríkjanna.
HLUTI
ins í þessum sama geira. Af þessari gíf-
urlegu auðmagnssamþjöppun leiðir að helztu
risarnir geta, af sjálfu sér og í bandalagi við
fésýslu og áróðursvaldið, lagt á vogarskálina
ofurþunga efnahags- og stjórnmálavalds síns.
Það er einmitt meðal þessara risafélaga sem
er að finna aðal viðskiptavini liersins og
stœrslu útjlytjendurna. Yfirlit yfir 50 voldug-
ustu iðnfyrirtækin sýnir hverjar þær greinar
eru sem bandarískt fjármagn leitar helzt í er-
lendis. Meðal þeirra má finna 12 olíufélög,
5 flugvélaframleiðendur, 3 í efnaiðnaðinum,
3 í stáliðnaði, 3 í bílaiðnaði, 8 í rafmagns-
og elektróníska iðnaðinum og 3 í gúmmíiðnað-
inum. Þessi 37 auðhringar ráða yfir 90% af
heildarauðmagni ofangreindra 50 iðnfyrir-
tækja.2
- Sbr. skýrslu verzlunarráðuneytisins: U. N. S.
Business. Investment in Foreign Countries, 1960, bls.
144.
91