Réttur


Réttur - 01.01.1971, Blaðsíða 54

Réttur - 01.01.1971, Blaðsíða 54
Nýlega hefur þetta risafyrirtæki lagt tvö stór fyrirtæki undir sig. Annað er bandaríska fyrirtækið Libby, Mc Neill & Libby, voldug niðursuðusamsteypa í Chicago, sem 1965 var 230. iðnfyrirtæki Bandaríkjanna að stærð og með um 100 miljón dollara höfuðstól (8800 miljónir íslenzkra króna) og 300 miljón doll- ara veltu (= 26400 miljónir ísl. kr.). Hitt er svissneska fyrirtækið Ursina Vrank AG, sem hafði 1970 veltu er nam um 38.000 miljónum ísl. kr. og 15.000 starfsmenn. Nestle hafði áður en þetta gerðist 240.000 miljóna króna veltu og 92 þúsund verka- menn í sinni þjónustu. Eftir þessa samsteypu hefur auðhringurinn að líkindum 312.000 miljóna króna veltu og getur þá jafnvel orðið stærri hvað veltu í matvöru snertir en sjálfur Unilever-hringurinn brezk-hollenzki, sem er annað voldugasta iðnfyrirtæki heims utan Bandaríkjanna, en Shell er stærra. Þannig vaxa auðjöfrarnir og auðmagnið færist æ á færri hendur. VESTUR-EVRÓPSKT KOMMÚNISTAÞING Dagana 11. til 13. janúar komu saman fulltrúar kommúnistaflokkanna í Vestur- Evrópu í London, til þess að ræða sameigin- leg viðbrögð verkalýðsins gagnvart alþjóð- lega hringavaldinu. Eru nú æ meiri brögð að því að sömu auðhringarnir eigi fyrirtæki í mörgum löndum og skapast þá þörf á sam- eiginlegri baráttu verklýðssamtakanna gegn slíkum hringum. Ennfremur gætir nú í æ rík- ara mæli innrásar bandarísks auðmagns í Evrópu og beitir það sér ekki sízt fyrir því að sameina markaði landanna í einn markað og jafnframt ríkin í eitt ríki. Verður æ nauð- synlegri samvinna verkalýðsins bæði á fag- legum og pólitískum grundvelli til þess að svifta þessa auðhringa valdaaðstöðu þeirra og varðveita sjálfstæði þjóðanna, þótt samvinna þeirra fari vaxandi. I Noregi ræður nú erlent auðvald fjórð- ungi fjármagns í hlutafélögum, en af þessu erlenda auðmagni er 27% bandarískt, 15% brezkt, 11% svissneskt, 11% franskt, 10% frá Kanada og 5% frá Belgíu. Sænskt auð- magn er 13%, en danskt 3%. Samstarf verklýðshreyfingarinnar í öllum auðvaldslöndum Evrópu er mjög aðkallandi og gott að kommúnistaflokkar og aðrir rót- tækir sósíalistaflokkar þessara landa hafi for- göngu um það. Sósíalistísk verklýðshreyfing Islands þarfnast í auknum mæli slíks sam- starfs eftir að svissneskt og bandarískt fjár- magn hefur náð lykilaðstöðu í iðnaði á Is- landi. 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.