Réttur - 01.04.1968, Side 36
A. MALYSH:
ARFLEIFÐ MARXISTA
Rit Marx og Engels eru voldugt vopn í hönd-
um verkalýðsins og flokka hans. Utgáfan á
heildarritum þeirra, söfnun handrita þeirra og
rannsókn öll í því sambandi hefur verið mikið
verk.
Nokkru eftir októberbyltinguna 1917 var haf-
izt handa af hálfu Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna um að koma upp slíkri rannsókna-
og útgáfustofnun, og á aldarafmæli Marx, 5.
maí 1918, var ákveðið að gefa út heildarrit
þeirra Marx og Engels í 28 binda útgáfu. í út-
gáfunefndinni voru m. a. Lenín, Lunacharsky,
Vorovsky, Pokrovsky, Steklov o. fl.
Þann 11. janúar 1921 var að tillögu Leníns
ákveðið að koma upp Marx-Engels stofnun-
inni. Voru þau Bela Kun og Clara Zetkin m. a.
í stjóm hennar. Sú stofnun á nú um 8000 frum-
rit eða ljósmyndir af frumritum Marx og Engels.
Fyrsta rússneska útgáfan, ásamt alþjóðlegri
útgáfu (Marx-Engels Gesamtausgabe, MEGA),
byrjaði útkomu seint á þriðja áratug aldar-
innar og var lokið 1947. Var hún 29 bindi, —
en 20. bindið sem „Theorien íiber den Mehr-
wert" (Kenningamar um gildisaukann) átti að
vera í, kom ekki. Hins vegar hafðist upp á
mörgum handritum, sem lágu í söfnum þýzka
sósíaldemókrataflokksins óhagnýtt, svo sem
„Okonomische und Philosophische Manu-
scripte von 1844", „Deutsche Ideologie", „Dia-
lektik der Natur" o. fl.
Síðan var önnur rússnesk heildarútgáfa gef-
in út, hófst 1955 og lauk 1966. Er hún 39 bindi.
Eru það 5500 rit, greinar, bréf o. s. frv., þar af
um 1000, sem ekki hafa áður verið prentuð,
þar í 600 bréf Marx og Engels. Og í þessari
heildarútgáfu komu „Theorien iiber den Mehr-
wert", að lokinni mikilli rannsókn á handrit-
unum, sem oft eru ill læsileg, og í þeirri mynd,
sem Marx skildi við þau, en Kautsky hafi áður
gefið út óvandaða útgáfu af þeim 1905—10, —
en nú komu þessi rit, sem hafa mikla þýðingu
fyrir „Auðmagnið" í sinni upprunalegu mynd.
Eru þau 26. bindi heildarútgáfunnar og er þá
„Das Kapital" Marx komið út í fyrsta sinni í
endanlegu formi höfundar og Engels.
Bréf Marx og Engels eru í 27.—39. bindi. Eru
það dýrmætir fjársjóðir marxismanum.
í Þýzka alþýðulýðveldinu kemur nú út á
vegum Dietz-útgáfunnar og stofnunar Marx-
isma og Leninisma ágæt þýzk heildarútgáfa
Marx og Engels í 39 bindum, svo öll rit þessara
miklu sona þýzku þjóðarinnar verða nú loks
aðgengileg á máli þeirra. En tveir þriðju alls,
sem þeir rituðu, var á þýzku.
Góð samvinna er á milli þessara tveggja
stofnana í Sovétríkjunum og DDR og sömuleið-
is við Gramscí-stofnunina í Róm, Maurice-
Thores-stofnunina í París, Alþjóðastofnun fyrir
félagslega sögu í Amsterdam og fjölda annarra
skyldra stofnana í Japan, Bandaríkjunum og
víðar.
Stofnun marxisma og leninisma, eins og
Marx-Engels-stofnunin í Moskvu heitir nú, hef-
ur að geyma yfir tvær milljónir binda um sögu
sósíalismans, verkalýðshreyfingarinnar, marx-
ismans og leninismans. Hún er öllum opin til
vísindalegra rannsókna og koma menn alls
staðar að í veröldinni til þess að hagnýta sér
það, sem hún hefur að bjóða. Er unnið þar að
margskonar útgáfum öðrum en hér um getur.
Alls hafa rit Marx og Engels verið gefin út í
Sovétríkjunum í 2394 útgáfum, en 85 milljónum
eintaka, siðan byltingin varð 1917.
Nú vinnur stofnunin m. a. að því að gefa út
11 viðbótarbindi við aðra heildarútgáfuna af
Marx og Engels. Þar verða rit þeirra fyrir 1844,
greinar skrifaðar 1848—49, sem nýlega voru
uppgötvaðar, nokkrir frumdrættir að „Auð-
magninu" o. fl.
Stofnunin vinnur nú í samráði við samsvar-
andi stofnun í DDR að því að gefa út helldar-
útgáfuna á því máli, er hvert rit var skrifað.
Hugmyndin er að gefa út bókstaflega allt, sem
Marx og Engels hafa skrifað, líka hugmyndir,
athugasemdir ritaðar við bækur o. s. frv.
106