Réttur


Réttur - 01.04.1971, Qupperneq 23

Réttur - 01.04.1971, Qupperneq 23
og Þýzkalands í dag. Hún var konan sem barðist af sannfæringu gegn allri tilslökun og tilgangslausri málamiðlun við óvininn. Hún barðist gegn þýzkri endurskoðunar- stefnu og öreigaalræði Leníns. A okkar máli þýddi þetta vestrænt neyzluþjóðfélag og aust- urevrópskt framleiðslusamfélag. Síðar — þegar hrifningin og bjartsýnin dvínuðu og einangrunin frá fjöldanum var farin að segja til sín — birtust þeir félagarn- ir Lenín og Trotský. Þýzku stúdentarnir og evrópska andófs- hreyfingin báru mikla virðingu fyrir Lenín en komust aldrei í neitt innilegt samband við hann. Þá grunaði að hann ætti einhvern óskilgetinn þátt í stalínismanum og ógöng- um sósíalismans í Austur-Evrópu. Menn ótt- uðust flokkshugtak Leníns og kenninguna um framverði byltingarinnar. Ef til vill var það vegna þess að engin byltingarfjáður fjöldi stóð á bak við stúdentana. Þó mun þar meira háfa mátt sín sá nauðsynlegi skammtur af anarkísma og sjálfkvæmni, sem einkenndi þessa hreyfingu, þar til hún hvarf inn í rauðu sellur háskólanna og starfshópa vinnu- staðanna. En Lenín hafði gert byltingu — og það skipti öllu máli. II. Það fylgir því mikil skuldbinding að skrifa um Rósu Luxemburg. Sú skuldbinding er ekki fólgin í hlutlausri nákvæmri endursögn, heldur í heiðarleika og hreinskilni gagnvart þeim sannleika sem við álítum liggja undir yfirborði staðreynd- anna. En það þýðir að gera það sama í okkar umhverfi og hún gerði í sínu. Hún fyrirleit alla hræsni og allt það líf Úr SDS-kröfugöngu gegn Vietnamstrðinu. sem aldrei þorir að taka áhættu, því án hennar verður ekkert nema flatneskja og forarsvað. Hún vildi að menn stæðu beinir og upp- réttir eins og manneskjur í stað undirgefni og lágkúruskapar. Með slíku hugarfari tókst hún á við þau öfl sem síðar meir mótuðu framtíðarstefnu sósíalískrar hugsunar eftirminnilegar en önn- ur. Rósa Luxemburg skildi ekki eftir sig kerf- isbundið heilsteypt verk heldur reit hún eftir þörfum hinnar byltingakenndu hreyfingar á hverjum tíma, hún helgaði sig stéttarbarátt- unni meðal fjöldans en á hann lagði hún allt sitt traust. Það verk Rósu sem mest erindi á til okkar í dag er ritgerðin „Sozialreforun oder Revolution'' þar sem hún gerir upp sakirnar við Eduard Bernstein foringja þýzkra endurskoðunarsinna. Barátta hennar gegn Bernstein var barátta 79
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.