Réttur - 01.04.1971, Page 7
SOFFÍA GUÐMUNDSDOTTIR:
UMSKALDVERK
SVÖVU JAKOBSDÓTTUR
Um bækur Svövu Jakobsdóttur hefut
margt verið rætt og ritað allt frá því hún
kom fyrst fram á sjónarsviðið sem rithöf-
undur.
Það er því e.t.v. að bera í bakkafullan
lækinn að birta nú fyrir lesendum Réttar
fáeinar síðbúnar hugleiðingar um bækur
Svövu frá sjónarhóli almenns lesanda. Þeir
eru sem betur fer margir á voru landi. Fyrsta
bók Svövu Jakobsdóttur „Tólf konur" kom
út árið 1965 og inniheldur tólf stutta þætti,
kvennastúdíur, sem eru ritaðar af næmi og
skarpskyggni. Þessi bók vakti athygli og hlaat
góðar undirtektir. Næsta bók Svövu „Veizla
undir grjótvegg" kom út árið 1967, og var
ekki um að villast, að þar með kvaddi sér
hljóðs rithöfundur, sem bæði var nokkuð
niðri fyrir og hélt þannig á penna, að at-
hygli hlaut að vekja. Efni þessara smásagna,
Svava Jakobsdóttir sem eru tíu talsins, er sótt í líf nútímafólks
63