Réttur


Réttur - 01.04.1971, Page 14

Réttur - 01.04.1971, Page 14
LÚÐVÍK JÓSEPSSON: ERLEND STÓRIÐJA EÐA INNLEND IÐNVÆÐING Hitt mesta ágreiningsmál í íslenzkum stjórnmálum í dag er um stefnuna í atvinnu- málum, og þá fyrst og fremst um það, með hvaða hætti skuli byggja upp atvinnulíf landsmanna á komandi árum. STEFNA RÍKISSTJÓRNARFLOKKANNA Forystumenn stjórnarflokkanna og nokkrir helztu ráðunautar þeirra í efnahagsmálum, halda því fram, að þjóði geti ekki lengur treyst á sína gömlu grundvallar atvinnuvegi, eins og sjávarútveg og landbúnað, né heldur þann iðnað, sem þróazt hefir í landinu til þessa. I hvert sinn, sem eitthvað bjátar á í efna- hagsmálum er talað um „svipt/lan sjávarafla" og „frumstœðan landbúnað" og allri skuld- inni skellt á atvinnuvegina og gæði landsins. Hvað eftir annað hafa ráðherrar og efna- hagssérfræðingar þeirra lýst yfir þeirri skoð- un sinni, að vonlaust sé, að landsmenn geti tryggt sér sambærileg lífskjör og aðrar þjóð- ir, nema breytt verði gerð atvinnulífsins í grundvallaratriðum. Sömu aðilar hafa síðan flutt þjóðinni þann boðskap, að eina leiðin til að auka verulega hagvöxt þjóðarinnar og um leið til að tryggja grundvöll að bættum lífskjörum, sé að koma upp stóriðju-rekstri í landinu. „Með stóriðju skapast festa og öryggi i efnahagsmálum, en fyrr ekkisagði forsæt- isráðherra landsins fyrir nokkru síðan um 70

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.