Réttur


Réttur - 01.01.1971, Qupperneq 7

Réttur - 01.01.1971, Qupperneq 7
slíkra laga einfalt í vöfum og að sameina yfirumsjón allra umhverfismála í einni stofn- un, er heyri undir aðeins eitt ráðuneyti. I þessu sambandi má benda á það geig- vænlega skipulagsleysi, sem nú ríkir varðandi eftirlit með mengun og eiturefnum, þar sem fjölmargir aðilar sýsla eitthvað við þessi mál, en fæstir hafa nokkurt samstarf sín á milli og enginn hefur heildarsýn yfir sviðið. Þá er mörg atriði varðandi umhverfisvernd að finna á dreif í ýmsum lagabálkum, svo sem í vatnalögum, vegalögum, lögum um skipulag í þéttbýli og lögum um meðferð eiturefna. Oll þurfa þessi lög endurskoðunar og sam- ræmingar við með tilliti til umhverfisverndar. Akvæði vantar og um mikilsverð atriði, og er hér rétt að benda á nauðsyn þess, að setja lög um takmarkaða náttúruvernd í óbyggðum, ekki sízt á miðhálendinu, þannig að ekki geti hver og einn aðhafzt þar, hvað sem honum sýnist, eins og nú er. í heild ber að leggja áherzlu á, að hraða setningu víðtækra laga um umhverfisvernd, er taki til allra þátta hennar, og síðan verði aukið við eða breytt, þar sem gloppur finn- ast. Við höfum enn góða möguleika á að bæta úr því, sem illa hefur farið í umhverfi okkar, og sá kostnaður, sem af slíkum aðgerð- um hlýzt nú og framvegis mun birtast í margföldum hagnaði, er tímar líða, og líkast til fyrr en okkur varir. MENGUNARHÁSKINN Nýlegar fregnir um niðurstöður erlendra rannsókna, er sýndu mengun hafsvæða við Islánd og víðar í Norður-Atlantshafi með klórkolvatnsefnum og fleiri skaðlegum efn- um, eru uggvænlegar, og færa okkur heim sanninn um það, að mengunarvandinn er alþjóðlegur og fer ekki að landamærum. Því ber okkur skylda til að fylgjast sem bezt með Hið fyrsta þarf að setja lög um náttúruvernd í ó- byggðum. Myndin er tekin norður yfir Kollumúla og Viðidal eystra. öxarfellsjökull og Snæfell í bak- sýn. — Ljósm. H. G. því, sem erlendis gerist í mengunarmálum og taka þátt í alþjóðásamstarfi um varnir gegn mengun. Þar hljótum við alveg sérstaklega að leggja áherzlu á strangar alþjóðareglur til verndar heimshöfunum. MENGUN HÉRLENDIS Er þetta er ritað stendur fyrir dyrum ráð- stefna um mengun hérlendis, haldin á vegum Landverndar. Gera má ráð fyrir, að þar verði ýmislegt fróðlegt dregið fram í dagsljósið. Því hefur mjög verið á lofti haldið, að staða okkar sé mjög góð í þessu efni, og það má eflaust til sanns vegar færa, ef til saman- burðar eru tekin fremstu iðnaðarríki og neyzluþjóðfélög heimsins. En einmitt af þess- urn sökum ber okkur að vera vel á verði, og ef að er gáð má víða finna hér umtalsverða 7

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.