Réttur


Réttur - 01.01.1971, Blaðsíða 19

Réttur - 01.01.1971, Blaðsíða 19
borgaralegum réttindum hefur ekki í einu vestrænu lýöræðisríki veitt þeim til frambúð- ar það rými, sem hefði mátt vænta. Ráðherrar úr hópi kvenna finnast einkum í löndum þar sem meiri háttar umbyltingar eru nýafstaðnar, þar sem brotizt hefur verið til sjálfstæðis og nýs stjórnarfyrirkomulags. Má þar til nefna Indland, Ceylon, Israel, Rúmeníu, en vandséð er hvað er tilviljunum háð, hrein undantekning eða heyrir til bráða- birgðaráðstafana, og örðugt er að greina hvað raunverulega bendir fram á við. I Sovétríkj- unum eru konur allfjölmennar við stjórn- málastörf, sem tilheyra undirbyggingunni eða jafnvel upp í miðjum hlíðum, en þær eru sjaldséðar á toppinum innan þess hóps, sem fer með hin raunverulegu völd. Þar að auki hefur þessi hlið málsins þokað um set í vit- und flestra, þar eð þær hafa óneitanlega for- framazt verulega og eru á mörgum sviðum komnar miklu lengra áleiðis en kynsystur þeirra í löndum vestursins. Jafnhliða því sem örlað hefur í Sovétríkjunum á vandamálum, sem eru fylgifiskar nægtaþjóðfélagsins hefur borið á vissri tregðu gagnvart nýjum hreyf- ingum og djúpstæðum breytingum. Greini- lega er stefnt að hinu hefðbundna heimilis- og fjölskylduformi, og er það spor til baka. Þetta viðhorf endurspeglast skýrt, þegar litið er til valdahlutfallsins milli kynjanna. I Bandaríkjum N-Ameríku hefur kona aldrei skipað meiriháttar valdastöðu, í Eng- landi og Skandínavíu þar sem konurnar eru þó svo sjálfstæðar og skörulegar hafa þær verið ótrúlega hlédrægar og haldið sig furðu mikið utan við hinn pólitíska vígvöll. I Frakklandi hefur síðustu tuttugu árin verið stigið stórt skref aftur á bak. Tímabilið eftir lok styrjaldarinnar var hvort tveggja í senn einskonar pólitísk eldskírn fyrir konurn- ar, sem fengu loksins árið 1946 kosningarétt °g kjíirgengi og einnig var það nokkur um- bylting eftir fjögurra ára Vichy-stjórn og her- nám Þjóðverja. Margar þeirra kvenna, sem barizt höfðu í andspyrnuhreyfingunni, buðu sig fram til þingkosninga, einkum konur, sem tilheyrðu vinstri armi stjórnmálanna.Þær náðu umtals- verðum árangri, og margar voru kjörnar. Þegar stundir liðu fram, og stjórnmálalífið fór að ganga sem glaðast, og hér verður því miður að nota það orð í hinni allra neikvæð- ustu merkingu þess með öllu, sem það getur falið í sér af hvers kyns makki, þrátefli frain og aftur, atkvæðaveiðum, skrumi og dekri við hina og þessa skoðanahópa, þá sýndi það sig brátt, að konurnar áttu stórum örðugra uppdráttar í þessum selskap en karlmennirnir. Þótt þær sýndu af sér allt eins mikla hæfni til stjórnmálastarfa, nutu þær ekki sama tráusts og karlmenn við sambærilegar að- stæður. Mörgum þeirra var nóg boðið og drógu sig sem skjótast í hlé. Síðan hefur fyrri ávinningum ekki verið fylgt eftir með vax- andi þátttöku kvenna í stjórnmálum, heldur hefur hún farið stórlega dvínandi. Varla verður hjá því komizt að álykta sem svo, að hið virka stjórnmálalega lýðræði sé enn í órafjarlægð. Hið svokallaða jafnrétti milli kynja stend- ur á ákaflega veikum grunni. Við síðustu sveitarstjórnarkosningar náði reyndar nokkur hópur kvenna kjöri til setu í hreppstjórnum. Sumar þeirra voru kjörnar til oddvita d litlum svæðum þar sem oddvitastörfin eru samt umfangsmikil og tímafrek, en enginn sérstakur ljómi stendur af miðað við pólitíska framabraut, og engin veruleg áhrif fylgja. Þegar svo er komið,að jafnvel ailra minnstu ráðhús eru á kafi í skriffinnsku og blekbú- skap, þá hafa hinir háu herrar misst áhugann á þeim, og er þá tilvalið að fela þau konum. Aftur á móti hafa karlmenn haldið áfram störfum í stjórnum hinna stærri héraða þar 19 L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.