Réttur - 01.04.1968, Blaðsíða 50
Dammam án réttarhalda. Svo er og í fangels-
unum í Jidda, Riyadh og fleiri borgum.
Það eru olíuhringarnir, sem standa á hak
við Feisal og heimta að sífellt sé hert á kúg-
uninni. Innflutningur flestallra bóka og blaða
er bannaður, nema trúarlegra bókmennta og
rita gegn kommúnismanum.
Feisal hefur gert „gagnkvæman öryggis-
samning“ við Bandaríkin, þar sem þau fá rétt
og vald til að vernda hagsmuni sína. Austur-
hluti landsins er raunverulega á valdi njósnara
og liðsforingja Bandarikjahers, — „ráðleggj-
enda“. — Stundum reynir einveldisstjórnin að
bregða yfir sig einskonar „framfaragrímu“,
en það er aðeins bragð til að dylja kúgunina.
Þrátt fyrir allar ofsóknir vex andstaða al-
þýðu. Á síðasta ári gerðu verkamenn verk-
föll í Dhahran, Ras at Tannura og í Bakhik.
Og í borgunum Ríyadh, Medina, Jidda og
Katif var farið í kröfugöngur gegn heims-
valdasinnum.
Fólkið er að vakna og það þarf að finna
samúð heimsins í baráttu sinni gegn einveldi
og útlendri kúgun.
TÚNIS
Harðvitugar ofsóknir fara nú fram gegn
þeim öflum, er berjast fyrir framförum og
frelsi, einkum stúdentum og menntamönnum.
Eru 34 þeirra fyrir dómstólum nú og hafa
verið pyntaðir í fangelsunum. Meðal þeirra
er einn af forystumönnum Kommúnistaflokks-
ins í Túnis, Abdel Hamid Ben Mustafa.
Átyllu til ofsóknanna voru mótmælagöngur
stúdenta, vegna þess að félagi þeirra, Ben Jen-
net, var dæmdur í 20 ára þrælkunarvinnu. En
hann hafði tekið þátt í andamerískum kröfu-
göngum 5. júní 1967. Stúdentar við háskólann
í Túnis gerðu þriggja daga verkfall til að mót-
mæla ofsóknunum.
Kommúnistar og stúdentar herða nú bar-
áttuna gegn afturhaldsstjórninni í Túnis og
ofsóknum hennar.
GUATEMALA
Sífellt versna aðferðir leppstjórnar Banda-
ríkjaauðvaldsins í Guatemala. Pyntingum og
morðum gegn pólitískum andstæðingum er
beitt í æ ríkara mæli.
1 janúar var Rogelia Cruz, sem nýlega hafði
unniÖ í fegurðarsamkeppni þjóðarinnar sem
fegursta kona Guatemala, handtekin af lög-
reglunni fyrir hyltingarstarfsemi. Hún fannst
dáin nokkru síÖar og hafði greinilega verið
beitt ægilegum pyntingum.
í febrúar myrti lögreglan fjóra menn við
húsrannsókn að næturlagi. Tveir þeirra voru
í miðstjórn hins kommúnistíska Verkamanna-
flokks Guatemala. Höfðu mennirnir verið
kvaldir, brenndir á brjósti og andliti, hand-
leggir brotnir, tunga skorin úr munni o. s. frv.
Fjöldi annarra baráttumanna hefur verið
myrtur af afturhaldinu, meðal annars alls 9
menn úr miðstjórn Verkamannaflokksins. Mik-
ill fjöldi situr í fangelsi.
Ríkisstjórn Guatemala er ein grimmasta aft-
urhaldsstjórn rómönsku Ameríku. Og svo kvað
vera unnið að því að fá utanríkisráÖherra
hennar, Catelán, kosinn forseta þings Samein-
uðu þjóðanna næst, — á ári mannréttindanna!
SPÁNN
Eftir lækkun sterlingspundsins í nóvember
1967, neyddist Franco-stjórnin til þess að fella
mynt Spánar, pesetann. En tveim dögum áður
hafði Franco lýst fyrir þing-nefnunni hve
glæsilegt efnahagsástand landsins væri (eins
og íhaldið gerði hér fyrir kosningar!).
Nú talar hinsvegar enginn lengur um
„spánska undrið“. Verkamenn hefja nú verk-
föll, er þeim er sagt að herða mittisólina. Verk-
föll breiðast út um allt landið, jafnt til kola-
námanna í Asturiu sem bíla- og rafeindaiðn-
aðarins og fleiri iðngreina.
Lýðræðishreyfingin vex svo ört meöal stúd-
enta að háskólarnir eru orðnir miðstöðvar
hennar.
120