Réttur


Réttur - 01.04.1971, Síða 24

Réttur - 01.04.1971, Síða 24
gegn miðstjórn og skrifræði flokks, sem óx æ meir inn í hold auðvaldsþjóðfélagsins og samlagaði sig því. „Orlög sozíalisku hreyfingarinnar eru ekki bundin við borgaralegt lýðræði, heldur öfugt, örlög lýðræðislegrar þróunar eru háð hinni sósíalísku hreyfingu". Borgaralegt lýðræði byggir á þingræði í stéttarþjóðfélagi. „Þingræðið er sérstakt tæki hins borgaralega stéttarríkis til að fá hina kapitalísku höfuðdrætti til að þroskast og þróast". Sérhver sem velji hinn þingræðislega um- bótaveg í staðinn fyrir pólitíska valdatöku og umbyltingu þjóðfélagsins velji í reynd ekki rólega, örugga og hægfara leið að sama tak- marki heldur annað takmark. Þegar Bernstein sagði, að tak.markið væri einskis virði heldur skipti hreyfingin öllu máli, svaraði Rósa, að takmarkið væri allt en hreyfingin meðal til að ná því. Takmarkið var þjóðfélagsleg umbylting — sósíalismi — og aðeins þetta takmark að- skilur sósíalíska hreyfingu frá borgaralegu lýðræði og borgaralegri róttækni. I annari grein „Massenstreik, Partei und Gewerkschaften" setur hún fram kenningu sína um sjálfkvæmi (spontanitát) byltinga- sinnaðra fjöldaverkfalla. Trú hennar á bylt- ingarfrumkvæði fjöldans og baráttu hans var svo sterk að það virtist sumum nálgast goð- sagnakenndan átrúnað. Postular vélræns skrifræðis litu á barátt- una sem afleiðingu skipulagningar á háu stigi meðan Rósa kenndi, að lífræn dítlektísk þróun hefði í för með sér sk'pulagningu sem afleiðingu af baráttu fjöldans. Lenín krafðist flokks með sterkt miðstjórn- arvald til ?ð bera fósíaliska vitund inn í fjöldann. Rósa leit á baráttuaðferðir, sem afleiðingu skapandi og tilraunakenndrar stéttarbaráttu, 80 því „... það ómeðvitaða kæmi á undan því meðvitaða og rök hlutlægs, sögulegs ferlis væri á undan huglægum rökum þeirra bæru þróunina uppi". Sjálfkvæmni átti ekki að koma í stað allr- ar skipulagningar — heldur vera kjölfesta hreyfingarinnar og hafa í för með sér skipu- lagningu. Rússneska byltingin hafði í för með sér miklar umræður um lýðræði eða alræði. Rósa segir það að setja lýðræði sem mót- sögn við alræði sé andbyltingarsinnað lýð- skrum. „Spurningin nú á tímum hljóðar: borgaralegt lýðræði eða sósíalískt lýðræði". Þar um hinar miklu andstæður. Fjöldi — meiri hluti — lýðræði. Þessi þrjú hugtök einkenna allt starf Rósu og skrif og ein- mitt í þessum þremur hugtökum ásamt óbif- anlegri sannfæringu um nauðsyn þjóðfélags- legrar byltingar endurfæddist Rósa í Berlín 1967—’68, í maí 19í8 í París og að vissu leit á tímabili fjöldahreyfingarinnar í Tékkó- slóvakíu allt fram til 21. ágúst 1968. III. Örlög sósíalískrar fjöldahreyfingar á ís- landi verða ekki ráðin austur í Peking eða vestur á Kúbu heldur hér og núna. Þjóðfé- lagið er alltaf og alls staðar og framtíðin ræðst af verkum okkar í dag og á hverjum degi. Vandamál slíkrar hreyfingar hér eru mikil og mikið af þeim ásökunum sem Rósa hellti yfir samheria sína hefur gildi enn í dag og það Fér norður á hjara veraldar. Lítum í kri'igum okkur. Hver eru aðal- vandamál sósíalískrar fjöldahreyfingar hér- lendis nú? 1 fyrsta lagi að vera sósíalistísk, þ. e. að tápa ekki sjónar af takmarkinu, því aðeins

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.