Réttur - 01.04.1968, Side 26
aj fjárfeslingu erlendis var iðulega miklu hœrri
en í Bandaríkjunum . . . Þessar aðstæöur ýttu
undir þróun fjölþjóðasamsteypanna.'41
A árabilinu 1946—61 jókst hin beina fjár-
festing bandarískra samsteypa erlendis úr 7,2
milljöröum í 34,7 milljarða dala,1 2 þ. e. um
27,5 milljarða, en á sanui tíma nam innflutn-
ingur auðmagns til Bandaríkjanna (gróði af
þessari fjárfestingu) 9,5 milljörðwm meira en
útflutningurinn. Sé miðað við þróunarlöndin
ein, kemur í Ijós að þaðan jlultu bandarískar
samsteypur inn þrisvar sinnum meira fjár-
magn cn þær fluttu þangað út til fjárfestingar
á tímabilinu 1950—65.3 I þessum tölum birt-
ist arðránseðli imperíalismans í skýrri mynd.
Erlend fjárjesting, sem íslenzka viðreisnar-
stjórnin kallar allra meina bót, er mikilvirk-
asta tœkið sem einokunarhringirnir eiga völ
á til að fœra auðinn frá fálœku löndunum til
hinna ríku.4
Sú undantekning sem Standard Oil var enn
fyrir tveimur áratugum í hópi bandarískra
auðhringa, er nú á góðri leið með að verða
regla. Allir hinir voldugustu hafa þróazt í fjöl-
þjóðasamsteypur. Þessi þróun hefur ekki hvað
sízt beinzt að tæknivæddustu geirum efnahags-
lífsins í V-Evrópu. General Molors framleiðir
bíla fyrir hinn ört vaxandi Evrópumarkað,
ekki í Detroit, heldur í Englandi og V-Þýzka-
1 Business Week.
2 Skv. U. S. Survey of Current Business, ágúst 1962.
3 „Kapítalflóttinn" frá Rómönsku Ameríku þar sem
Bandaríkin hafa fest um fjórðung af heildarfjárfest-
ingu erlendis, nam á þessu tímabili hvorki meira né
minna en 14 milljörðum dala.
4 Það er því einber goðsögn að Bandaríkin miðli
öðrum af auði sínum. Einn þáttur þeirrar mýtu er sá
að Bandaríkin flytji út hugvit og atorku. Sannleikur-
inn er sá að auður þeirra sogar til sín hugvits- og
vísindamenn annarra þjóða, svo tugþúsundum skiptir.
Menn hafa getið sér til að „brain export" frá fátæku
löndunum til Bandaríkjanna sé meira virði en öll
efnahagshjálpin sem þau njóta. Talið er að um
100.000 vísindamenn erlendir hafi setzt að fyrir vest-
an haf. í dag starfa þar fleiri indverskir vísindamenn
en föðurland þeirra hefur á að skipa.
96
landi. Samsteypan flytur meira út til þróunar-
landanna frá evrópskum dótturfélögum sínum
en vestan um haf. Og af heildarinnflutningi
vara til Bandaríkjanna kom nálega fjórðung-
ur frá dótturfélögum bandarískra samsteypa
erlendis.
Eitt hið örlagaríkasta við þessa þróun er
það hve bandarískur kapítalismi licfur náð
miklu tangarhaldi, í öllum iðnvœddum rikjum,
á þeim sviðum sem eru í jararbroddi tœkni-
vœðingarinnar, s. s. kjarna-, eleklrónískum- og
eldflaugaiðnaði. Sú tíð er liðin að Bandaríkin
leyfðu ríkjum V-Evrópu frjáls afnot af patent-
um sínum og tækniuppfinningum. Þvert á
móti færa samsteypur þeirra sér nú í nyt tækni-
yfirburðina til þess að sveigja efnahagslíf
annarra auðvaldsríkja undir dótturfélög sín.
Þessi ríki mega því horfast í augu við þann
vanda að þau kunni fyrr en varir að missa úr
höndum sér stjórn þeirra greina sent verða
lykillinn að efnahagsframvindu framtíðarinn-
ar. Svo sem kunnugt er hafa Bandaríkin náð
þessari lykilaðstöðu í krafti þess að banda-
menn þeirra hafa viðurkennt dollarann sem
alþjóðagjaldmiðil, til jafns við gull. Dollarinn
hefur verið sá Trojuliestur sem gerði Banda-
ríkjunum kleifl að hrifsa undir sig hvert fyrir-
tœkið á fœlur öðru um allan hinn kapítalíska
lieim. Þessi lævíslega stefna hefur nú reyndar
leitt til slíkrar skuldasöfnunar1 og greiðslu-
halla að gengi sjálfs dollarans riðar til falls.
Hin fullkomna hagsmunaeininq
Vegna víðfeðmi sinnar og fjölbreytileika í
framleiðslu togast ýmsar hagsmunaandstæður
á innan fjölþjóðasamsteypunnar — þessarar
grundvallareiningar bandarísks imperíalistna.
Þær kunna að varða tollamál, mismunandi
hagstæða staðselningu fyrirtækja eftir lönd-
um, verðlagningu o. s. frv. En í hverju tilviki
1 Á þennan hátt hafa Bandaríkin kostað efnahags-
útþenslu sína með því einfaldlega að láta prenta doli-
araseðla sem aðrar þjóðir hafa viðnrkennt sem trygg-
ingu fyrir sinni eigin mynt, jafnhliða gulli. Skuldin
sem Bandaríkin hafa þannig safnað síðan 1945, nem-
ur ca. 30 milljörðum dala.